Fréttablaðið - 27.01.2007, Síða 77

Fréttablaðið - 27.01.2007, Síða 77
Til þess að líkaminn geti starfað eðlilega þurfum við að fá 13 mis- munandi vítamín út fæðunni sem við neytum. Þessi vítamín gegna margvíslegum hlutverkum í lík- amanum og skorti eitthvert þeirra er hætta á hörgulsjúkdómi. Vítamín skiptast í vatnsleysanleg vítamín annars vegar og fituleys- anleg hins vegar. Til vatnsleysan- legra vítamína teljast B-vítamín- in, sem eru 8 alls, og C-vítamín. A-, D-, E- og K-vítamín eru hins vegar fituleysanleg. Þessi grund- vallarmunur á vítamínflokkunum hefur mikið að segja ef við fáum of mikið af einhverju vítamíni. Sé vítamínið vatnsleysanlegt skilst umframmagnið út með þvagi og afleiðingarnar eru að mestu skað- lausar. Sé vítamínið aftur á móti fituleysanlegt safnast það fyrir í líkamanum, einkum í lifrinni, og getur haft mjög skaðleg áhrif. Safnist of mikið af A-vítamíni fyrir í líkamanum getur það verið mjög skaðlegt. Einkenni A-vítam- íneitrunar eru höfuðverkur, hár- los, ógleði, uppköst, flögnun húðar, lifrarskemmdir og óeðlilegur fóstur-þroski hjá barnshafandi konum. Of mikið A-vítamín á fyrsta þriðjungi meðgöngu hefur til dæmis verið tengt við fóstur- galla, eins og andlits- og tauga- galla. Of mikið af D-vítamíni getur leitt til aukinnar kalkupptöku úr melt- ingarveginum og jafnvel endur- upptöku kalks úr beinum. Aukið kalkmagn í blóði getur haft í för með sér óeðlilegar kalkútfellingar í mjúkum vefjum, svo sem hjarta og lungum, og dregið þannig úr starfsgetu þeirra. Helstu einkenni eru vöðvaslappleiki, höfuðverkur, lystarstol, ógleði, uppköst og bein- verkir. Fái barnshafandi konur of mikið D-vítamín getur afleiðingin orðið skertur andlegur eða líkam- legur þroski barnanna. E-vítamíneitrun er nánast óþekkt þrátt fyrir að E-vítamín geti einn- ig safnast fyrir í líkamanum. Helstu einkenni of mikils magns af E-vítamíni eru ógleði, höfuð- verkur, þreyta, vöðvaslappleiki og sjóntruflanir. Hjá fólki sem tekur blóðþynningarlyf eykst hætta á blæðingum og marblettum, en E- vítamín eykur áhrif þessara lyfja. K-vítamíneitrun er einnig mjög sjaldgæf. Helst er hætta á henni hjá fólki sem þarf að taka blóð- þynningarlyf, en vítamínið truflar verkun þeirra. Of stórir skammtar af B-vítamín- um eru oftast einkennalausir og eru eitranir af þeirra völdum sjaldgæfar. Hér verða þó talin upp helstu einkenni B-vítamín- eitrana. Einkenni þíamíneitrunar (B1- vítamín) eru hraður eða óreglu- legur hjartsláttur, lágur blóð- þrýstingur, höfuðverkur, ofnæmisviðbrögð, slappleiki og krampar. Þvagið verður skærgult ef tekið er inn of mikið af ríbófla- víni (B2-vítamíni), en eitrunarein- kenni eru ekki þekkt. Helstu ein- kenni um of stóran skammt af níasíni (B3-vítamíni) eru húðroði, kláði, sog- eða blísturshljóð við öndun, höfuðverkur, niðurgangur og uppköst. Eitrun af völdum pýr- idoxíns (B6-vítamíni) getur valdið hraðri öndun, sviðaverkjum í augum, nefi og eyrum, skorti á vöðvasamhæfingu og jafnvel lömun. Stórir skammtar af fólínsýru (B9-vítamíni) valda sjaldnast ein- kennum, en of mikið magn hennar getur hins vegar falið lífshættu- legan sjúkdóm sem stafar af skorti á B12-vítamíni og heitir illkynja blóðleysi (e. pernicious anemia). Mjög stórir skammtar af fólínsýru geta jafnframt skaðað miðtauga- kerfið. C-vítamín skolast yfirleitt út með þvagi, en ef tekið er inn 1-2 grömm í einu getur það valdið niðurgangi og óþægindum í melt- ingarfærum. Að lokum skal tekið fram að áhrif stórra skammta af einstökum vít- amínum geta farið eftir því hvaða önnur næringarefni er verið að innbyrða um leið. Best er að fá ráðlagða dagskammta (RDS) af öllum vítamínum úr fæðunni. Ef það reynist erfitt er í flestum til- fellum óhætt að taka fjölvítamín- töflur með málmsöltum sam- kvæmt leiðbeiningum. Þar eru ráðlagðir dagskammtar af vítamínum og helstu málmsöltum sem við þörfnumst. Þótt við fáum með þessu ef til vill örlítið meira en ráðlagðan dagskammt af einhverju þessara bætiefna er það í flestum tilfell- um svo lítið að það kemur ekki að sök. Sjálfsagt er að ráðfæra sig við heimilislækni áður en byrjað er að taka inn fæðubótarefni, þá sérstaklega ef um margar gerðir er að ræða. Ýmis lyf geta jafn- framt haft áhrif á vítamínupp- töku. Það er því vert að hafa í huga að það er ekki bara magn og samsetning vítamína sem skiptir máli, heldur einnig hvaða lyf eru tekin samhliða. Þuríður Þorbjarnardóttir, líffræðingur Er hættulegt að taka of mikið af vítamínum?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.