Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 60
Ég tók leigubíl um
daginn. Það er svo
sem ekki í frásögur
færandi en ferðin
var öll hin leiðin-
legasta þar sem ég
lenti á skrafhreif-
um leigubílstjóra.
Þetta kom nokkuð
flatt upp á mig þar sem allt fas
mitt og framkoma sendir skýr
skilaboð: „Haltu kjafti og keyrðu“.
Kolsvarta áran sem umlykur mig
hefur, árum saman, komið í veg
fyrir að ég þurfi að halda uppi
samræðum við leigubílstjóra.
Ég er ekki einn um að vilja
þegja í leigubílum og kann ágæta
sögu af einum þjáningarbræðra
minna. Hann er þekktur þverhaus
og tók einhverju sinni leigubíl í
slagviðri, hávaðaroki og hellirign-
ingu. Maðurinn var varla búinn að
gefa upp áfangastað þegar ekillinn
setti kjaftakvörnina í gang og mal-
aði af miklum móð. Farþeginn hélt
þetta út í fimm mínútur en struns-
aði svo út úr bílnum á rauðu ljósi
og kaus að ganga á leiðarenda,
hundblautur með vindinn í fangið.
Sjálfur er ég of sporlatur og líf-
hræddur til að stökkva úr leigubíl
á ferð en skildi samt ekki hvernig
á því stóð að bílstjórinn skyldi
valta yfir andfélagslegar varnir
mínar, mislesa alla framkomu
mína og álykta að ég nennti að eiga
við hann orð.
Skýringin kom þó skömmu
síðar þegar hann kom sér að efn-
inu og því sem hann virkilega vildi
ræða. Fjandans handboltann. Ég
benti manninum á það að áhugi
minn á handboltanum væri bund-
inn við það að hneykslast á því
hvernig heil þjóð getur farið á lím-
ingunum yfir einhverju jafn inni-
haldslausu og fánýtu og þessu
sporti. Eftir það ókum við í þögn.
Ég var ekki í hans liði.
Íslendingar hljóta að vera eina
þjóðin í heimi sem fagnar sigri í
leik í riðlakeppni eins og verið sé
að hampa heimsmeistarabikar.
Undarleg þjóð sem getur samein-
ast um eitthvað jafn lítilfjörlegt og
handbolta og Rockstar en er marg-
klofin í velferðar-, umhverfismál-
um og öllu öðru sem skiptir heild-
ina raunverulegu máli.
Ég hef verið að
spá, ég held
að lögreglan
raði glæpum
ekki í sömu
forgangsröð og
venjulegt fólk.
Það er líklega
rétt, enginn
annar en
lögreglan
væri alltaf
hangandi
fyrir utan
bandaríska
sendiráðið.
Og ef þú ert einn af
þeim fáu sem eru
teknir fyrir glæpi, þá
eru hegningarlögin
svo götótt að þú
lendir í fangelsi
sem er eins og
sumarbúðir!
Sumarbúðir
þar sem þú
lærir að vera
enn meiri
glæpamaður
en áður!
Það er kannski samfélagið
frekar en lögreglan sem ekki
er tilbúið til að taka
á glæpum á réttan
máta!
Réttan
máta?
Góður
skammtur
af rafmagni í
hreðjarnar á
þeim!
Nákvæmlega, í
hvað eru þessir
menn að nota
skattpening-
ana!?!
Heil-
brigðis-
kerfið?
Hæ
Afsakaðu,
gleymdu
þessu bara.
Ég hefði ekki átt að
trufla!
H ...
Guð hvað er þetta
með mig, ég get
verið svo mikið fífl!
Nei, gleymdu að ég
hafi sagt þetta!
Haltu bara áfram að
lifa þínu lífi eins og
ekkert hafi í skorist.
Hérna, taktu
minturnar
mínar og þá
erum við kvitt.
Nú hefurðu hitt fröken
lágt sjálfsálit!
Óli segir að þú
sért tvær vikur
á eftir með
vasapeninginn
hans, ég myndi
ekki venja mig á
að borga ekki! Er
það skilið?
Eigandi minn skyldi
mig aftur eftir einan! Væææææææææl.
Af hverju er ég ekki
með gemsanúmerið
hans.
Solla, þú ert
óþolandi
vælukjói sem
þykist vita allt!
Nú fer ég
og segi
mömmu!
Hvað sagði
mamma?
Sækjast sér
um líkir sagði
hún!
ÞAR SEM ALLT SNÝST
UM FÓTBOLTA!
NÝTT
Á GR
AS.IS
Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun
NÚ FÆRÐU GRAS.IS
FÉTTIR Í SÍMANN!