Fréttablaðið - 29.03.2007, Qupperneq 1
Fermingarfötin
bíða eftir þér!
Opið til 21 í kvöld
-gerir bragðið betra!
Fyrsta flokks majónes sem laðar
fram það besta í matargerðinni.
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
Ekkert mál að
mála vegg
Smáauglý i
Sigurgeir Finnsson, bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur, er með svolítið sérstakan
vegg í stofunni heima hjá sér sem hÞóra Þ
Hugmyndina að mynstrinu á veggnum fund þ
í mynsturbók sem var á h
Allir vildu Eurovision
kveðið hafa
Forsvarsmenn Ölstofu
Kormáks og Skjaldar íhuga mál-
sókn á hendur ríkisvaldinu vegna
væntanlegs reykingabanns á veit-
inga- og skemmtistöðum.
Þeir Kormákur Geirharðsson
og Skjöldur Sigurjónsson sendu
ríkislögmanni bréf í gær þar sem
beðið er um álit hans á lagasetn-
ingunni og hvaða leiðir hann sjái
færar, svo að kráarrekstur fái
þrifist í reykbanni.
„Heilbrigðisráðherra lofaði til-
lögum á sínum tíma en þær hafa
aldrei komið á borð kráareig-
enda,“ segir Kormákur.
Lögmaður veitingamannanna,
Erlendur Þór Gunnarsson héraðs-
dómslögmaður, segir að með bréf-
inu sé ríkislögmanni veitt tæki-
færi til að tjá sig um það sem
Erlendur telur „brot á meðalhófs-
reglu stjórnskipunarréttarins og
skerðingu á atvinnuréttindum“.
Bréfið sé mikilvægt formsatriði
áður en lengra verði haldið.
Með banninu, sem tekur gildi
1. júní næstkomandi, mega við-
skiptavinir veitinga- og skemmti-
staða ekki undir neinum kringum-
stæðum reykja tóbak inni á krám.
Veitingamönnum er jafnframt
meinað að gera séraðstöðu fyrir
reykingamenn.
„Jafnrétti er alls ekki haft að
leiðarljósi við lagasetninguna.
Þarna er farin grófasta leiðin sem
til er og ekkert boðið á móti,“ segir
Kormákur.
Erlendur tekur undir þetta og
segist telja að „vel hefði mátt ná
fram settum markmiðum laganna,
að vernda viðskiptavini og starfs-
fólk fyrir reyknum, með því að
heimila undanþágur frá algjöru
banni, til dæmis með reykrými“.
Spurður um afstöðu Samtaka
ferðaþjónustunnar, sem hafa lýst
sig hlynnt banninu, segir Kormá-
kur að kráareigendum hafi aldrei
verið boðið í þau samtök. „Það er
allt önnur deild. Við höfum aldrei á
nokkurn hátt verið tengdir þeim,“
segir Kormákur.
Eigendur Ölstofu Kormáks og Skjaldar telja vegið að atvinnuréttindum sínum
með fyrirhuguðu reykingabanni. Þeir íhuga nú málsókn á hendur ríkinu.
Kráareigendur gegn
reykingabanninu Oft er talað um að konur hafi ekki sömu laun og karlar í íþrótt-
um en það á svo
sannarlega ekki
við í danska
handboltanum.
Að sögn And-
ers Dahl-Ni-
elsen, fram-
kvæmdastjóra
Skjern, hafa
konur haft mun
hærri laun en
karlar í fjölda
ára í danska
handboltanum. Karlar séu nú loks-
ins að ná svipuðum launum og
konurnar sem enn hafa þó ívið
betri laun.
Hæst launuðu dönsku handbolta-
konurnar fá allt að einni og hálfri
milljón króna í mánaðarlaun. Hæst
launuðu karlarnir höfðu milljón
á mánuði en nokkrir fá nú jafnhá
laun og konurnar.
Konur græða
meira en karlar
Flutningaskipið Pine
Arrow lagðist að bryggju á
Reyðarfirði í gær með 39.000
tonn af súráli. Þetta er fyrsti
súrálsfarmurinn sem kemur til
Reyðarfjarðar og því markaði
atburðurinn tímamót í starfsemi
Alcoa Fjarðaáls.
Súrál er meginuppistaða þess
hráefnis sem ál er unnið úr. Tæp
tvö tonn af súráli þarf til þess að
framleiða eitt tonn af áli og því
mun súrálið sem kom til Reyðar-
fjarðar í gær skila sér sem ríf-
lega 20.000 tonn af áli.
Að sögn Ernu Indriðadótt-
ur, upplýsingafulltrúa ALCOA
Fjarðaáls, er stefnt að því að
gangsetja fyrsta kerið í álverinu
um páskaleytið. Reikna má með
að um 20 súrálsflutningaskip, af
svipaðri stærð og Pine Arrow,
leggist að bryggju á Reyðarfirði
á ári hverju þegar starfsemi ál-
versins verður hafin að fullu.
Tímamót á
Reyðarfirði
Hugmynd um íslenskt
netþjónabú stórfyrirtækisins
Microsoft gæti orðið að veruleika
og er á viðræðustigi, segir fram-
kvæmdastjóri Microsoft á Íslandi,
Halldór Jörgensson.
Hugmyndin um netþjónabú
(e. server farm) kom upphaflega
fram í viðræðum forseta Íslands
við Bill Gates, eiganda Micro-
soft, í janúar síðastliðnum. Síðan
þá hefur Halldór fengið skriflegt
umboð frá Gates til að kanna að-
stæður og ræða við fagaðila.
„Viðræður eru í gangi og við
höfum lagt töluverða vinnu í þetta.
Við höfum fengið ágætis svör og
ekkert hefur unnnið á móti okkur
hingað til,“ segir hann.
Netþjónabú eru afar orkufrek
en Halldór neitar því að viðræð-
ur hafi átt sér stað um orkuverð
við innlend fyrirtæki. Hér á landi
sé enda næg orka, ólíkt því sem
gerist erlendis. „Það vinnur með
okkur.“
Halldór mun að öllum líkind-
um fjalla um framgang málsins á
fundi í næstu viku í höfuðstöðvum
Microsoft. Ákvörðun verði þó ekki
tekin fyrr en í fyrsta lagi í maí,
þegar háttsettir menn frá Micro-
soft koma til landsins.
Netþjónabú er í undirbúningi