Fréttablaðið - 27.01.2007, Qupperneq 100
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
LITTLE CHILDREN kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3, 5.40 og 8
KÖLD SLÓÐ kl. 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 10.10 B.I. 14 ÁRA
MÝRIN kl. 3 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
CHARLOTTE´S WEB ENSKT TAL kl. 1, 3.10, 5.20, 7.30 og 9.40
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 1, 3.10 og 5.20
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20
SÝND Í LÚXUS kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20
APOCALYPTO kl. 8 og 10.55 B.I. 16 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 1.30 og 3.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
APOCALYPTO kl. 10.00 B.I. 16 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 6 og 8 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 4 B.I. 12 ÁRA
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
Frábær mynd!
Óli Palli – Rás 2
3 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
Gagnrýni. baggalútur.is
20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings
ef greitt er með korti frá Kaupþingi
FRÁBÆR ÆVINTÝRA-
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
MEÐ BEN STILLER OG
ROBIN WILLIAMS
4 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
m.a sem besta myndin
FRÁBÆR BARNA-OG FJÖLSKYLDUMYND
FRÁ HÖFUNDI STÚART LITLA.
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
Skoski barinn Highlander
er nýtilkomin viðbót í bar-
flóru miðborgarinnar. Hann
er til húsa í hinu gamla og
virðulega Hvítakoti við
Lækjargötu.
Innandyra á Highlander ríkir nú
sannkölluð Hálandastemning,
eins og nafnið gefur til kynna.
„Hann er svo skoskur barinn að
það liggur við að maður fari að
tala með hreim þegar maður
kemur inn,“ segir Jón Páll Har-
aldsson rekstrarstjóri. Barinn
stingur þannig í stúf við írskætt-
uðu pöbbana Dubliners og Celtic
Cross sem hafa átt miklum vin-
sældum að fagna.
Félagar Jóns Páls í rekstrinum
römbuðu inn á barinn í Skotlandi,
og leist svo vel á að þeir ákváðu að
flytja hann með sér heim. „Við
tókum þjónana reyndar ekki með,
sem við sjáum eftir núna. Þá
þyrftum við ekki að vera að kenna
starfsfólkinu að tala með skoskum
hreim,“ segir Jón Páll kíminn.
„Húsgögnin, bækurnar og mynd-
irnar er allt saman að utan,“ segir
hann.
Highlander hefur verið opinn í
rúma viku, en helgin sem nú geng-
ur í garð verður nokkurs konar
vígsluhelgi barsins. Inni á barnum
ríkir yfirleitt rólegt andrúmsloft,
enda fannst Jóni Páli mikil vöntun
á stað þar sem fólk gæti rætt
saman án þess að þurfa að öskra
yfir háværa tónlist. Á því verður
þó gerð nokkur breyting um helg-
ina. „Það mæta til okkar skoskir
fjörkálfar með sekkjapípur og
allan pakkann, og verða hjá okkur
bæði í kvöld og annað kvöld,“ sagði
Jón Páll. „Þetta verður svona eins
og upp til sveita í Hálöndunum,“
bætti hann við.
Bar fyrir
Hálandahöfðingja
Stefán Eggertsson, faðir
Ólafs Stefánssonar, styður
son sinn á HM í handbolta í
Þýskalandi. Stefán gengur
vasklega fram í stuðningi
sínum.
„Ég reyni frekar að senda þeim
jákvæða hugarorku heldur en að
öskra. Þarf líka að hlífa röddinni
enda syng ég töluvert, ef það er þá
afsökun. Sannleikurinn er nú
reyndar sá að ég er bara ekki
þessi týpa sem kallar og hróp-
ar,“ segir Stefán Eggertsson,
læknir og faðir Ólafs Stefáns-
sonar, fyrirliða íslenska lands-
liðsins í handknattleik.
Stefán er að sjálf-
sögðu í Þýskalandi til
að fylgjast með
gengi landsliðsins á
heimsmeistaramót-
inu og sá liðið tapa
gegn Pólverjum á fimmtu-
dag. „Ég var svekktur.
Leikurinn hefði hæglega
geta unnist á einhverjum
tveimur atvikum,“
útskýrir Stefán, en hann
leggur ekki árar í bát.
„Við þurfum að vinna leik-
inn í dag gegn Slóvenum. Held að
við eigum nú ágæta möguleika,“
bætir Stefán við.
Athygli hefur vakið að Ólaf-
ur hefur gengið vasklega fram í
upphafi leiks þegar þjóðsöngur
Íslendinga er spilaður. Strákarn-
ir hafa allir sem einn sungið
hástöfum og Stefán tekur
undir. „Hann er reyndar spil-
aður svolítið hratt. Mér
finnst þetta samt vel gert
hjá strákunum að
syngja með. Enda
þjóðsöngurinn erfitt lag að flytja,“
útskýrir Stefán.
Sonurinn hefur á mótinu látið
hafa eftir sér stór orð og man þjóð-
in vel eftir því þegar Ólafur tók á
sig alla sök eftir leikinn gegn
Úkraínu. Sagðist hafa brugðist
félögum sínum og íslensku þjóð-
inni. Stefán hlær þegar hann er
inntur eftir skýringum á þessu.
„Óli sér um sína hluti sjálfur.
Hefur sínar tilfinningar og þegar
hlutirnir ganga ekki upp taka
menn það nærri sér,“ segir hann.
„En honum finnst best að láta
verkin tala á vellinum.“
Einyrkinn Pétur Ben og hljóm-
sveitirnar Ske og Shadow Parade
leiða saman hesta sína á Café
Amsterdam í kvöld. Að sögn Hös-
kuldar Ólafssonar, söngvara Ske,
er tilefni tónleikanna margþætt en
slagsíðan hollensk. „Café Amster-
dam sem heitir eftir stærstu borg
Hollands er frábær bar á frábær-
um stað. Pétur Ben er nýkominn
frá Hollandi þar sem hann lék á
þarlendri tónlistarráðstefnu. Ske
vinnur nú að nýrri plötu sem áætl-
að er að komi út með vorinu. Er
fastlega reiknað með því að platan
komi ekki út í Hollandi í kjölfarið,“
segir Höskuldur og hlær við. Tón-
leikarnir á Café Amsterdam hefj-
ast klukkan 23.30 og miðaverð er
500 krónur.
Ske á Amsterdam