Fréttablaðið - 29.03.2007, Qupperneq 2
Guillaume
Soro, aðalleiðtogi uppreisnar-
manna á Fílabeinsströndinni,
verður forsætisráðherra í nýrri
sáttastjórn landsins, í samræmi
við friðarsamkomulag sem full-
trúar stríðandi fylkinga og sátta-
semjarar hafa gert.
Alain Lobognon, talsmaður upp-
reisnarhreyfingarinnar Ný öfl,
sagði að Soro hefði verið boðið,
og hann þegið, forsætisráðherra-
embætti í nýrri ríkisstjórn sem
Laurent Gbagbo forseti er að
skipuleggja í því skyni að binda
enda á áralangt borgarastríð.
Sáttasemjarar staðfestu að um
þetta hefði verið samið.
Soro verður for-
sætisráðherra
Bryggjan í Flatey á Breiðafirði er að liðast
í sundur vegna aldurs og nýrrar Baldursferju, sem er
„mörgum númerum of stór fyrir bryggjuna“, að sögn
Tryggva Gunnarssonar, eins íbúa eyjunnar.
Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri og skipstjóri
Sæferða, sem reka Baldur, tekur í sama streng. „Já,
bryggjan er orðin ansi lúin og sér verulega á henni
eftir veturinn. Við erum búnir að vera svolítið óról-
egir út af þessu og reynum að hlífa henni eins og við
getum,“ segir hann. Pétur telur að bryggjuna ætti að
lagfæra sem fyrst og helst fyrir sumarið, þegar fjöldi
ferðamanna heimsækir eyjunna.
Núverandi bryggja er um hálfrar aldar gömul og
barn síns tíma, segir Tryggvi. Hún sé ekki á nokk-
urn hátt hönnuð eða í stakk búin til að taka við svo
stóru skipi. „Um daginn þurfti ég að fara í jarðarför og
komst ekki, því þeir treystu ekki bryggjunni og lentu
ekki. Ég var því reiður og tóbakslaus í Flatey og það er
ekki falleg saga.“
Framkvæmdastjóri Sæferða segir það gömul tíðindi
að ekki sé hægt að leggja að landi í Flatey. Það sé ekki
gert í slæmu veðri. Síðan bryggjan hafi verið byggð
hafi ferjan verið endurnýjuð minnst fimm sinnum og
nú þoli bryggjan ferjuna illa. „Það er kannski ofsagt að
hún sé að hruni komin, en það stefnir hraðbyri í það,“
segir Pétur.
Tillaga Tryggva er sú að endurbætur á aðstöðu smá-
báta eyjaskeggja verði gerðar um leið og bryggjan
verður löguð, því sú aðstaða sé einnig í ólestri. „Þarna
hafa fjölmargir bátar sokkið eða slitnað upp. Þetta kom
fyrir mig fyrir tólf árum og það er ansi slæm tilfinning
þegar einn daginn fjúka sex milljónir út um gluggann.
Maður verður nú boginn í bakinu af minna.“
Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnasviðs
Siglingastofnunar, segir að stefnt sé að því að bryggj-
an verði lagfærð seinni hluta sumars. „Það hefur tekið
langan tíma, því efnið þarf að sérpanta og er ekki til á
lager.“
Um tillögu Tryggva um endurbætur á smábátaað-
stöðu, segir Sigurður að Siglingastofnun beri ekki
ábyrgð á þeim hluta hafnarinnar. Hann telur að skyn-
samlegt væri að framkvæma endurbæturnar samtímis.
Það sé hins vegar sveitarfélagsins að taka þá ákvörðun.
Bryggjan í Flatey er
að liðast í sundur
Flateyjarbryggja var byggð fyrir rúmri hálfri öld. Síðan hefur ferjan Baldur ver-
ið endurnýjuð minnst fimm sinnum. Núverandi ferja er allt of stór fyrir bryggj-
una. Skipshöfn Baldurs reynir eftir megni að hlífa bryggjunni.
Íranar breyttu upplýs-
ingum um hvar bresku hermenn-
irnir voru handteknir eftir á að
sögn breskra stjórnvalda.
Breski herinn skýrði í fyrsta
skipti í gær nákvæmlega frá at-
burðarásinni þegar fimmtán bresk-
ir hermenn voru handteknir af
Írönum á föstudag. Fram kom að
Íran hefði á sunnudag gefið upp
staðsetningu á skipum bresku her-
mannanna sem sannað þykir að hafi
verið inni í íraskri lögsögu. Á mánu-
daginn hafi þeir gefið upp aðra stað-
setningu sem sé inni í íranskri lög-
sögu.
Varnarmálaráðuneyti Bret-
lands birti í gær gervihnattargögn
sem sýndu að bresku hermennirn-
ir voru í staddir í íraskri lögsögu
þegar þeir voru handteknir. Tony
Blair, forstætisráðherra Bretlands,
sagði gögnin sýna að handtakan
hafi verið fullkomlega „óásættan-
leg, röng og ólögleg“.
Utanríkisráðherra Írans, Manou-
chehr Mottaki, sagði í gær að eina
kvenkyns fanganum, Faye Turney,
yrði sleppt síðar um daginn eða í
dag. Turney birtist í írönsku sjón-
varpi þar sem hún viðurkenndi að
þau hefðu farið inn í íranska lögsögu.
Það kom einnig fram í bréfi sem hún
skrifaði foreldrum sínum og sendi-
ráð Íran í London birti í gær.
Bresk stjórnvöld lýstu yfir að
mest öll samskipti við Íran hefðu
verið fryst þangað til að bresku her-
mönnunum sem Íranar hafa í haldi
verður sleppt.
Nokkur aðsókn kjósenda var
í gær á Strandgötu 6 í Hafnarfirði, þar sem
atkvæðagreiðsla utankjörfundar vegna
stækkunar álvers Alcan í Straumsvík fer
fram.
Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafull-
trúi segir að um 650 manns hafi nú þegar
kosið og hún býst við góðri aðsókn í dag, en
opið verður til klukkan 19 í kvöld.
„Það hefur verið töluverð traffík hérna
og ég býst við að svo verði [í dag] og á
föstudaginn. Ég hvet fólk til að koma fyrr
en seinna,“ segir Steinunn. Hún segir mik-
inn áhuga á kosningunum í bænum. „Maður
hefur tilfinningu fyrir því að það verði góð
þátttaka, því þetta er málefni sem bæjar-
búar hafa miklar skoðanir á,“ segir hún.
Sjálf kosningin fer svo fram næstkom-
andi laugardag og verður notast við raf-
ræna kjörskrá, í fyrsta sinn í Hafnarfirði.
Kjósendur geta því valið um kjörstað, en
kosið verður í Áslandsskóla, Íþróttahúsinu
við Strandgötu og í Víðistaðaskóla.
Kjörfundur hefst klukkan 10 að morgni
og stendur til klukkan sjö um kvöldið.
Fyrstu tölur gætu borist upp úr lokun kjör-
fundar, eða klukkan 19.
Kjörgengir eru 16.648 talsins.
Á sjöunda hundrað hafa kosið nú þegar
Flugmaður nauð-
lenti einshreyfilsvél sinni á Eyja-
fjarðarbraut skammt frá Mel-
gerðismelum um miðjan dag í
gær. Flugmaðurinn var að fljúga
yfir flugvöllinn á Melgerðismel-
um þegar vélin drap á sér. Hann
sá þann kost vænstan að reyna
nauðlendingu á þjóðveginum sem
heppnaðist að óskum.
Að sögn lögreglu þurfti að loka
veginum um tíma. Eftir að flug-
virki hafði skoðað vélina fór flug-
maðurinn aftur í loftið. Svo virð-
ist sem snúra í heyrnartólum
flugmannsins hafi krækst í bens-
ínloka og drepið á mótornum.
Vélin er af gerðinni Super De-
cathlon og er í eigu Flugskóla Ak-
ureyrar.
Nauðlenti á
þjóðveginum
Sæunn, af hverju ekki ríkis-
stjórn með Zero Framsókn?
Íranar breyttu
upplýsingum eftir á
Vinstri hreyfingin -
grænt framboð er í mikilli sókn
í Norðvesturkjördæmi meðan
Framsóknarflokkurinn tapar
fylgi. Þetta eru niðurstöður nýrrar
könnunar sem Félagsvísindastofn-
un Háskóla Íslands gerði fyrir
Fréttastofu Stöðvar tvö.
Samkvæmt könnuninni fengi
Sjálfstæðisflokkur 28,4 prósent at-
kvæða og tvo þingmenn. Vinstri
hreyfingin - grænt framboð fengi
23 prósent, bætti við sig þing-
manni og fengi tvo. Samfylking-
in fengi 20,7 prósent atkvæða og
tvo þingmenn, Framsóknarflokk-
ur tapaði öðrum sinna manna
og fengi einn mann kjörinn með
14,3 prósent atkvæða. Frjálslyndi
flokkurinn fengi 9,7 prósent og
einn þingmann. Íslandshreyfingin
næði ekki manni inn. Ekki er ljóst
hvaða flokkur myndi hljóta níunda
þingsæti kjördæmisins sem er
uppbótarþingsæti.
Í úrtaki voru 800 einstaklingar
og var svarhlutfall 60 prósent.
Vinstri græn
eru á uppleið