Fréttablaðið - 31.01.2007, Page 31
Sigurður Pálmason tónlistarmað-
ur er einstaklega heillaður af
hákörlum. Hann hefur synt þeim
til samlætis úti um allan heim, en
núna er stefnan tekin á ívið
rólegri mið við strendur Íslands.
„Ég starfaði sem flugþjónn og
dvaldi þess vegna langtímum í
Sádi-Arabíu. Þar var lítið við að
vera svo þegar ég og félagi minn
lentum á köfunarnámskeiði fyrir
tilviljun var ekki aftur snúið,“
segir Sigurður brosandi.
Næstu tvö árin stunduðu þeir
félagarnir köfun af krafti og tóku
flest öll þau próf sem hægt er að
taka innan íþróttarinnar.
Hann lýsir tímanum í Sádi-
Arabíu sem miklu ævintýri enda
heimur sem fáir hafa séð. „Kóral-
rifin í Sádi-Arabíu eru nánast
ósnert. Ferðamönnum er ekki
hleypt inn í landið og þess vegna
fáir sem hafa upplifað þessa
dýrð,“ segir Sigurður.
Sigurður hefur mikinn áhuga á
hákörlum og á ferðum sínum neð-
ansjávar við strendur Taílands, á
Bahamaeyjum, Kúbu og við Dóm-
iníska lýðveldið hefur hann oftar
en einu sinni komist í návígi við
þá. „Hákarlar eru einstaklega
heillandi skepnur og nálægt þeim
finnur maður verulega fyrir
smæð sinni,“ segir Sigurður sem
segir jafnframt flesta hákarla
vera meinlausa en að kafarar
þurfi þó að sýna aðgát. „Það er
nauðsynlegt að fara rólega um,
ekki veifa útlimum eða hreyfa sig
hratt í kringum þá,“ og bætir því
við að aðeins örfáir hákarlar séu
svokallaðir mannætuhákarlar.
„Flestir þeirra sem ráðast á fólk
komast að því að maðurinn er vit-
laus fæða en þegar þeir reyna að
losa bitið slasast fólk oftast illa, “
segir Sigurður.
Sjálfur hefur hann aldrei verið
hræddur í fylgd hákarlanna.
Nema einu sinni „Ég var búinn að
skrifa upp á samning þess efnis
að ég tæki fulla ábyrgð á ferðum
mínum þegar ég komst í tæri við
flokk af karabískum rifhákörlum
og sleggjuhákörlum á Bahama-
eyjum. Þá varð ég virkilega
hræddur, en þetta fór þó allt vel
að lokum,“ segir Sigurður bros-
andi.
Tónlistin hefur átt hug Sigurð-
ar allan og nýlega sendi hann frá
sér frumraunina Stories. Nú
hefur hann hins vegar dustað
rykið af súrefnsikútunum og
stefnir neðansjávar ásamt félög-
um sínum í Köfunarskólanum.
„Ég hlakka óhemju mikið til að
byrja kafa upp á nýtt og það verð-
ur án efa mikið ævintýri að kanna
Ísland neðansjávar,“ segir Sig-
urður.
Nánar um köfun: www.kofun-
arskolinn.is Nánar um Sigga:
www.siggipalma.com
Syndir með hákörlum
Í London er fjöldinn allur af
fallegum testofum sem bjóða
upp á gamla góða síðdegisteið.
Teið hefur alltaf verið í uppáhaldi
hjá Bretunum. Í London úir og
grúir af fallegum testofum sem
bjóða upp á óteljandi tegundir af
tei og meðlæti, gjarnan skonsur,
kökur og bollur sem er gott að
drekka með teinu.
Oftast fá Bretarnir sér svart te
með mjólk og sykri, en færst hefur
í vöxt að þeir fái sér ýmis græn te
og ávaxtate án mjólkur og sykurs.
Sjá nánari upplýsingar hjá
breska teráðinu: www. tea.co.uk.
Breska tesafnið:
bramahmuseum.
co.uk
London býður í te
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
19.990
Fljótasiglingar - Klettaklifur
Hestasýningar - Gönguferðir - Gisting
Veitingar - Ratleikir - Hestaleiga
Hafið samband og við gerum tilboð
Verið velkomin! bakkaflot@islandia.is
Sími 453-8245 & 899-8245 • Ferðaþjónustan Bakkaflöt
560 Varmahlíð, Skagafirði – www.bakkaflot.is
Skólahópar!