Fréttablaðið - 31.01.2007, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 31.01.2007, Qupperneq 44
20 Myndlistarmaðurinn Inga Elín er höfundur verðlaunagripsins Ístóns- ins sem nú verður afhentur í sjötta sinn. Inga Elín útskýrir að undanfar- in fjögur ár hafi gripurinn verið sá sami. Líkt og með Óskarinn er nú komin ákveðin hefð á Ístóninn. „Ég lagði mikla vinnu í þennan grip þegar hann var valinn á sínum tíma og ég held að allir séu mjög ánægð- ir með hann,“ segir listamaðurinn hæversklega en hún smíðaði milli 40-50 gerðir af fyrrgreindum verð- launagrip áður en hún var fullsátt við þann sem nú mun prýða hillur tónlistarfólksins. Listakonan Inga Elín hefur hald- ið allmargar einkasýningar bæði á Íslandi og í Bretlandi og tekið þátt í fjölda samsýninga á Norðurlöndum sem og á Íslandi. Hún er margverð- launaður listamaður og hlaut til að mynda hin virtu dönsku verð- laun, Kunsthåndværkerprisen sem Margrét Danadrottning afhendir ár hvert. Helstu verksvið og verkefni Ingu Elínar eru hönnun, glerlist, postul- ín, steinsteypa, leirlist, glersteypa og skúlptúr en hún vinnur jöfnum höndum með nytjalist og skúlpt- úra. Inga Elín hefur einnig hannað og unnið ýmis verk fyrir kokkalands- liðið í fjöldamörg ár enda segir hún að fallegt handverk setji punktinn yfir i-ið þegar kemur að því að bera fram ljúffenga máltíð. Að þessu sinni verða átján grip- ir afhentir en að baki þeim liggur þó umtalsverð vinna því Inga Elín handsmíðar hvern og einn grip, mótar steypu og sníður gler af sínu listfengi en undirbúningstíminn tekur hátt í tvo mánuði. Gripurinn vísar bæði til íss og jökla landins sem og tónlistarinnar því hann er í laginu eins og nóta. Ennfremur segist listakonan hafa haft íslenska stuðlabergið í huga þegar kom að hönnun þess. Það er hátíðleg stund þegar gripirnir eru afhentir en Inga Elín segist alltaf mæta til að fylgja sköpunarverki sínu eftir. Þrátt fyrir annirnar sem fylgja undirbúningi og smíð gripanna fór Inga Elín í óvænta heimsókn á dögunum. Þegar tónlistarmaðurinn og glerlistasafnarinn Elton John var staddur hér á landi var honum bent á list Ingu Elínar og fór svo að hún seldi honum verk. „Ég fór með nokkur verk til hans og var hjá honum í næstum hálftíma, sýndi honum heimasíðuna og við náðum aðeins að spjalla saman,“ útskýr- ir Inga Elín. Þar sem enska popp- stjarnan var í þann mund að stíga á svið í umtalaðri afmælisveislu gafst þeim ekki mikið tóm til þess að spjalla um áhuga hans á glerlist en hann keypti þó meðal annars verk úr sama efni og Ístónninn er gerður, metra háan skúlptúr úr gleri og steypu. Nánari upplýsingar um lista- manninn má finna á heimasíðunni www.ingaelin.com. -khh Eftirsóknarverður gripur Viðurkenningin er veitt sem hvatning og þakklæti til þeirra aðilua er standa utan tón- listarlífsins en leggja sitt lóð á vogarskálarnar til eflingar og stuðnings íslenskri tónlist. FL Group hefur markað sér þá stefnu að styðja verkefni á sviði menningar og mannúðar og hefur á skömmum tíma tekið að sér nokkur viðamikil verkefni sem tengjast tónlist. Á árinu 2006 var gerður samstarfssamn- ingur við Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem FL Group verður bakhjarl hljómsveitarinnar með 40 milljóna króna framlagi á næstu fjór- um árum. FL Group er einnig aðalfjárfestir í fyrir- tækinu Tónvís, sem með 200 milljón króna stofnfé verður bakhjarl og stuðningsaðili íslenskra tónlistarmanna í útrás og markaðs- setningu þeirra erlendis. Þá studdi FL Group Sykurmolana og útgáfufyrirtæki þeirra Smekkleysu, í tilefni af afmælistónleikum hljómsveitarinnar í nóv- ember. Það er óvenjulegt og ánægjulegt að fjár- festingafélag skuli að eigin frumkvæði beina athygli sinni að íslenskri tónlist og tónlistar- fólki í slíkum mæli sem FL Group hefur gert á árinu. Áhugi forstjóra FL Group, Hannesar Smárasonar, á tónlist hefur sýnt sig undan- farin ár og minnast tónlistarmenn tvöföld- unar á Reykjavík-Loftbrú sem hann tilkynnti um á verðlaunahátíð Íslensku tónlistarverð- launanna 2004. Sú tiltrú sem forsvarsmenn FL Group sýna íslensku tónlistarlífi er hvatning til að gera stöðugt betur. Það er samstarf sem hljómar vel! f.h. Samtóns og Íslensku tónlistarverðlaunanna Björn Th. Árnason Margrét Bóasdóttir Hvatningarverðlaun Samtóns FL Group hlýtur hvatningarverðlaun Samtóns fyrir árið 2006 { íslensku tónlistarverðlaunin } Molar úr íslenskri tónlistarsögu 1983 Íslensk hljómplötuútgáfa og sala erlendra hljómplatna dragast saman vegna hárra tolla og vöru- gjalda á hljómplötur. Það kemur aðeins út 41 ný íslensk hljómplata að safnplötum meðtöldum. 1986 Fyrsta íslenska geislaplat- an sem tekin er upp á Íslandi kemur út með söng Kórs Langholtskirkju. 1986 Taktur verður til þegar Fálkanum er skipt upp á milli erf- ingja Ólafs Magnússonar. Afkom- endur Haralds Ólafssonar halda útgáfu- og hljómtækjahluta fyrir- tækisins og stofna Takt. 1986 Smekkleysa tekur til starfa og gefur út fyrstu smáskífu Sykur- molanna – mottó þeirra er: Heims- yfirráð eða dauði. 1987 Bubbi Morthens er með söluhæstu plötuna í langan tíma þegar Dögun selst í um 18.000 ein- tökum. 1988 Geisli verður til á rústum Grammsins. 1991 P.S. músík hefur útgáfu- störf en lifir ekki lengi. 1991-2 Geislaplötur taka völdin á útgáfumarkaðnum en 33 snún- inga vínylplötur láta undan síga og hverfa nánast alveg sem útgáfuform. Endurútgáfa íslenskra hljómplatna á geislaplötum hefst af miklum krafti og á eftir að eflast til muna. 1992 Japis tekur að sér dreif- ingu íslenskra hljómplatna og hefur eigin útgáfu í kjölfarið. 1993 Spor yfirtekur allan rekst- ur Steina hf. í kjölfar gjaldþrots. 1993 Björk gefur út plötuna Debut og slær í gegn á alþjóðlegum markaði. 1993 Íslensku tónlistarverð- laununum ýtt úr vör. 1997 Sigur Rós gefur út plötuna Von sem vekur mikla athygli. 1997-9 Stórum útgefendum fækk- ar og Skífan nær yfirburðastöðu á markaðnum þegar fyrirtækið eign- ast útgáfurétt ýmissa eldri fyrir- tækja. 2001-4 Nýir útgefendur láta til sín taka og smærri útgefendur eflast t.d. Dimma og Sonet sem verður Zonet. 2005 Hátt í 200 útgefin íslensk hljóðrit koma út þetta árið. Samantekt: Jónatan Garðarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.