Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 1

Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI > Markaðurinn Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ... FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG Hátt metnir | Stærstu bankar Norðurlanda eru of hátt verð- metnir að mati Morgan Stanley. Hækkun þeirra hefur verið keyrð áfram af auknum umsvifum í fjár- málalífinu og getgátum um frekari samþjöppun í geiranum. Skipt upp | Ákveðið hefur verið að skipta upp fyrirtækinu Kreditkort hf. og færa útgáfu greiðslukorta og þjónustu við þau yfir í nýtt dóttur- félag. Kreditkort er í eigu Glitnis, Landsbankans og sparisjóðanna. Meiri evrubréf | Glitnir hefur gengið frá samningum um útgáfu skuldabréfa að upphæð 500 milljón- ir evra, um 45 milljarðar íslenskra króna, á föstum vöxtum sem nema 4,375 prósentum. Undirbúa slag | Róbert Wessman, forstjóri Actavis, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að kaupa samheitalyfjahluta lyfjafyrirtæk- isins Merck KGaA. Kaupverðið gæti numið 360 til 450 milljörðum króna. Metið slegið | Landsbankinn skil- aði methagnaði upp á 40,2 millj- arða króna á síðasta ári. Hagnaður bankans á fjórða ársfjórðungi var 14,1 milljarður króna, sem var langt umfram spár. Skoða sölu | Novator íhugar að selja alla hluti félagsins í búlg- arska símafyrirtækinu Bulgarian Telecommunications Company, BTC, sem var einkavætt fyrir þremur árum. Hvergi meiri | Landsframleiðsla á mann á Íslandi var 29 prósentum yfir meðaltali Evrópusambandsríkja árið 2005 samkvæmt bráðabirgða- niðurstöðum alþjóðlegs saman- burðar sem Hagstofan birti í vik- unni. Leiða kaup | Kaupþing fer fyrir hópi fjárfesta sem hefur keypt bresku tískuvöruverslunina Phase Eight. Kaupverðið var 51,5 millj- ónir punda sem nemur tæpum sjö milljörðum króna. Bala Murughan Kamallakharan Leitar fjárfestingar- tækifæra fyrir Glitni 18 Framtíðarsýn Actavis Stefnt á ystu sjónarrönd 8 Sögurnar... tölurnar... fólkið... F R É T T I R V I K U N N A R Þróun olíuverðs Á taflborði alþjóðamarkaðar 12-13 Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Actavis undirbýr nú að skrá hlutafé sitt í evrum. Tillaga um að stjórn verði heimilað að vinna að undirbúningi breytinganna verður lögð fyrir hlut- hafafund í næstu viku. Stjórnendur fyrirtækis- ins hafa þegar átt fundi með Kauphöll Ísland og Verðbréfaskráningu. Actavis hefur fært bókhald sitt í evrum frá því árið 2003. Segir Róbert Wessman, forstjóri Actavis, breytinguna rökrétt framhald af því. „Okkar tekjur eru 99 prósent í erlendum gjaldmiðlum. Það er óheppilegt að stöðugar sveiflur séu á heildarverð- mæti félagsins út af sveiflum á krónunni. Okkur finnst því eðlilegt að hafa bréfin í evrum.“ Actavis þarf ekki að sækja formlega um leyfi fyrir breyt- ingunum til annarra en hluthafa sinna, að mati Róberts. „Það er ekkert þessu til fyrirstöðu hjá Kauphöllinni. Þetta snýst fyrst og fremst um tækni- lega útfærslu.“ Stjórnendur Actavis gera ráð fyrir að breytingin geti gengið í gegn um mitt árið. Litlar sem engar breytingar þarf að gera í Kauphöll Íslands til að mögulegt verði að kaupa og selja hlutabréf í evrum. Það sem helst tefur er að Verðbréfaskráning þarf að taka nýtt greiðslumiðlunarkerfi í gagnið sem getur tekið nokkra mánuði. Þá á eftir að koma í ljós hvort Seðlabanki Íslands verður áfram uppgjörsað- ili félagsins eftir að breytt hefur verið yfir í evrur. Seðlabankinn hefur séð um slík uppgjör í íslenskum krónum. Ekki er talið ólíklegt að erlendur banki taki það hlutverk að sér. Róbert segir tvennt hafa fælt erlenda fjárfesta frá því að eiga viðskipti á íslenska markaðnum. Annars vegar smæð hans og hins vegar sveiflur á gengi íslensku krónunnar. Samruni Kauphallar Íslands við OMX hafi því verið gæfuspor fyrir íslenska markaðinn. Það muni fyrst fara að sýna sig um mitt árið þegar allir þeir 150 kauphall- araðilar sem skráðir eru á OMX munu geta átt viðskipti með þau félög sem skráð eru hér. Hann telur að þetta, ásamt því að Actavis skrái hlutafé sitt í evrum, muni laða fleiri erlenda fjárfesta að Actavis. Þeir muni ekki lengur þurfa að verja sig gagnvart krónunni með tilheyrandi kostnaði. Hann segir áhuga erlendra fjárfesta þegar mikinn. Þrír erlendir bankar greini félagið og von sé á einum til tveimur til viðbótar á næstu mánuðum. Breytingin á skráningu hlutafjárins mun að mati Róberts koma sér vel fyrir íslenska fjárfesta og hluthafa í Actavis. „Þetta mun gera íslenskum fjárfestum kleift að fjármagna sig í auknum mæli í evrum á móti bréfunum í sömu mynt. Fjármögnun í evrum kostar um tíu prósentum minna en í íslensk- um krónum.“ Hlutafé Actavis í evrur Stjórn Actavis undirbýr skráningu hlutafjár í evrum. Róbert Wessman, forstjóri félagsins, telur að ekki þurfi sérstaka heimild fyrir breytingunni frá öðrum en hluthöfum. O T T F Ó LK M cC A N N Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me› starfsleyfi FME. Landsbankinn er vörslua›ili sjó›anna. Athygli fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingar- sjó›ir hafa r‡mri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en ver›bréfasjó›ir. Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar muninn á ver›bréfasjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingar- heimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr útbo›s- l‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans auk uppl‡singa á heimasí›u bankans, landsbanki.is. Örugg ávöxtun í fleirri mynt sem flér hentar EUR 3,2%* GBP 5,7%* ISK 13,3%* Markmið Peningabréfa er að ná hærri ávöxtun en millibankamarkaður og gjaldeyrisreikningar. Enginn munur er á kaup- og sölugengi. Peningabréf Landsbankans USD 5,3%* * Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. desember 2006 - 3. janúar 2007. Hagnaður viðskiptabankanna nam samanlagt 163,7 milljörð- um króna á síðasta ári saman- borið við 93,2 milljarða króna árið 2005. Þetta gefur um 75,6 prósenta aukningu á milli ára og er tæplega fjórfalt meiri hagn- aður en árið 2004 þegar afkoma bankanna var 41,8 milljarðar. Árið 2003 nam hagnaður við- skiptabankanna 16,4 milljörðum króna sem er lægri upphæð en hagnaður Kaupþings (18,1 millj- arður) á fjórða ársfjórðungi. Gjaldfærður tekjuskattur var 27,1 milljarður króna á síðasta ári og jókst um 28 prósent á milli ára. Heildareignir bankanna uxu mjög hratt á síðasta ári og stóðu í 8.475 milljörðum króna í árs- lok. Til samanburðar námu þær 5.418 milljörðum við lok árs 2005 og hækkuðu því um 56 prósent. Þetta samsvarar sjöfaldri áætl- aðri landsframleiðslu síðasta árs, nærri sexfaldri heildareign líf- eyrissjóðakerfisins í lok nóvem- ber og rúmu þreföldu markaðs- virði allra hlutabréfa í Kauphöll Íslands í árslok sem var um 2.596 milljarðar króna. Eigið fé viðskiptabankanna þriggja var 614 milljarðar króna og hækkaði um nærri 58 prósent á milli ára. - eþa Hagnaður bankanna fjórfaldast frá árinu 2004 Eignir bankanna þrefalt hærri en verðmæti allra hlutabréfa í Kauphöllinni. Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir bank- ana hafa unnið vel úr þeirri erfiðu stöðu sem kom upp í kjölfar neikvæðrar umræðu um stöðu þeirra síðastliðið vor. „Við hjá FME vissum að staða bankanna væri traust og hvöttum þá því til að halda ró sinni, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og láta verkin tala, sem þeir gerðu.“ Jónas segir ánægjulegt að sjá að tekjur af grunnstarfsemi bank- anna fari vaxandi. Tekjugrunnur bankanna sé orðinn fjölþættari, arðsemi eigin fjár sé góð og eiginfjárhlutföll bankanna séu sterk. Bankarnir þurfa að mati Jónasar að huga betur að inn- lánshlutföllum sínum þar sem þeir séu mjög háðir alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum með fjár- mögnun sína. Einnig þurfi þeir að gæta að kostnaðarhlutföllum þar sem þau hafi hækkað frá árinu 2005. - hhs Hrósar bönkunum H A G N A Ð U R B A N K A N N A 2 0 0 3 - 2 0 0 6 2006 2005 2004 2003 Kaupþing 85,3 49,3 17,7 7,5 Landsbankinn 40,2 25 12,7 3,1 Glitnir 38,2 18,9 11,4 5,8 Alls 163,7 93,2 41,8 16,4 Glitni hefur verið gert að greiða 589 milljónir króna í skatt að meðtöldum sektum vegna sam- runa gamla Íslandsbanka og Framtaks fjárfestingarbanka árið 2004. Forsvarsmenn Glitnis töldu þá að skattaskuldbinding vegna þeirrar sameiningar hefði fallið niður. Ríkisskattstjóri var ósammála túlkun Glitnis og úrskurðaði fyrir áramót að bankanum bæri að greiða skatt sem myndaðist við kaupin auk álagningar. „Við erum búin að áfrýja þessu og munum sækja rétt okkar til dómstóla. En engu að síður er greiðsluskyldan skýr og þar af leiðandi er búið að gjaldfæra þetta í reikningum félagsins,“ segir Bjarni Ármansson, for- stjóri Glitnis. - eþa Glitnir fær skatt í hausinn Sími: 550 5000 MIÐVIKUDAGUR 31. janúar 2007 — 30. tölublað — 7. árgangur íslenskutónlistar-verðlaunin[ SÉRBLAÐ UM ÍSLENSKU TÓ VEÐRIÐ Í DAG IÐNAÐUR Sprotaþing Samtaka iðnaðarins Sérblað um viðskipti og atvinnulíf FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Íslenskur iðnaður [ SÉRBLAÐ UM VIÐSKIPTI OG ATVINNULÍF – MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2007 ] EFNISYFIRLIT SPROTAÞINGTilurð og dagskrá BLS. 2 FÁ BOÐ FRÁ ÚTLÖNDUMFjallað um nýja rannsóknBLS. 4 BJARTSÝNI Í BYRJUN ÁRSHelgi Magnússon BLS. 6 MUNDELL OG KRÓNANFjallað um evrunaBLS. 8 NÝ EFNALÖGGJÖF Sönnun- arbyrðin er fram- leiðend- Markalaus í meira en mánuð Eiður Smári Guð- johnsen hefur ekki skorað á síðustu 455 mínútum sem hann hefur spilað með liði Barcelona. ÍÞRÓTTIR 42 Bjartsýn á framhaldið Nína Magnúsdóttir, stjórnarformaður Ný- listasafnsins, ræðir um áherslubreytingar og framtíðarsýn safnsins. MENNING 32 FRÁBÆR TILBOÐ! SÉRBLAÐ FYLGIR Gefur lítið fyrir Ómarsrúntinn Kolbrún Halldórsdóttir vill færri bíla og fleira fólk. FÓLK 34 Stórfiskaleikur „Stjórnskipulag íþróttahreyfingar- innar, sérstaklega KSÍ, endurspegl- ar kynjaskekkju sem er jafnvel ýktari en í samfélaginu í heild,“ segir Þorgerður Einarsdóttir. Í DAG 22 VAXANDI VINDUR - Í dag verður vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s vestan til eftir hádegi með rigningu eða slyddu, úrkomulítið lengst af á landinu norðaustan og austan- verðu. Hlýnandi og víða 1-7 stig síðdegis, svalast á Austurlandi. VEÐUR 4     ÖRYGGISMÁL „Þetta er algjör glæfrasigling og með ólíkindum að þeir hafi siglt þessa leið. Það mætti halda að annað skipið hefði ekki verið með sjókort. Það mátti ekkert bregða út af og þá hefðu þeir farið upp í klettana,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Land- helgisgæslu Íslands, um siglingar tveggja erlendra flutningaskipa við landið á síðustu vikum. Hér vísar Georg til siglinga flutningaskipanna Danica White, sem er 1.088 brúttótonn og 67 metra langt, og Wilson Brake, sem er 2.447 brúttótonn og 88 metra langt, frá landinu 21. desember og 6. janúar síðastliðinn. Bæði skipin sýndu, að mati Landhelgisgæsl- unnar, vítavert athæfi. Siglingaleið Danica White yfir Syðra-Hraun, sem er grunn í miðj- um Faxaflóa, telur Landhelgis- gæslan „hreint með ólíkindum miðað við veður og sjólag og verð- ur umrædd áhöfn að getað talist heppin að hafa komist þarna yfir þetta svæði án áfalla“, eins og segir í álitsgerð vegna siglinga skipanna. Varðskipið Týr var á norðurleið undan Reykjanesi 6. janúar og tók þá eftir flutningaskipinu Wilson Brake sem var á suðurleið mjög grunnt undan Stafnesi. Ákveðið var að hafa samband við skipið vegna þess hversu nálægt skipið var landi í mjög vondu veðri. Skip- ið var kallað uppi og bent á að leið þess lægi hættulega nærri landi en skipstjórnarmenn töldu leið sína eðlilega og fóru ekki að til- mælum um að setja stefnuna dýpra. Eðlileg leið fyrir Stafnes er að lágmarki tvær sjómílur undan landi og allt að fimm sjómílum frá landi ef sjólag er slæmt og vindur stendur á land eins og þarna var. Wilson Brake var vel fyrir innan tvær mílur frá landi. Verði skip fyrir vélarbilun, stýr- isbilun eða öðru óhappi þannig að skipið verði stjórnlaust svona nærri landi í álandsvindi er tíminn naumur til að bregðast við og reyna aðstoð. „Viðbragðstími þyrluáhafn- ar er 30 mínútur og flugið tekur svipaðan tíma. Í álandsvindi rekur skip upp í fjöru á mun skemmri tíma og brotnar á skömmum tíma í hrauninu,“ segir Georg Lárusson. Hann segir jafnframt að leiðarlín- ur margra skipa á undanförnum mánuðum sýni að algengt er að flutningaskip sigli of nálægt landi. Í skýrslu nefndar til samgöngu- ráðherra um siglingar skipa við suðvesturströnd Íslands frá jan- úar árið 2001, kemur fram að tíðni ferða flutningaskipa á þessari leið valdi því að hættan á óhappi sé veruleg. - shá / sjá síðu 4 Glæfrasigling stórra flutn- ingaskipa við Ísland algeng Tvö flutningaskip sýndu vítavert athæfi í siglingum við landið nýlega. Mörg tilfelli eru um siglingar of nærri ströndum á undanförnum mánuðum. Gæslan kallar eftir að siglingaleiðir verði færðar fjær landi. O T T F Ó LK M cC A N N VIÐSKIPTI Actavis undirbýr skrán- ingu hlutafjár síns úr krónum í evrur. Tillaga um að stjórn verði heimilað að vinna að undirbúningi breytinganna verður lögð fyrir hluthafafund á næstu vikum. Stjórnendur fyrirtækisins hafa þegar átt fundi með Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráningu. Actavis hefur fært bókhald sitt í evrum frá því árið 2003. Róbert Wessman, forstjóri Actavis, segir breytinguna rökrétt framhald af því. „Okkar tekjur eru 99 prósent í erlendum gjaldmiðlum. Það er óheppilegt að stöðugar sveiflur séu á heildarverðmæti félagsins út af sveiflum á krónunni.“ Actavis þarf ekki að sækja formlega um leyfi fyrir breytingunum til ann- arra en hluthafa sinna, að mati stjórnenda Actavis. Málið snúist fyrst og fremst um tæknilega útfærslu. Gert er ráð fyrir að breytingin geti gengið í gegn um mitt árið. Það sem helst tefur er að Verð- bréfaskráning þarf að taka nýtt greiðslumiðlunarkerfi í gagnið sem getur tekið nokkra mánuði. Þá á eftir að koma í ljós hvort Seðla- banki Íslands verður áfram upp- gjörsaðili félagsins. Hann hefur séð um uppgjör í íslenskum krón- um vegna viðskipta í Kauphöllinni. Ekki er talið ólíklegt að erlendur banki taki það hlutverk að sér. Róbert telur að sú breyting að Actavis skrái hlutafé sitt í evrum muni laða fleiri erlenda fjárfesta að Actavis. Þeir muni ekki lengur þurfa að verja sig gagnvart krón- unni með tilheyrandi kostnaði. Þá muni breytingin einnig koma sér vel fyrir íslenska fjárfesta og hlut- hafa í Actavis. Þeim verði gert kleift að fjármagna sig í auknum mæli í evrum á móti bréfum í sömu mynt. Það sé hagstætt enda vextir í evrum mun lægri en í íslenskum krónum. - hhs / sjá Markaðinn Róbert Wessman segir skráningu hlutafjár í evrum laða að erlenda fjárfesta: Actavis færir hlutafé í evrum VIÐSKIPTI Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna og Straums- Burðaráss Fjárfestingarbanka nam 209 milljörðum í fyrra. Til samanburðar var allur vöruút- flutningur þjóðarinnar frá janúar til desember í fyrra 213 milljarð- ar samkvæmt Hagstofu Íslands. Reiknaður tekjuskattur í ársreikningum bankanna fjögurra nemur rúmum 30 milljörðum króna, eða um 100 þúsund krónum á hvert manns- barn í landinu. Hagnaðurinn nemur um 750 þúsund krónum á hvern Íslending. Meirihluti tekna bankanna kemur nú af erlendri starfsemi og nema heildareignir þeirra 9.000 milljörðum króna sem er hátt í áttföld landsframleiðsla þjóðarinnar. - hh / sjá síðu 6 og Markaðinn Bankahagnaður 209 milljarðar: Slagar í útflutn- ingstekjurnar GRÍÐARLEG VONBRIGÐI Sigfús Sigurðsson liggur örmagna fyrir framan fagnandi Dani en íslenska landsliðið tapaði naumlega fyrir þeim í átta liða úrslitum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi og þurfti að lokum framlengingu til að knýja fram úrslit, 42-41 fyrir Dönum. Íslendingar leika á morgun við Rússa í baráttu um 5. til 8. sæti í mótinu. ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN Glæsileg verðlauna- athöfn í kvöld Sérblað um Íslensku tónlistarverðlaunin FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG LÖGREGLUMÁL Þrír gæsluvarð- haldsfangar struku úr haldi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi. Fangarnir höfðu fyrr um daginn verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudagsins 2. febrúar í Héraðsdómi Norður- lands eystra, vegna gruns um bílþjófnað, innbrot og greiðslu- kortasvik. Í fimm manna hópnum sem upphaflega var handtekinn var fimmtán ára piltur, en ekki er vitað hvort hann var meðal strokufanganna. Máli þeirra tveggja ungmenna sem ekki voru úrskurðuð í varðhald í gær er lokið og hefur þeim verið sleppt úr haldi. Lögreglan á Akureyri varðist allra frétta af strokinu í gær- kvöldi. - kóþ Innbrotagengið á Akureyri: Struku úr haldi lögreglunnar FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.