Fréttablaðið - 31.01.2007, Síða 27
Nauðsynlegt er að bílar séu
vel ryðvarðir hérlendis vegna
sérstakra aðstæðna.
„Við sérhæfum okkur í að ryð-
verja undirvagna bifreiða, það er
að segja burðarvirkið, holfrúm og
inn í hurðar,“ segir Baldur Jóns-
son, hjá Bílahöllinni Bílaryðvörn,
á Bíldshöfða 5.
„Við notum sænskt efni á und-
irvagninn sem kallast Dinitrol,“
útskýrir hann. „Það hefur verið
nýtt í nokkurn tíma og fengið góða
einkunn, enda efnin í stöðugri
þróun. Misjafnt er þó eftir ryð-
varnarstöðvum hvers lags ryð-
vörn er notuð. Annars konar efni
frá sama framleiðanda er síðan
sprautað inn á hurðir, holrúm og
sílsa. Svo bætum aukalega við efni
á botninn sem eykur á endingu
ryðvarnarinnar og er hljóðein-
angrandi.“
Ryðvarnarferilinn tekur í það
heila rúman sólarhring. Fyrst er
botn bifreiðarinnar hreinsaður vel
með háþrýstidælu á ryðvarnar-
stöðinni. Hún er þvínæst látin
þorna yfir nóttina. Daginn eftir er
síðan ryðvörnin borin á bifreiðina.
Að svo bún má keyra bílinn eftir
nokkra tíma en það getur tekið
nokkra daga fyrir vörnina að ná
fullum styrk.
„Gefið er út ábyrgðar skírteini
á ryðvörnina fyrir nýja bíla sem
gildir í átta ár,“ segir Baldur.
„Hana þarf að endurnýja á um það
bil tveggja ára fresti fyrir undir-
vagninn, en fjögurra ára fresti
fyrir holrúmin. Ástæðan er sú að
efnin á botninum endast styttra en
efnin á holrúmunum vegna
álags.“
Að sögn Baldurs er á bilinu 80-
90 prósent þeirra bíla sem koma
hingað til lands sérstaklega ryð-
varðir miðað við ríkjandi aðstæð-
ur. „Einhverjar tegundir hafa ekki
verið ryðvarðar í byrjun. Þá er
treyst á verksmiðjuryðvörn fram-
leiðanda, sem miðar yfirleitt við
meginland Evrópu en nægir þá
ekki fyrir íslenskar aðstæður. Þar
fer nefnilega ekki nærri eins
mikið fyrir seltunni og drullunni
sem hér eru allsráðandi á vet-
urna.“
Baldur segir tilkynningu sem
segi til um ryðvörn yfirleitt fylgja
með í bílakaupum. „Umboðin láta
annað hvort merkja bílana eða til-
kynna kaupanda hvort bíllinn sé
ryðvarinn. En þótt bifreiðin sé
þegar ryðvarin er ekki þar með
sagt að ekki þurfi að ryðverja
hana eftir það. Bílar þurfa að vera
vel ryðvarðir, sérstaklega á þess-
um árstíma þar sem selta og drulla
eru mikil og eru náttúrulega
algjört eitur fyrir stál. Um leið og
sár eru komin á undirlag eða lakk
bílsins sest saltdrullan í þau. Segja
má að verið sé að bjóða hættunni
heim, ef bíllinn er ekki ryðvarð-
ur.“
Baldur segir ennfremur máli
skipta að ryðverja bílinn reglu-
lega. „Misjafnt er hversu oft þarf
að gera það. Það fer meðal annars
eftir notkun bifreiðarinnar. Hvar
bíllinn hefur verið ekinn og hversu
mikið hann er notaður. Til að
ganga úr skugga um hvort endur-
nýja þurfi ryðvörn, er tilvalið að
láta skoða botninn næst þegar
farið er með bílinn í almenna skoð-
un.
Við mælum líka með að fólk sé
duglegt að bóna bílana sína eða
láti húða þá með sérstakri húð, til
dæmis tefflon-húð, til að vernda
lakkið. Það er nefnilega alltaf
ákveðin hætta á að steinköst brjóta
upp úr lakkinnu. Þá er betra að
snúa sér til bónstöðva, þar sem
ryðvarnarstöðvar einblína meira
á að ryðverja undirvagna bif-
reiða.“
Regluleg ryðvörn nauðsynleg
- Það borgar sig að nota það besta w w w . f a l k i n n . i s
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.2
9
7
Bílavarahlutir
Ásþétti
Hjólalegusett
Hjöruliðir
Viftu- og tímareimar
Kúlu- og rúllulegur
Hemlahlutir
Kúluliðir
Keilulegur
Kúplingar og höggdeyfar