Fréttablaðið - 27.01.2007, Side 100

Fréttablaðið - 27.01.2007, Side 100
!óíbí.rk054 Gildir á allar sýningar í Borgarbíó merktar með rauðu !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 LITTLE CHILDREN kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3, 5.40 og 8 KÖLD SLÓÐ kl. 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA CASINO ROYALE kl. 10.10 B.I. 14 ÁRA MÝRIN kl. 3 og 10.20 B.I. 12 ÁRA CHARLOTTE´S WEB ENSKT TAL kl. 1, 3.10, 5.20, 7.30 og 9.40 VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 1, 3.10 og 5.20 NIGHT AT THE MUSEUM kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 SÝND Í LÚXUS kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 APOCALYPTO kl. 8 og 10.55 B.I. 16 ÁRA KÖLD SLÓÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 1.30 og 3.40 NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 APOCALYPTO kl. 10.00 B.I. 16 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE kl. 6 og 8 B.I. 7 ÁRA KÖLD SLÓÐ kl. 4 B.I. 12 ÁRA MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á Frábær mynd! Óli Palli – Rás 2 3 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA Gagnrýni. baggalútur.is 20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings ef greitt er með korti frá Kaupþingi FRÁBÆR ÆVINTÝRA- MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ BEN STILLER OG ROBIN WILLIAMS 4 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA m.a sem besta myndin FRÁBÆR BARNA-OG FJÖLSKYLDUMYND FRÁ HÖFUNDI STÚART LITLA. SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. Skoski barinn Highlander er nýtilkomin viðbót í bar- flóru miðborgarinnar. Hann er til húsa í hinu gamla og virðulega Hvítakoti við Lækjargötu. Innandyra á Highlander ríkir nú sannkölluð Hálandastemning, eins og nafnið gefur til kynna. „Hann er svo skoskur barinn að það liggur við að maður fari að tala með hreim þegar maður kemur inn,“ segir Jón Páll Har- aldsson rekstrarstjóri. Barinn stingur þannig í stúf við írskætt- uðu pöbbana Dubliners og Celtic Cross sem hafa átt miklum vin- sældum að fagna. Félagar Jóns Páls í rekstrinum römbuðu inn á barinn í Skotlandi, og leist svo vel á að þeir ákváðu að flytja hann með sér heim. „Við tókum þjónana reyndar ekki með, sem við sjáum eftir núna. Þá þyrftum við ekki að vera að kenna starfsfólkinu að tala með skoskum hreim,“ segir Jón Páll kíminn. „Húsgögnin, bækurnar og mynd- irnar er allt saman að utan,“ segir hann. Highlander hefur verið opinn í rúma viku, en helgin sem nú geng- ur í garð verður nokkurs konar vígsluhelgi barsins. Inni á barnum ríkir yfirleitt rólegt andrúmsloft, enda fannst Jóni Páli mikil vöntun á stað þar sem fólk gæti rætt saman án þess að þurfa að öskra yfir háværa tónlist. Á því verður þó gerð nokkur breyting um helg- ina. „Það mæta til okkar skoskir fjörkálfar með sekkjapípur og allan pakkann, og verða hjá okkur bæði í kvöld og annað kvöld,“ sagði Jón Páll. „Þetta verður svona eins og upp til sveita í Hálöndunum,“ bætti hann við. Bar fyrir Hálandahöfðingja Stefán Eggertsson, faðir Ólafs Stefánssonar, styður son sinn á HM í handbolta í Þýskalandi. Stefán gengur vasklega fram í stuðningi sínum. „Ég reyni frekar að senda þeim jákvæða hugarorku heldur en að öskra. Þarf líka að hlífa röddinni enda syng ég töluvert, ef það er þá afsökun. Sannleikurinn er nú reyndar sá að ég er bara ekki þessi týpa sem kallar og hróp- ar,“ segir Stefán Eggertsson, læknir og faðir Ólafs Stefáns- sonar, fyrirliða íslenska lands- liðsins í handknattleik. Stefán er að sjálf- sögðu í Þýskalandi til að fylgjast með gengi landsliðsins á heimsmeistaramót- inu og sá liðið tapa gegn Pólverjum á fimmtu- dag. „Ég var svekktur. Leikurinn hefði hæglega geta unnist á einhverjum tveimur atvikum,“ útskýrir Stefán, en hann leggur ekki árar í bát. „Við þurfum að vinna leik- inn í dag gegn Slóvenum. Held að við eigum nú ágæta möguleika,“ bætir Stefán við. Athygli hefur vakið að Ólaf- ur hefur gengið vasklega fram í upphafi leiks þegar þjóðsöngur Íslendinga er spilaður. Strákarn- ir hafa allir sem einn sungið hástöfum og Stefán tekur undir. „Hann er reyndar spil- aður svolítið hratt. Mér finnst þetta samt vel gert hjá strákunum að syngja með. Enda þjóðsöngurinn erfitt lag að flytja,“ útskýrir Stefán. Sonurinn hefur á mótinu látið hafa eftir sér stór orð og man þjóð- in vel eftir því þegar Ólafur tók á sig alla sök eftir leikinn gegn Úkraínu. Sagðist hafa brugðist félögum sínum og íslensku þjóð- inni. Stefán hlær þegar hann er inntur eftir skýringum á þessu. „Óli sér um sína hluti sjálfur. Hefur sínar tilfinningar og þegar hlutirnir ganga ekki upp taka menn það nærri sér,“ segir hann. „En honum finnst best að láta verkin tala á vellinum.“ Einyrkinn Pétur Ben og hljóm- sveitirnar Ske og Shadow Parade leiða saman hesta sína á Café Amsterdam í kvöld. Að sögn Hös- kuldar Ólafssonar, söngvara Ske, er tilefni tónleikanna margþætt en slagsíðan hollensk. „Café Amster- dam sem heitir eftir stærstu borg Hollands er frábær bar á frábær- um stað. Pétur Ben er nýkominn frá Hollandi þar sem hann lék á þarlendri tónlistarráðstefnu. Ske vinnur nú að nýrri plötu sem áætl- að er að komi út með vorinu. Er fastlega reiknað með því að platan komi ekki út í Hollandi í kjölfarið,“ segir Höskuldur og hlær við. Tón- leikarnir á Café Amsterdam hefj- ast klukkan 23.30 og miðaverð er 500 krónur. Ske á Amsterdam
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.