Fréttablaðið - 27.01.2007, Page 105

Fréttablaðið - 27.01.2007, Page 105
 Íslenska landsliðið hefur tapað tveimur leikjum á HM í handbolta í Þýskalandi, fyrir Úkraínu og fyrir Póllandi. Í hvorugum þessara leikja hefur íslenska vörnin og mark- verðirnir ráðið við skyttur and- stæðinganna. Í leiknum gegn Úkraínu vörðu íslensku markverðirnir aðeins 22% langskota Úkraínumanna, sem skoruðu alls 14 mörk af níu metrunum í leiknum. Í tapinu gegn Póllandi í síðasta leik fékk íslenska landsliðið á sig heil 18 mörk með langskotum, eða tvöfalt meira en liðið hafði fengið á sig í sigurleikjunum þremur. Íslensku markverðirnir vörðu reyndar 8 langskot en sökum fjölda marka af níu metrunum var hlutfall markvörslu þeirra úr langskotum aðeins 31%. Þegar markvarsla úr langskot- um er skoðuð eftir sigur- og tapleikjum blasir stingandi stað- reynd við. Í sigrunum fær íslenska liðið aðeins á sig 9,3 langskots- mörk að meðaltali og markverðir verja 53% skota af níu metrun- um. Í tapleikjunum er markvarslan hins vegar komin niður í 27% og mótherjarnir skora 16 langskots- mörk að meðaltali. Markvarslan í langskotum var vandamál í Tékkaleikjunum en eftir góða frammistöðu gegn Frökkum, sem skoruðu aðeins fimm langskotsmörk á móti íslenska liðinu, var eins og vörnin væri búin að finna leið. Það sást hins vegar gegn Pólverjum að strákarnir þurfa að finna leiðir til að loka fyrir þennan stóra „leka“ á íslensku vörninni. Skotnir niður í tapleikjunum Franska knattspyrnu- goðið Michel Platini er nýr for- seti UEFA en hann vann fráfar- andi forseta, Svíann Lennart Johansson, í forsetakosningunum í gær. Platini hlaut 27 atkvæði gegn 23 en tvö atkvæðin voru ógild. Hinn 77 ára gamli Svíi var búinn að sitja í forsetastólnum í sautján ár. „Ég var búinn að búa mig lengi undir forsetahlutverk- ið og ég er tilbúinn,“ sagði hinn 51 árs gamli Platini, sem var á sínum tíma þrívegis kosinn besti knattspyrnumaður Evrópu og leiddi Frakka til Evrópumeist- aratitils síns 1984. Sepp Blatter, forseti FIFA, var ánægður. „Þetta kom mér ekki á óvart. Ég er mjög ánægður með að fara að vinna með manni sem hefur sömu sýn á fótboltann og ég,“ lét Blatter hafa eftir sér í gær. Umdeildasta skoðun Platini er að hann vill fækka sætum stóru landanna í Meistaradeild- inni úr fjórum í þrjú. Platini steypti Johansson af stalli LeBron James, leikmaður Cleveland, fékk flest atkvæði í kosningu í stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fer fram 18. febrúar í Las Vegas. James fékk yfir 2,5 milljónir atkvæða en með honum í byrjun- arlið Austurdeildarinnar voru kosnir Dwyane Wade og Shaquille O’Neal í Miami, Gilbert Arenas hjá Washington og Chris Bosh hjá Toronto. O’Neal var kosinn í liðið fjórtánda árið í röð og jafnaði þar með afrek Jerrys West og Karls Malone. Í lið Vesturdeildarinnar voru kosnir þeir Yao Ming og Tracy McGrady frá Houston, Kevin Garnett frá Minnesota, Tim Duncan frá San Antonio og Kobe Bryant frá LA Lakers. Aðeins einu sinni áður hefur leikmaður fengið fleiri atkvæði en James, en Kínverjinn Yao Ming fékk fleiri atkvæði árið 2005. LeBron fékk flest atkvæði Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, er hræddur um að liðið þurfi að leika án sóknarmannsins Robin van Persie út þetta tímabil. Van Persie fótbrotnaði eftir að hafa skorað jöfnunarmarkið gegn Manchester United fyrir viku síðan. „Venju- lega tekur sex til átta vikur að jafna sig af þessum meiðslum en þetta gæti farið upp í tíu,“ sagði Wenger. Arsenal á leik gegn Bolton í bikarkeppninni um helgina. Hræddur um van Persie
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.