Fréttablaðið - 31.01.2007, Síða 18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Afhommun möguleg Í nauðungarvist
Ekki
tímabært
Hætt að kalla mig perra á götu
Á dögunum setti sænska
Aftonbladet saman lista yfir
tíu bestu jaðaríþróttamenn
heims. Snjóbrettakappinn
Eiríkur Helgason frá Ak-
ureyri hafnaði í sjötta sæti
listans.
Eiríkur, eða Eiki eins og hann er
jafnan kallaður, hefur stundað
snjóbrettaíþróttina árum saman.
Fyrst í Hlíðarfjalli á Akureyri og
nú í Svíþjóð þar sem hann stundar
nám í menntaskóla með snjó-
brettalínu. Hann var að vonum
ánægður með að komast á lista
Aftonblaðsins en var samt hóg-
værðin uppmáluð þegar Frétta-
blaðið sló á þráðinn til Svíþjóðar.
„Það er náttúrlega mikill heiður
að komast á þennan lista og flott
að hafa nafnið sitt þar með ekki
ómerkilegri mönnum en Shaun
White,“ segir Eiríkur en listinn
var unninn í samstarfi við fjöl-
marga jaðarsportljósmyndara.
Allur frítími Eiríks fer í brettin
enda stefnir kappinn ótrauður á
atvinnumennsku í bransanum.
„Það er auðvitað draumurinn að
geta stundað þetta á fullu í fram-
tíðinni,“ segir Eiríkur og fræðir
því næst fáfróðan blaðamanninn
um að snjóbrettabransinn sé mun
stærri en Íslendingar geri sér
almennt grein fyrir. „Fólk veit
ekki mikið um þetta heima á
Íslandi og það er mjög mikill
munur á Íslandi og Svíþjóð þegar
kemur að snjóbrettaíþróttinni.
Þeir sem eru í atvinnumennsku
keppa á mótum og koma fram í
snjóbrettamyndböndnum og þess
háttar,“ segir Eiríkur. Hann hefur
þegar komið fram í nokkrum snjó-
brettamyndböndum og er einmitt
þessa dagana að vinna að tökum
fyrir tvö myndbönd, öðru fyrir
fyrirtækið Rome Snowbords.
Brögðin sem Eiríkur leikur á
brettinu eru ekki fyrir hvern sem
er að leika eftir. „Ég held að síð-
asti vetur hafi verið fyrsta árið,
frá því ég byrjaði, sem ég kemst í
gegnum án þess að slasa mig.
Maður venst þessu og lærir að
bjarga sér út úr vandræðum. Þetta
er auðvitað hættulegt og það getur
alltaf eitthvað klikkað,“ segir
Eiríkur, sem lætur sér ekki nægja
að renna sér í snjónum – handrið,
húsþök og grösugar brekkur verða
stundum fyrir valinu. „Maður er
alltaf að prófa eitthvað nýtt og
reynir að gera betur en næsti
maður. Það er alltaf hægt að púsla
saman brögðum og ganga aðeins
lengra,“ segir Eiríkur.
Í hópi þeirra bestu í heimi
F ISK ISAGA Hamraborg 14a / Sk ipho l t i 70 / Höfðabakka 1 / Nesveg i 100 (Vegamótum) / Sund laugaveg i 12 / Háa le i t i sbrau t 58–60 / f i sk i saga . i s
Ævintýralegar fiskbúðir
399 kr./kg
Rauðmagi
(hreinsaður)
Frábært tilboð