Fréttablaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 29
Shelby Cobra sportbíll seldist
á 5,5 milljónir dala á uppboði
sem er hæsta verð fyrir banda-
rískan bíl á uppboði.
800 hestafla Shelby Cobra var boð-
inn upp í Scottsdale í Arizona-ríki
í Bandaríkjunum á dögunum. Bíll-
inn var eitt sinn í eigu hönnuðar
hans Carroll Shelby. Bíllinn seld-
ist á 5,5 milljónir dala sem er met
fyrir bandarískan bíl. Fullt var út
úr dyrum þegar sportbíllinn af
árgerðinni 1966 var boðinn upp.
Carroll Shelby er goðsögn í
bílaheiminum. Hann hefur átt far-
sælan feril sem ökumaður, liðs-
stjóri, framleiðandi og hugsjóna-
maður.
Snemma á ferlinum gat Shelby sér
góðs orðs sem ökuþór. Til að
mynda náði hann að slá hraðamet
á landi á Bonneville árið 1954 og
sigraði í 24 tíma Le Mans kapp-
akstrinum árið 1959 ásamt félaga
sínum Roy Salvadori. Hann starf-
aði einnig sem liðsstjóri og var því
hluti af sigri Ford GT á Le Mans.
Þegar heilsan varð til þess að
hann hætti beinum afskiptum af
kappakstri árið 1960 klifraði Shel-
by úr ökumannssætinu og gerðist
hönnuður. Draumur hans var að
búa til kappakstursbíl með léttum
evrópskum undirvagni og banda-
rískri V8 vél. Hugmyndin varð að
veruleika með Shelby Cobra, sem
er af mörgum álitinn einn besti
sportbíll heims.
Snákurinn selst á 5,5 milljónir dala á uppboði
Ný sería af Top Gear hófst á
BBC síðasta sunnudag. Fyrsti
þátturinn sló fyrra met í áhorfi.
Top Gear er einn vinsælasti bíla-
þáttur í heimi. Vegna slyss Richard
Hammonds var framtíð þáttanna
hins vegar óviss um tíma en nú
hefur þetta slys skilað mesta
áhorfi á þáttinn sem mælst hefur.
Í fyrsta þætti nýjustu seríunn-
ar, sem frumsýndur var síðasta
sunnudag, var slysið sýnt og
útskýrt. Alls 8,3 milljónir áhorf-
enda horfðu á þáttinn, en það eru
2,8 milljónum fleiri en nokkurn
tíma hafa horft á þáttinn.
Þrátt fyrir þetta kemst þáttur-
inn ekki með tærnar þar sem vin-
sælustu þættir sögunnar hafa
hælana. Metið eiga auðvitað
Bandaríkjamenn, en 106 milljónir
manna horfðu á lokaþátt
M*A*S*H.
Nýtt áhorf-
endamet Eigum til örfáa nýja dísel
pallbíla án hraðatakmarkara!
Sýnum verðlaunabílinn frá
GM Chevrolet Silverado 1500
Valinn Truck of the year af MotorTrend
Frábær hönnun
Meiri dráttargeta
V8 vél 5,3L sem skiptir yfir í V4 undir litlu álagi
315 hestöfl
Eyðsla frá einungis 10,51 lítar í langkeyrslu
Spól- og skriðvörn
Ekki hraðatakmarkari
Þarf ekki meirapróf
verslun
verkstæði
sérpantanir
smurstöð.