Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 70

Fréttablaðið - 31.01.2007, Side 70
Margrét Lára sögð sárþjáð af heimþrá Kevin Bond, knatt- spyrnustjóri Bournemouth, sagði í gær að hann vildi fá Bjarna Þór Viðarsson lánaðan frá Everton. Bjarni skoraði einmitt mark fyrir Everton gegn Bournemouth um helgina í æfingaleik. „Það eru 2-3 félög inni í myndinni og þetta kemur væntanlega í ljós á mánudaginn,“ sagði Bjarni við Fréttablaðið. „Ég er spenntur fyrir því að fara annað og fá að spila. Vonandi stend ég mig vel og fæ tækifæri hjá Everton í kjölfarið.“ Fyrst um sinn verður Bjarni lánaður í einn mánuð og gæti svo klárað tímabilið ef vel gengur. Bournemouth vill fá Bjarna Þvílíkur handboltaleikur Danir halda áfram að stríða Íslandi á handboltavellin- um og tapið gegn þeim í átta liða úrslitum HM í gær var mjög sárt og mun meira en það, það var bókstaflega grátlegt. Danir unnu með marki á lokasekúndu fram- lengingar. Fyrri hálfleikur fór rólega af stað og leikur beggja liða bar þess greinilegt merki að mikið var undir. Bæði lið léku frekar hægan bolta og leikmenn voru ekki að ana að neinu. Skynsemin ofar öllu. Liðin héldust í hendur fyrri hluta hálfleiksins og í fyrsta skipti sem munaði meira en einu marki á liðunum var í stöðunni 8- 10 fyrir Dani. Þá fór Anders Oechsler mikinn í skyttunni vinstra megin og breytti engu þótt hann sé rétthentur. Það var ekki reiknað með miklu af honum fyrir fram og var rætt í blaðamannastúkunni hvort nýtt Kjetil Strand-ævintýri væri í uppsiglingu. Íslenska liðinu óx ásmegin eftir því sem leið á hálf- leikinn og komst í fyrsta skipti yfir um hann miðjan, 12-11. Liðið hélt áfram að keyra á Danina með Birki Ívar í miklu stuði á milli stanganna og mest náði liðið þriggja marka forskoti, 15-12. Danir réttu úr kútnum undir lok hálfleiksins og náðu að jafna, 16-16, en síðasta mark hálfleiks- ins var íslenskt og strákarnir okkar því yfir í leikhléi, 17-16. Danir byrjuðu síðari hálfleik- inn betur, skoruðu tvö fyrstu mörkin og komust yfir á ný, 17- 18. Oechsler hélt áfram að fara illa með íslenska liðið, bæði með mörkum og línusendingum. Þegar klippt var á hann tók hinn risinn í danska liðinu, Lars Möll- er Madsen, upp keflið og raðaði inn mörkum. Þegar tíu mínútur lifðu leiks var munurinn fjögur mörk, 25- 29, og ljóst að Ísland varð að fá vörn og markvörslu síðustu mín- úturnar ef það ætlaði að eygja von um sigur en Kasper Hvidt varði eins og brjálæðingur í danska markinu á meðan Danir tóku fram úr Íslandi. Þá byrjuðu strákarnir að rétta úr kútnum, vörnin varði skot sem og Birkir, hraðaupphlaup komu og munurinn eitt mark, 28-29, þegar átta mínútur voru eftir. Markvarslan stóð stutt yfir og íslenska liðinu gekk ekkert að jafna leikinn, var alltaf einu eða tveimur mörkum undir. Þegar ein mínúta var eftir af leiknum fékk Ísland boltann í stöðunni 33-34. Ólafur Stefánsson fiskaði víti þegar sjö sekúndur voru eftir. Það var Snorri Steinn Guðjónsson sem fékk það erfiða hlutskipti að taka vítið mikil- væga. Strákurinn skoraði á snilld- arlegan hátt, 34-34 en hann skor- aði fjögur síðustu mörk leiksins fyrir Ísland. Þvílík frammistaða. Danir tóku leikhlé með fjórar sekúndur eftir. Þeir náðu skoti en það fór sem betur fer fram hjá markinu. Framlenging varð raun- in og taugar allra í Hamburg þandar til hins ítrasta í þessum ótrúlega leik. Íslenska liðið lék fyrri hálfleik framlengingarinnar vel og komst yfir, 38-37, en fyrir klaufaskap náðu Danir að jafna fyrir hlé. 38- 38 og fimm mínútur eftir. Hrika- leg spenna. Ísland komst aftur yfir, 41-40, þegar tvær mínútur voru eftir með hraðaupphlaupsmarki Guð- jóns Vals. Danir jöfnuðu þegar 40 sekúndur voru eftir. Ísland fór í sókn, Alex skaut í stöng, fékk ekki aukakast, Danir bruna upp og Ólafur fær tveggja mínútna brottvísun fyrir að brjóta. 15 sek- úndur eftir. Oechlser tekur loka- skotið og skorar. Grátlegt. Danir áfram eftir ótrúlegan leik. Danir lögðu Íslendinga, 42-41, í framlengdum leik í 8 liða úrslitum í Hamborg í gær. Íslenska liðið var síst lakara og niðurstaðan grátleg. Strákarnir geta þó borið höfuðið hátt. Næsti leikur íslenska landsliðsins er gegn Rússum klukkan 16.30 á morgun, fimmtu- dag. Sigurvegarinn í leiknum spilar síðan á móti sigurvegaran- um úr leik Króata og Spánverja um 5. sætið á mótinu. Íslenska landsliðið var eina liðið úr okkar milliriðli sem komst ekki áfram í undanúrslitin en þar mæta Frakkar gestgjöfum Þjóðverja og Danir spila við Pólverja. Túnismenn tryggðu sér síðan 11. sætið og Ungverjar hrepptu það níunda eftir nauman sigur á Slóvenum. Mætum Rúss- um á morgun Það ríkti örtröð fyrir utan hina glæsilegu Colour Line- höll í Hamborg í gær. Þar var samankominn fjöldi áhugasamra handboltaunnenda sem vildi komast inn og sjá Rússa mæta Pólverjum og síðan leik Íslands og Danmerkur. Danir voru mikill fjöldi þeirra sem voru að leita að miða. Einhverjir voru að selja miða á svörtum markaði og þeir hinir sömu hafa fengið vel fyrir miðann því eftirspurnin var mikið mun meiri en framboðið. Þrátt fyrir fjölda „hlutlausra“ áhorfenda í höllinni var stemn- ingin engu að síður mjög góð hjá þeim 14 þúsund áhorfendum sem komust inn í húsið. Slegist um miða á leikina Leikur Íslendinga og Dana var nákvæmlega eins og við mátti búast, gríðarlega jafn og spenn- andi þar sem liðin skiptust á að leiða. Liðsuppstilling liðanna var hefðbundin og bæði lið hófu leik með 6/0 vörn. Leikurinn fór frekar varfærn- islega af stað og bar þess greini- leg merki að spenna var í leik- mönnum og er það skiljanlegt. Íslenska liðinu tókst að komast almennilega í gang í seinni hluta fyrri hálfleiks og sneri leiknum sér í hag. Hvað vörnina varðar spiluðum við ágætlega en áttum þó í mikl- um vandræðum á vinstri væng varnarinnar. Danir komust upp með að skora of mörg mörk af þeim væng auk þess sem línumað- ur þeirra var okkur erfiður. Að mínu mati lék íslenska liðið fyrri hálfleikinn ekki nema af um 70- 80% styrk og í raun var það þannig fyrstu 40 mínútur leiksins. Þegar við lentum fjórum mörk- um undir og um tuttugu mínútur voru eftir gerði Alfreð ákveðna breytingu á varnaruppstilling- unni. Hann lét Guðjón verjast meira hægra megin og auk þess fórum við að beita fleiri hröðum upphlaupum. Þá náðu leikmenn að hrista af sér stressið og gerði þetta það að verkum að smátt og smátt komumst við aftur inn í leikinn. Þá verður að minnast á sann- kallaðan stórleik Snorra Steins sem var fínn í fyrri hálfleik en kom síðan gríðarlega sterkur í seinni hálfleik. Segja má að hann hafi verið að spila leik lífs síns. Vandræði okkar í vörninni héldu þó áfram og við áttum í erfiðleikum með langskot danska liðsins. Markvarslan datt líka niður eftir að hafa verið ágæt í fyrri hálfleik en hinum megin gerðist það sem ég óttaðist mest, Kasper Hvidt komst í gang og munaði um minna. Leikurinn gat fallið hvernig sem var og stangarskotið frá Petersson undir lokin sýnir það skýrt hve stutt er milli hláturs og gráts. Þar vantaði bara sentimetra upp á. Vonbrigðin eru gríðarlega mikil og niðurstaðan er sú að við spilum um 5.-8. sæti í stað þess að spila um verðlaun. Frammistaðan er eitthvað sem við þurfum langt í frá að skamm- ast okkar fyrir og getum við verið gríðarlega stolt af leikmönnum. Þeir stóðu sig mjög vel og lögðu sig mikið fram í að reyna að landa sigri. Það var ekki getumunur sem réði úrslitum í gær heldur aðeins sentimetra spursmál.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.