Fréttablaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 40
16 { íslensku tónlistarverðlaunin } Aðila, sem fenginn yrði til að skrifa eins konar yfirlitsgrein um „fjölbreytta tónlist“ á árinu 2006, yrði vandi á höndum. Nær ómögulegt væri að súmmera upp í eina þægilega niðurstöðu þá gríðarlega fjölbreyttu tónlist sem rúmast innan flokksins. Kannski engin furða, flokkurinn heitir jú „fjölbreytt tónlist“. Til að byrja með gæti aðilinn af gömlum vana sett sig í þjóðleg- ar stellingar, eilítið rembingslegur og íbygginn eins og hann væri á leið í framboð. Talað um hvað við Íslendingar erum frábærlega frjó- ir – miðað við höfðatölu – að hér hreinlega renni árlega á markað- inn tónlist að gæðum og magni sem jafnast fyllilega á við árs- framleiðslu milljónaþjóða. Þegar þessi fullyrðing væri komin fram gæti aðilinn sagt sem svo að árið í fyrra hefði auðvitað ekki verið nein undantekning á þessari æðislegu grósku og svaka- lega krafti sem einkennir tónlist- arlífið. Því auðvitað kom afskaplega mikið út af góðri tónlist í fyrra og í raun er bara brot af henni tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Það fagfólk sem situr í tilnefn- ingarhópunum er ekki öfundsvert af því að þurfa að skera niður af hlaðborðinu. Frystitogarar íslenska popp- meiksins lágu við festar. Ekkert nýtt kom frá Björk, Sigur Rós eða múm. Minni skip fengu því pláss til að láta ljós sín skína á miðun- um. Ef einhverja regnhlíf má finna yfir árið – einhverja súmmeringu – þá má helst segja að árið 2006 hafi verið ár nýliðanna. Nýliðar með fyrstu plötur vöktu athygli og slógu í gegn. Alltaf er fengur í nýjum kvenröddum í kór poppsins og Lovísa Lay Low og Hafdís Huld komu sterkar þar inn. Lay Low alveg glæný upp úr kass- anum, en Hafdís Huld spriklandi fersk eftir æskubömmera með GusGus. Einnig spratt stórtalent- inn Pétur Ben fullskapaður fram með frábæra plötu og rokksveit- inni Reykjavík! héldu engin bönd á magnaðri plötu. Meðan önnur eins nýliðun kemur fram á hverju ári þarf ekki að örvænta um fram- tíðina. Fáir bransar eru eins uppteknir af nýjabruminu og tónlistarbrans- inn. Má jafnvel tala um nýja- brumsdýrkun. Þeim sem koma nýir inn er veitt forskot, þeim hampað um skeið, en síðan tekur við þrautin þyngri að halda rétt á spöðunum og hamra járnið. Aukið aðgengi að tónlist á netinu gerir það að verkum að þeir sem fylgj- ast ákafast með eru svo mikið með puttana á púlsinum að púlsinn er varla byrjaður að slá fyrr en þeir eru farnir að leita eftir enn nýrri púlsi. Nýjabrumsdýrkun hefur líka sitthvað með sjónvarpsþætti eins og Pop Idol og X-factor að gera. Þar er stanslaus krafa um nýja talenta, sem síðan er hent og skipt út fyrir enn nýrri að ári. Allt gengur út á að vera „fyrstur með fréttirnar“. Fátt er því eins erfitt og að vera tónlistamaður með sína aðra plötu. Þannig gaf Benni Hemm Hemm út fína plötu, Kajak, mun betri en fyrsta platan hans, en engu að síður fékk hann mun minni athygli en þegar hann var glæ- nýr úr kassanum. Með sinni ann- arri plötu var hann strax orðinn „gömul frétt“. Það er svo sem lítið við þessu að gera, nema nöldra örlítið. Kannski er eina ráðið að koma með svo miklu betri plötu en fyrstu plötuna að fyrsta plat- an gleymist hreinlega. Þetta tókst Ghostigital með sinni margræðu þorskaplötu og Baggalútskarlarnir rufu grínmúrinn og læddust með íslensku fyndninni sinni bakdyra- megin að þjóðarsálinni, hressari en nokkru sinni. Ef menn harka af sér kemur fyrr eða síðar að því að eins konar nirvana er náð. Nirvanað heitir að vera „sígildur“ Þá skiptir engu máli þótt þú sért ekki glænýr og frumlegur: Þú ert orðinn sígildur og siglir þinn sjó. Sálin, Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens og Megas hafa auðvitað náð þessum stað hver á sinn hátt fyrir löngu síðan og birtast nú á lista til- nefndra eins og svo oft áður. Að þessu sögðu slæ ég því föstu að árið 2006 var gott ár í tónlist- inni. Mjög gott ár. Eiginlega alveg frábært ár – miðað við höfðatölu. Dr. Gunni Ár nýliðanna HAFDÍS HULD: DIRTY PAPER CUP Frábær frumraun söngkonunnar sem byrjaði að ferðast um heiminn með Gus Gus þegar hún var aðeins 15 ára gömul. Sólóplatan er búin að vera lengi á leiðinni, en þeim tíma hefur greinilega verið vel varið. Vönduð, yfirlætislaus og skemmti- leg plata. Popp REYKJAVÍK!: GLACIAL LAND- SCAPES, RELIGION, OPRESS- ION & ALCOHOL Ein ferskasta rokkplata sem komið hefur út á Íslandi í langan tíma. Spilagleðin geislar af henni og bak við kröftug gítar „riff“ eru leiftrandi melódíur. Grípandi rokk og ról og brakandi ferskt. Hljómurinn kemst einnig vel til skila, en það hefur oft verið vandamál sem margar íslenskar rokkhljómsveitir hafa glímt við en Reykjavík! náð að ráða fram úr. Rokk & jaðar GHOSTIGITAL: IN COD WE TRUST Með frumlegri plötum sem komið hafa út á Íslandi, en samt sem áður mjög grípandi. Taktarnir eru dans- vænir, söngurinn og textarnir hress- ilegir og húmorískir og góðir gestir setja skemmtilegan svip á plötuna sem er bæði hrá og kraftmikil. BARÐI JÓHANNSSON: HAXAN Þrátt fyrir að hér sé um að ræða kvikmyndatónlist nær tónverkið sjálft alveg að standa eitt og sér. Þetta er stórt og mikið verk og metnaðurinn skín í gegn. Útkoman er líka eftir því, afskaplega hrífandi. Tónlistin hefur yfir sér drungaleg- an og dulrænan blæ sem sveiflast á köflum yfir í bjarta fegurð. Útsetn- ingar eru til fyrirmyndar og hvergi daufa stund að finna. Falleg tón- list... klassík fyrir popparana. SKÚLI SVERRISSON: SERÍA Ein óvæntasta plata ársins þótt hún komi frá einum farsælasta tónlist- armanni okkar, en Skúli hefur m.a. spilað með Blonde Redhead og Laurie Anderson. Skúli slær á til- finningastrengi með tónlist sinni og smávægileg stílbrigði í viðkvæm- um og brothættum laglínum hans eru einkar áhrifamikil. Ólöf Arnalds syngur með tærri rödd sinni eigin texta við þrjú af lögum Skúla og ljær þar með þessari plötu sérstakan keim. Sería er hnökralaus frá upp- hafi til enda. Ýmis tónlist Hljómplata ársins ÝMSIR: PÆLDU Í ÞVÍ SEM PÆLANDI ER Í Lög Megasar fá nýtt líf í ferskum útsetningum ýmissa og ólíkra flytj- enda. Skemmtileg fjölbreytni sem undirstrikar snilld höfundarins, sem auðvitað er löngu orðinn klassísk- ur. Dægurtónlist BENNI HEMM HEMM: KAJAK Popp með lúðrasveitaívafi er sjald- gæft og því sérstakt og hljómsveitin heldur sig við svipað form og er á plötunni sem kom út í fyrra og fékk góða dóma. Kajak er þó enn heil- steyptari og í alla staði gríðarlega þétt. Laga- og textasmíðarnar (á íslensku vel að merkja) halda áfram að vera kæruleysislega skemmti- legar og afskaplega „sjarmerandi“ Góð plata og Benni Hemm Hemm á stöðugri framfarabraut. SÁLIN & GOSPEL: LIFANDI Í LAUGARDALSHÖLL Fagmennska og metnaður hefur fylgt þessari lífseigu og sívinsælu hljómsveit í gegnum tíðina og þeir félagar hafa ekkert slakað á kröfun- um eins og þessir glæsilegu hljóm- leikar með gospelkórnum sýna. PÉTUR BEN: WINE FOR MY WEAKNESS Pétur Ben er hæfi- leikaríkur tónlistarmaður, bæði sem lagasmiður og gítarleikari, og mjög fjölbreyttar lagasmíðar eru á þessari plötu sem er metnaðarfullt rokkverk. Þetta er vönduð plata í alla staði og mun lifa vel og lengi. LAY LOW: PLEASE DON´T HATE ME Heillandi nýliði sem óneitan- lega hefur vakið mikla athygli með sinni fyrstu plötu. Frábær frumraun rísandi tónlistarmanns og túlkun- armátinn minnir á ekki ófrægari söngkonu en sjálfa Billie Holiday. BOGOMIL FONT OG FLÍS: BAN- ANAVELDIÐ Hressandi plata með suðrænum lögum og virkilega snjöllum textum héðan úr norðri. Glaðleg þjóðfélagsádeila; skemmti- legt, fyndið og beitt. BAGGALÚTUR: APARNIR Í EDEN Baggalútsmenn hafa náð að fullkomna stílinn sinn með hæfi- legri blöndu af karlrembu, kántrí- tónlist og kímni. Þótt fyrri platan hafi þótt góð er Aparnir í Eden, ótrúlegt en satt, enn betri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.