Fréttablaðið - 31.01.2007, Page 13
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra
hefur undirritað fríverslunarsamning milli EFTA-
ríkjanna og Egyptalands. Samningurinn nær fyrst og
fremst til vöruviðskipta.
Egyptar fella niður tolla á vörur aðrar en landbún-
aðarvörur í áföngum. Samningurinn felur í sér toll-
kvóta fyrir mikilvægustu sjávarafurðir Íslendinga
sem stækka eftir ákveðnu fyrirkomulagi sem leiðir
til fullrar fríverslunar eftir sex ár.
Tollar á landbúnaðarvörum eru lækkaðir eða felld-
ir niður. Á móti fær Ísland markaðsaðgang fyrir lif-
andi hross og 2.000 tonna tollkvóta fyrir lambakjöt.
Ísland veitir tollfrjálsan aðgang fyrir ávexti, græn-
meti, plöntur og unnar landbúnaðarvörur.
„Þessi samningur hefur ekki mikla þýðingu fyrir
okkur því að við flytjum ekki mikið inn frá Egypta-
landi nema kannski döðlur og fíkjur en við fögnum
öllum fríverslunarsamningum,“ segir Sigurður Þ.
Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og
þjónustu, SVÞ.
„Þetta er kannski ekki mikilvægasti samningur
Íslendinga sem EFTA-þjóð en það er alltaf mikils
virði að ná svona fríverslunarsamningum. Þar sem
fjórar þjóðir eru í EFTA er mismunandi hvaða samn-
ingar eru mikilvægastir fyrir hverja þjóð. Við erum
búin að gera tuttugu fríverslunarsamninga og ýmis-
legt í farvatninu,“ segir Valgerður Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra.
Hefja á
undirbúning að „vatnaparadís“ og
sundlaug í Úlfarsárdal. Tillaga
þessa efnis frá framsóknarmönn-
um og sjálfstæðismönnum í
Íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur var samþykkt
samhljóða eins og tillaga þeirra
um að óska eftir viðræðum við
menntamálaráðherra, Sundsam-
band Íslands, Íþrótta- og Ólympíu-
samband Íslands og ÍBR um
samning um rekstur Sundmið-
stöðvar Íslands og Þjóðar-
leikvangs í sundi í Laugardalslaug.
Strax á að hefjast handa við
skipulagningu, hönnun og fram-
kvæmdaáætlun fyrir vatnapara-
dísina í Úlfársárdal.
Vatnaparadís
í Úlfarsárdal
Þrír þingmenn
Samfylkingarinnar, Össur
Skarphéðinsson, Margrét Frí-
mannsdóttir og Rannveig Guð-
mundsdóttir,
leggja til að
Alþingi komi
saman 15.
september ár
hvert og að
þingstörfum ljúki
15. júní.
Í greinargerð
frumvarpsins –
sem nú er lagt
fram þriðja sinni – segir að með
breytingunni yrði starfstími
Alþingis færður í svipað horf og
gildi á þjóðþingum annarra
Norðurlanda. Breytingin miðar
ekki að fjölgun eða lengingu
þingfunda heldur að gefa þinginu
rýmri tíma til að fjalla um mál,
einkum í nefndum þess.
Þingið starfi
í níu mánuði
Nýttu þér þessi einstöku kjör.
Sæktu um DMK á spron.is
Til 1. mars nk.
fá nýir viðskiptavinirí DMK gjafabréf fyrirtvo í Borgarleikhúsinu.
A
RG
U
S
/
07
-0
02
1
Stundum geta komið upp þær aðstæður að þörf er á láni til
skamms tíma. Þá kemur sér vel að eiga DMK Debetkort með
kreditheimild* á 0% vöxtum.
Aðrir þættir
DMK þjónustunnar eru:
• DMK Yfirdráttarheimild
• DMK Tiltektarlán
• DMK Léttlán
• DMK 90% íbúðalán
• DMK Ráðgjöf
• DMK Reglulegur sparnaður
• DMK Tilboð
Kreditheimild með 0% vöxtum
og engum kostnaði í DMK!
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is
* skv. útlánareglum SPRON
Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks á Álftanesi sögðust á
síðasta bæjarstjórnarfundi vera
andvígir gerð nýs deiliskipulags á
svæðinu í kring um Miðskóga.
„Langstærsti hluti svæðisins er
þegar byggður og eini tilgangur-
inn virðist vera að koma lóðinni
Miðskógar 8 út af deiliskipulagi,“
bókuðu sjálfstæðismenn og vísa
þar til fullyrðinga um að forða eigi
Kristjáni Sveinbjörnssyni, forseta
bæjarstjórnar, frá því að byggt
verði á sjávarlóð framan við hús
hans. Fulltrúar Álftaneshreyfing-
arinnar sögðu sjálfstæðismenn
hafa verið búna að samþykkja
endurskoðun deiliskipulagsins.
Tilgangur enn
dreginn í efa
Þuríður Backman,
þingmaður VG, tók tvisvar til
máls í utandagskrárumræðum
um efnahagsmál á Alþingi í gær.
Er þetta ekki einsdæmi en þó
harla óvenjulegt.
VG hafði rétt á að flytja tvær
ræður við umræðurnar og flutti
Þuríður þær báðar. „Við vorum
bara tvær í salnum, ég og Lilja
Rafney Magnúsdóttir, sem var
nýkomin í salinn og hafði því ekki
tök á að undirbúa sig,“ sagði
Þuríður.
Hún kveðst ekki áður hafa
þurft að tala í tvígang við sömu
utandagskrárumræðuna en orðið
vitni að slíku.
Talaði í tvígang
utan dagskrár