Fréttablaðið - 27.01.2007, Side 96

Fréttablaðið - 27.01.2007, Side 96
Í dag er 251 ár frá því að einn mesti tónsnillingur allra tíma, Wolf- gang Amadeus Mozart, fæddist í Salzburg. Líklega verða hátíðahöld- in lítilfjörleg miðað við húllumhæið í fyrra, þegar heimsbyggðin hélt upp á stórafmæli meistarans með glæsibrag. Sjálfur hef ég aldrei skilið umstangið kringum afmælisár löngu liðinna tónskálda. Átti tónlist Mozarts eitthvað meira erindi við okkur árið 2006 en 2005, eða 2007? Er ekki öll sönn list hafin yfir stund og stað? Reyndar efast ég um að Mozart hafi verið nokkur greiði gerður með ýmsu því sem fram fór á stórafmælisárinu. Til dæmis var mikið flutt af sjaldheyrðum verkum sem stundum voru langt undir þeim væntingum sem maður gerir ósjálfrátt til Mozarts, æskuverk eða tónverk samin á leifturhraða þegar fjárhagurinn var kominn í þrot. Mozart skapaði ekki eintóm meistaraverk, frekar en Bach, Beethoven, Shakespeare eða Vincent van Gogh. Allir eiga sína góðu og slæmu daga, líka mestu listamenn sögunnar. Það heyrist stundum sagt að tónlist Mozarts sé fyrirsjáanleg, jafnvel svolítið barnaleg á köflum. Þetta finnst mér hin mesta fjarstæða. Mozart var langt frá því að vera barnalegur í tónlist sinni – nema þeirri sem hann samdi þegar hann var sjálfur barn, eins og eðlilegt er. Við megum heldur ekki horfa fram hjá því hvaða viðhorf voru við lýði í tónlist á tímum Mozarts. Þegar klassíski stíllinn tók að ryðja sér til rúms skömmu fyrir miðja 18. öldina lögðu tónskáld allt kapp á að gera verk sín nógu einföld og „náttúruleg“. Flóknar tónarunur og ómstríð hljómasambönd barokksins heyrðu sögunni til; tónlist átti ekki að vera þung, erfið og flókin, heldur létt, þokkafull og þægileg áheyrnar. Sumir tóku þessa nýju kröfu helst til bókstaflega, eins og franski heimspekingurinn Jean-Jacques Rousseau sem samdi óperur sem í dag hljóma allt að því óbærilega einfaldar. Einfaldleikinn gat orðið að einfeldningshætti þegar minnst varði, en snillingur á borð við Mozart lét slíkt ekki henda sig. Þegar hann óx úr grasi stóð honum enginn á sporði hvað varðaði ímyndunarafl og framsækni í tónsköp- un, enda þótti samtímamönnum hans stundum nóg um kröfurnar sem hann gerði til hlustenda sinna. Fegurðin og heiðríkjan sem býr í tónlist Mozarts hefur gert hana ódauðlega. En ef við hlustum vandlega getum við heyrt að það býr meira að baki. Ein frægasta tónsmíð Mozarts er píanókonsertinn í C- dúr K. 491, ekki síst hægi kaflinn sem hefst á undurblíðu og svífandi fiðlustefi. Stemningin er kyrrlát og allt er í fullkomnu samræmi. En skyndilega fer allt á verri veg. Tónlistin breytir um svip, verður ólgandi og myrk, og ómstríðir hljómarnir sökkva neðar og neðar í hyldýpið. Eftir nokkrar óvissusekúndur kippir Mozart okkur aftur upp á yfirborðið. Allt er slétt og fellt á ný, en vitneskjan um að svona gæti farið á hverri stundu fylgir manni allt til lokatóns. Ekki verður heldur sagt að upphafið að strengjakvartettinum í C- dúr K. 465 sé hlustendavænt. Kvartettinn hefst á hægum og myrkum inngangi þar sem hljóðfærin koma inn hvert af öðru en eru algerlega á skjön við umhverfi sitt, eins og spilararnir séu staddir hver í sínum heimi. Það tekur þá meira en 20 takta að ná saman og þessar tvær ómstríðu, dulúðlegu mínútur eru einhverjar þær nútímalegustu sem Mozart samdi. Sama má segja um lokaþátt frægu g-moll sinfóníunn- ar K. 550, þar sem kraftmikið stefið fer eitt sinn eftirminnilega „út af sporinu“ í miðjum klíðum. Nótur hljóma á stangli hér og þar, algerlega ófyrirséðar bæði hvað varðar tónhæð og rytma, svo að útkoman er nær 20. öldinni en nokkuð sem samtímamenn Mozarts létu eftir sig. Engum sem heyrir umrædda takta myndi detta í hug að lýsa tónlistinni sem barnalegri. Þvert á móti: Í meistaraverkunum sem Mozart samdi á fullorðinsárum sínum hefur hann fullkomið vald á list sinni og notar hana til að hreyfa við áheyrendum sínum á nýstárlegan hátt. Tónlist Mozarts er eilíft samspil ljóss og skugga, gleði og sorgar. Alveg eins og lífið sjálft. Til hamingju Mozart! Þau mistök urðu á menningar- síðum gærdagsins að fullyrt var að frumsýning á Mýra- manni Gísla Einarssonar á Landnemasetrinu í Borgarnesi væri í gærkvöldi – föstudag. Hið sanna er að hún er í kvöld. Er beðist velvirðingar á þessu mishermi. Leiðrétting Í dag kl. 16.00 verður sýnd mynd Bernardos Bertolucci frá árinu 1987, Last Emperor eða Síðasti keisarinn í Bæjarbíói, Hafnarfirði á vegum Kvikmyndasafnsins. Myndin er eins konar ævisaga Pu Yi, sem þriggja ára að aldri tók við veldissprotanum sem síðasti keisarinn í Kína. Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði, þriðjudaga kl. 20.00 og laugardaga kl. 16:00. Miðasala opnar um hálftíma fyrir sýningu og miðaverð er kr. 500. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíð- unni www.kvikmyndasafn.is. Síðasti keisarinn víkingar& gyðingar 3 dansleikhúsverk og stuttmynd í Hafnarfjarðarleikhúsinu 26. og 27. janúar kl.20.00. Miðapantanir í síma 555 2222 og Good Company kynna: „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.