Fréttablaðið - 31.01.2007, Page 30
Catherine McCall heldur
erindi um heimspekilegt sam-
ræðusamfélag í skólum.
Föstudaginn 2. febrúar mun Cath-
erine McCall halda erindi á vegum
Heimspekistofnunar. Erindið,
sem hún kallar „Heimspekilegt
samræðusamfélag í skólum:
Kenningar og ástundun“, byrjar
klukkan 16.00 í stofu 313 í Aðal-
byggingu Háskóla Íslands og fer
það fram á ensku. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Í erindi sínu mun Catherine
McCall lýsa heimspekilegum und-
irstöðum aðferðafræði hins heim-
spekilega samræðusamfélags
(HS), skýra ástundun HS, ræða
leiðir og listina við að koma á
heimspekilegu samræðusamfé-
lagi og sýna myndefni með börn-
um og fullorðnum sem taka þátt í
slíkum samræðum. Dr. Catherine
McCall er forseti samtakanna
Stichting SOPHIA: The European
Foundation for doing Philosophy
with Children, framkvæmdastjóri
EPIC og heimspekiráðgjafi. Hún
er menntuð í heimspeki og sál-
fræði frá Trinity-háskóla í Dublin,
UWIST Wales og Manchester-
háskóla en þess má einnig geta að
McCall verður með námskeið um
heimspeki í skólum á vegum End-
urmenntunar nú um helgina, 3. og
4. febrúar.
Kristbjörg Elín Kristmunds-
dóttir rekur blómadropaskóla
og jógaskóla sem hún segir að
fari vel saman.
Í blómadropaskóla Kristbjargar
læra nemendurnir fyrst og fremst
að þekkja jurtir og hvernig þær
virka sem blómadropar að sögn
Kristbjargar. „Ég kenni líka
hvernig jurtirnar geta hjálpað
fólki með alls konar líðan og
hvernig á að velja dropa fyrir
hvern og einn,“ segir hún.
Kristbjörg fer af stað með nám-
skeið einu sinni til tvisvar sinnum
á ári og næsta námskeið byrjar
núna í febrúar. Hvert námskeið er
þrír til fjórir mánuðir og allir
nemendurnir þurfa að vera með
nokkra skjólstæðinga sem þeir
taka í blómadropameðferð meðan
á náminu stendur. „Nemendurnir
byrja oftast á að nota blómadrop-
ana á börnin sín, sjálfa sig og fólk-
ið sitt en síðan þurfa þeir að taka
að minnsta kosti sjö skjólstæðinga
í meðferð sem þeir þekkja ekki
náið og skila skýrslum um með-
ferðina sem ég fer yfir.“
Blómadropana fá nemendurnir
hjá Kristbjörgu en hún býr þá til
sjálf. „Ég kynntist blómadropum
fyrir hátt í þrjátíu árum síðan og
fann hvað þeir gerðu mér gott. Þá
var hvergi hægt að læra neitt um
blómadropa þannig að ég reyndi
að ná mér í þær bækur sem ég gat
og notaði erlenda blómadropa sem
ég flutti inn sjálf. Svo var bannað
að flytja inn dropa því ríkið hafði
einkaleyfi á innflutningi á öllu
sem innhélt áfengi. Ég og vinkon-
ur mínar sem voru líka að nota
blómadropa fórum því að velta því
fyrir okkur hvort að við gætum
ekki búið til dropa úr íslenskum
jurtum.“
Til að byrja með reyndi Krist-
björg að nota sömu jurtir og voru
notaðar í breska blómadropasett-
inu sem hún hafði verið með. „Á
Hallormsstað fann ég til dæmis
lerki sem var af réttri tegund en
þegar ég bjó til dropa úr því varð
það miklu kraftmeira og betra en
lerkið sem ég hafði flutt inn. Þá
fór ég prófa aðrar jurtir í staðinn
fyrir þessar ensku jurtir og nú er
ég orðin mjög fljót að átta mig á
virkni hverrar jurtar fyrir sig. Í
raun og veru kom það sér bara
vel að geta ekki flutt inn erlenda
dropa því þá varð ég að læra að
bjarga mér með íslenskar jurt-
ir.“
Blómadropar eru venjulega
teknir inn en að sögn Kristbjargar
er líka hægt að bera þá á sig þó að
það sé sjaldgæfara. „Blómadrop-
arnir fara ekki beint inn á líkam-
ann heldur ráðast að rót hins raun-
verulega vanda. Þó að tvær
manneskjur séu með magasár
gætu þær því þurft ólíka dropa.
Magasár annarrar manneskjunn-
ar gæti verið sprottið af kvíða en
hinnar af stressi og álagi í vinn-
unni. Fyrri manneskjan fær þá
blómadropa sem vinna gegn kvíða
en sú seinni dropa sem vinna gegn
stressi. Það eru ekki einkennin
sem við erum að meðhöndla, við
látum lækna um það, heldur orsak-
irnar.“
Miklu máli skiptir að þeir sem
meðhöndla aðra með blómadrop-
um séu í góðu jafnvægi sjálfir að
sögn Kristbjargar.
„Ég fer fram á að allir nemend-
urnir ástundi einhverja ræktunar-
leið meðan á náminu stendur eins
og að hugleiða tvisvar á dag. Ef
maður ætlar að geta hjálpað
öðrum þarf maður fyrst að geta
hjálpað sjálfum sér. Það er svona
grundvallaratriði að kyrra sinn
eigin huga, læra að þekkja sjálfan
sig, læra að hemja sitt lægra eðli
og lifa í hærri orku til þess að geta
verið góð fyrirmynd og hjálpað
öðrum.“
Ráðist að rót vandansHeimspekilegt
samræðusamfélag