Fréttablaðið - 27.01.2007, Page 99

Fréttablaðið - 27.01.2007, Page 99
Fyrst við erum nú komin á kaf í sjötta áratuginn, þann byltingar- kennda áratug, langar mig að velta upp spurningunni hver hafi hann- að minipilsið. Tveir eru aðallega nefndir í þessu samhengi, báðir stórkostlegir hönnuðir og braut- ryðjendur á sínu sviði á þessum tíma. Þetta eru hönnuðir sem allir tískuunnendur þurfa að kunna deili á þótt ég láti nú vera í bili að skera úr um hver eigi raunveru- lega heiðurinn af þessari mjög svo mikilvægu uppfinningu. Andre Courreges vann fyrir Balenciaga áður en hann stofnaði sitt eigið tískuhús í París árið 1961. Courreges blandaði saman þeirri teknísku kunnáttu sem hann til- einkaði sér hjá Balenciaga og nýti- stefnu verkfræðinnar (en hann var einnig menntaður verkfræðingur) til að skapa eina framhleypnustu og sérstökustu fatahönnun sjötta áratugarins. Framsæknir auka- hlutir, hlífðargleraugu (goggles), go go-stígvél, hjálmar og rúm- fræðiformlaga pils í hvítum og silfruðum litum. „Það að skapa er að ímynda sér form.“ Í dag situr Courreges á goðsagnakenndum palli í franskri tískusögu. Mary Quant stofnaði búðina Bazaar í London 1955 og fram- leiddi nýtískufatnað á viðráðan- legu verði sem gerði tískuföt aðgengilegri fyrir ungt fólk og skapaði þar með nýjan markað. Hver sem kann að hafa átt hug- myndina að minipilsinu þá var það tvímælalaust Mary Quant sem gerði byltingu á því sviði í Bret- landi. „Mig langaði alltaf til að ungt fólk ætti sína eigin tísku, algjörlega sína eigin 20. aldar tísku.“ Mary Quant framleiddi einnig á sjötta áratugnum plast- regnkápur, hot pants og hnéhá, uppreimuð, hvít plaststígvél. „Fyrir einskæra tilviljun, jafnvel mistök uppgötvuðum við að við vorum stödd í miðju upphafi bylt- ingar innan tískuheimsins.“ Ofurhönnuðurinn Tom Ford fæddist í Texas 1961. Hann stúderaði arkitektúr í Parsons School of Design í New York þaðan sem hann útskrifaðist 1986. Árið 1990 var hann ráðinn hjá Gucci til að hanna daglegan fatnað (ready-to-wear) fyrir konur. Þaðan vann hann sig upp metorðastigann af metnaði og dugnaði þar til hann var orðinn aðalstjórnandi Gucci-tískuhússins. Hann lét ekki deigan síga og árið 1999 var Gucci-húsið, sem var á barmi gjaldþrots er Ford tók við því, metið á um fjóra milljarða dala. Það ár keypti Gucci einnig YSL-tískuhúsið og sá Ford einnig um list- ræna stjórnun á þeim bæ. Engin smá áskorun það en Ford var þess fullviss að geta haldið merkjunum vel aðskildum. „Í sögulegu sam- hengi er Sophia Lauren Gucci og Catherine Den- euve er YSL. Þær eru báðar kynþokkafullar þótt Gucci sé örlítið fyrirsjáanlegri,“ segir hann. Tom Ford er einstaklega orkumikill og sefur aðeins um þrjá tíma á nóttu hverri. „Það eru margir mun hæfileikaríkari hönn- uðir en ég,“ segir hann hógvær. „En ég hef mik- inn drifkraft og gefst aldrei upp. Sem er gott því að öðru leyti hefði mér ekki gengið svona vel og þá orðið mjög óhamingjusamur.“ Aðrir líta öðruvísi á málin, segja að leyndar- mál Fords sé blanda af sterkri tilfinningu fyrir fallegri tísku og góðu næmi á hinn almenna neytanda. Árið 2004 sagði Tom Ford skilið við stöðu sína hjá tískuhúsunum Gucci og YSL og í vor mun opna á Madison Avenue í New York fyrsta búðin sem ber hans eigin nafn. Á lista Toms Ford yfir hlutina sem hann vill gera í lífinu er meðal annars að búa til kvik- mynd. „Það er hið fullkomna hönnunarverkefni. Maður fær ekki bara að hanna það sem fólk klæðist heldur umhverfið allt og einnig hvort persónurnar lifa eða deyja. Það er varanleiki í kvikmyndum sem tísk- una skortir.“ Hönnuður dauðans
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.