Fréttablaðið - 31.01.2007, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 31.01.2007, Qupperneq 6
Grétar Már Sigurðs- son, ráðuneytisstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, segist vilja efla og bæta samráð milli forsetaskrif- stofunnar og ráðuneytisins. Hann fundaði með Örnólfi Thorssyni forsetaritara í gær þar sem meg- inumræðuefnið var samstarf embættanna tveggja. Forsetaskrifstofan tilkynnti fyrir viku að forseti Íslands hefði tekið sæti í þróunarráði Indlands. Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, sagði í leiðara um helgina að þar virtist vera um utanríkispólitískt mál að ræða sem utanríkisráðherra hefði átt að kynna utanríkisnefnd Alþing- is. Utanríkisráðherra skuldaði skýringar. „Við fórum yfir verkferla á milli okkar og vorum báðir sam- mála um að það bæri að efla og bæta samráð á milli embættanna tveggja. Við ákváðum jafnframt að hittast eftir viku til þess að ræða framhaldið,“ segir Grétar. Halldór Blöndal, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að forseti Íslands eigi ekki að taka að sér opinber trúnaðar- störf fyrir önnur ríki og eigi að gæta hófs í metnaði sínum. Hann telur koma til greina að utanrík- ismálanefnd Alþingis ræði setu forsetans í þróunarráði Indlands. H ri n g d u n ú n a !! ! 4 2 1 4 0 2 5 tölvuskóli suðurnesja Túngötu 1 Reykjanesbær Sími 421 4025 www.tss.is skoli@tss.is Tölvunámskeið fyrir foreldra Haldið í samstarfi við: Þetta námskeið er ætlað fyrir foreldra til þess að tryggja öryggi barna og unglinga. Á því er farið yfir ýmsar leiðir til að fylgjast með hvað börnin eru að gera í tölvunni og á netinu, sett eru upp forrit og farið yfir leiðir til að fyrirbyggja ranga notkun og farið yfir ýmsa fræðslu fyrir börn varðandi hættur á netinu og hvernig best er að fræða börn á hættunum. Námskeiðið innifelur meðal annars: Hvernig þú getur stjórnað hversu mikinn tíma börnin mega vera í tölvunni. Hvernig þú getur stjórnað tölvu- og netnotkun. Hvernig þú getur fylgst með hvaða vefsíður eru skoðaðar með ýmsum leiðum. Hvernig þú getur fylgst með notkun á skilaboðaforritum eins og messenger. Hvernig þú getur komið í veg fyrir uppsetningu á forritum án þín leyfis. Hvernig þú getur læst aðgangi og komið í veg fyrir að börnin skoði þín gögn. Þá verður farið yfir gerð notkunarsamnings, þ.e. þar sem foreldrar og börn eru sammála um notkun á tölvunni. info .isSec Photoshop grunnur Adobe Photoshop er yfirburðaforrit til alhliða myndvinnslu, myndlagfæringa, litleiðréttinga og myndasamsetningar fyrir skjá og prentmiðla, skapandi myndvinnslu og grafískrar hönnunar. Á þessu námskeiði er farið í helstu grunnþætti, áhöld tæki og valmyndir forritsins svo þátttakendur öðlist skilning á myndvinnslu í tölvum og geti orðið sjálfbjarga við helstu aðgerðir í forritinu sem almennir notendur þurfa að kunna skil á. Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna tölvuþekkingu. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18 - 21.30. Kennsla hefst 6. febrúar og lýkur 15. febrúar Lengd 21 std. Verð kr. 24.000,- FAXAFEN 10 108 REYKJAVÍK GLERÁRGATA 36 600 AKUREYRI WWW.TSK.IS SKOLI@TSK.IS SÍMI: 544 2210 Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður www.lyfja.is - Lifið heil SKIPTIR ÞÚ REGLULEGA UM TANNBURSTA? ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 3 59 11 0 1/ 07 Nokkur erlend fyrir- tæki hafa sýnt áhuga á olíuleit við Ísland og aflað sér upplýsinga þar um í iðnaðarráðuneytinu og hjá Orkustofnun. Þá hafa erlendar sendinefndir frá Indlandi, Kína og Angóla sýnt áhuga á möguleikum til olíuleitar og -vinnslu í íslenskri lögsögu. Þetta kemur fram í svari iðnað- arráðherra við fyrirspurn Guð- mundar Hallvarðssonar Sjálf- stæðisflokki. Ekki hefur verið sótt um leyfi til olíu- og gasleitar á síðustu tveimur árum en síðast var slíkt leyfi veitt árið 2002 til leitar á svo- kölluðu Drekasvæði, suður af Jan Mayen-hrygg. Nokkrar rannsóknir og athug- anir hafa verið gerðar á land- grunni Norðurlands og segir í svari ráðherra að þótt ekki hafi fundist nýtanleg auðlind hafi að líkindum verið sýnt fram á að gas- og jafnvel olíumyndandi ferli geti fundist úti fyrir Tjörnesi. Þá kemur fram að nú á fyrstu mánuðum ársins sé stefnt að því að birta skýrslu um olíuleitarmál á Jan Mayen-hryggnum og í kjöl- far þess verði tekin ákvörðun um hvort hefja eigi ferli fyrir útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu olíu á svæðinu. Áhugi á olíuleit við Ísland Hagnaður Straums- Burðaráss Fjárfestingarbanka fór langt fram úr væntingum greiningardeilda bankanna. Hagnaður síðasta ársfjórðungs nam 24 milljörðum króna, en meðalspá greiningardeilda fyrir fjórðunginn nam ríflega átta milljörðum króna. Árshagnaður Straums-Burðaráss nam því ríf- lega 45 milljörðum króna eftir skatta og ýtti heildarhagnaði banka sem birt hafa uppgjör yfir 200 milljarða króna. Hagnaður bankans árið 2005 nam 26,7 milljörðum og er hagn- aðaraukningin 69 prósent milli ára. Arðsemi eiginfjár bankans nam 42 prósentum sem er afar há ávöxtun eiginfjár, sérstaklega þegar litið er til þess að eiginfjár- hlutfall bankans er hátt eða 37,59 prósent á CAD grunni. Eiginfjár- hlutfall viðskiptabankanna er um 15 prósent sem er hátt fyrir þeirra starfsemi. Möguleikar bankans til frekari vaxtar eru því verulegir, án þess að sækja þurfi meira eigið fé. Vöxtur í gegnum kaup erlendis verða því að teljast líklegri en ekki. Friðrik Jóhannsson, forstjóri bankans, segist afar ánægður með afkomuna. „Þetta er glæsi- leg afkoma á ári sem hefur ein- kennst af arðsömum vexti, útrás og uppbyggingu innviða.“ Straumur-Burðarás hafði verulegar tekjur af óskráðum eignum á fjórðungnum, en hagn- aður af þeim nam 7,4 milljörðum. Í því er söluhagnaður af CRa símafyrirtæki sem Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarfor- maður Straums, fór fyrir sölu á. Auk þess nýtur bankinn gengis- hagnaðar á fjórðungnum af fjár- festingum sínum, en bankinn hefur fjárfest talsvert á mörkuð- um á Norðurlöndum. Friðrik segir ánægjulegt að þóknunartekjur bankans af fyrir- tækjaverkefnum hafa fjórfaldast á milli ára og segir stefnuna setta á að auka þær ásamt því að auka vaxtatekjur bankans. „Við munum eftir sem áður fjárfesta á mörkuðum sem við störfum á.“ Þar hafa Norðurlönd verið mest áberandi, en fjárfesting á íslensk- um hlutabréfamarkaði nemur nú einungis tíund af eign bankans í skráðum bréfum. Hagnaður Straums langt umfram spár Hagnaður Straums-Burðaráss nam 45,2 milljörðum króna í fyrra. Hagnaður síð- asta ársfjórðungs var 24 milljarðar sem er þrefalt meira en spár gerðu ráð fyrir. Finnst þér að prestar eigi að kynna þjónustu sína í skólastof- um? Ætlar þú að fá þér Windows Vista á næstunni? Þetta er glæsileg afkoma á ári sem hefur ein- kennst af arðsömum vexti, útrás og uppbyggingu innviða. Hu Jintao, forseti Kína, hóf tólf daga heimsókn sína til Afríku í gær þar sem hann mun ferðast til átta ríkja. För Jintao markast af auknum áhrifum Kína í Afríku, ásókn í eldsneyti til að kynda undir miklum hagvexti í Kína og að fylgja eftir loforðum um aðstoð til Afríkuríkja. Sameinuðu þjóðirnar hafa beðið Jintao um að beita áhrifum sínum í Súdan til að þrýsta á um lausn á ófremdarástandinu í Darfurhér- aði. Kína hefur staðið gegn tilraunum SÞ til að þvinga stjórnvöld í Súdan til að leyfa friðargæslulið í landinu. Vonir standa til að Kína sé að breyta um stefnu. Kínaforseti til átta Afríkulanda Lögreglan í Georgíu- ríki Bandaríkjanna leitar hátt og lágt að innbrotsþjófi sem brýst inn í hús með því að bora sig í gegnum veggi þeirra. Með því móti kemst hann hjá því að setja viðvörunarkerfi í gang, sem oftast eru tengd hurðum og gluggum. Þetta kemur fram á vef fréttastofunnar ABC. Yfir tíu innbrot hafa verið tilkynnt til lögreglu þar sem farið var inn með svipaðri aðferð. Fulltrúi lögreglunnar segist aldrei hafa séð annað eins. Yfirleitt brjótist menn bara inn um glugga. Borar sig inn í gegnum veggi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.