Fréttablaðið - 29.03.2007, Síða 8
Á hvaða veitingastað í
Reykjavík snæddi Cliff Richard
með föruneyti sínu á mánu-
dagskvöld?
Hvað heitir forstjóri Fangels-
ismálastofnunar?
Yfir hvaða fjárhæð má
kostnaður við auglýsingar
stjórnmálaflokka ekki fara?
Fulltrúar aðildarríkja
Evrópusambandsins samþykktu
í gær að viðræður yrðu hafnar á
ný að hluta við Tyrki, með því að
samningskaflinn um iðnaðarmál
og stefnu í málefnum fyrirtækja
yrði opnaður.
Ákvörðunin er í samræmi við
stefnu þýskra stjórnvalda, sem
gegna nú formennskunni í ESB,
um að stuðla að bættum sam-
skiptum við Tyrkland. Formlegar
aðildarviðræður hafa legið niðri
síðan sambandið ákvað í fyrra að
frysta þær að hluta, eftir að Tyrk-
ir neituðu að verða við kröfum
um að opna hafnir sínar fyrir við-
skiptum frá Kýpur.
Aðildarviðræð-
ur hafnar á ný
Safnaðu Knorr
strikamerkjum
Strikamerkjaleikur Knorr gæti sent þig í
100.000 kr. verslunarferð í Kringluna
Fyrir 10 Knorr strikamerki getur þú valið um:
Þú færð
söfnunarh
eftið
í næstu
verslun!
Svona gerir þú:
Klipptu strikamerkin af Knorr vörunum þínum og límdu inn í
söfnunarheftið. Þegar þú hefur safnað 10 strikamerkjum fyllir
þú út þátttökuseðilinn í heftinu, skilar því eða sendir til
Ásbjörns Ólafssonar ehf., Köllunarklettsvegi 6, 104 Reykjavík,
merkt „Strikamerkjaleikur“. Merktu þér seðilinn vel og
tilgreindu hvaða hlut þú velur*. Innsendingarfrestur rennur
út 30.06. 2007.
Stóri vinningurinn:
Nöfn allra þátttakenda fara í pott þar sem dregið verður um
glæsilega vinninga. Þrír heppnir safnarar fá 100.000 kr.
vöruúttekt í Kringlunni, hvorki meira né minna!
*Á meðan birgðir endast.
Svuntusett fyrir þig og barnið
Hvernig væri að leyfa börnunum að spreyta
sig í eldhúsinu? Safnaðu 10 strikamerkjum
og fáðu svuntu fyrir þig og barnið á heimilinu.
Lasagnefat sem passar fyrir plöturnar
Þú losnar við að brjóta lasagneplöturnar til að koma
þeim í fatið. Fyrir 10 strikamerki færðu Pyrex
lasagnefat sem passar fullkomlega
fyrir Knorr lasagneplötur.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
0
5
2
0
Herskáir sjíar og lög-
reglumenn, æfir vegna mann-
skæðra bílsprengjutilræða meðal
sjía í bænum Tal Afar í NV-Írak,
fóru í hefndarleiðangur meðal
súnnía í bænum og skutu allt að
60 þeirra. Byssumennirnir gengu
hús úr húsi í hverfi súnní-araba í
bænum þriðjudagskvöld og fram
á nótt og skutu þá fullorðnu karl-
menn sem á vegi þeirra urðu.
Hermenn komu síðar á vett-
vang til að binda enda á lögleys-
una og útgöngubann var sett á.
Hefndarmorð
framin í tugavís
Stór landfylling úr
efni sem komið hefur úr grunni
tónlistarhússins í Reykjavíkurhöfn
er utan gildandi deiliskipulags.
Hrólfur Jónsson, forstöðumað-
ur Framkvæmdasviðs Reykjavík-
ur, segir að þar sem landfyllingin
við Ingólfsgarð sé aðeins til bráða-
birgða sé hún ekki skipulagsskyld.
Á aðalskipulagi sé gert ráð fyrir
hugsanlegri landfyllingu á þess-
um stað þótt hún sé ekki á deili-
skipulagi. Lög um förgun í hafið
eigi heldur ekki við um fylling-
una. Hrólfur segir að fyllingin hafi
meðal annars verið samþykkt í
hafnarstjórn.
„Við teljum að þetta sé ekki
skipulagsskylt því þetta verður
fjarlægt aftur. Og þar af leiðandi
þarf þetta ekki að fara í gegn um
umhverfismat því þetta er aftur-
kræft,“ segir Hrólfur.
Að sögn Hrólfs eru í raun slegn-
ar tvær flugur í einu höggi með
því að nota efnið úr grunninum
í landfyllinguna; nauðsynleg að-
staða skapist fyrir vinnubúð-
ir verktaka tónlistarhússins og
menn losni við að flytja um um-
ferðarkerfi borgarinnar efni sem
hugsanlega þyrfti að flytja aftur á
staðinn síðar – verði af því að gerð
verði endanleg landfylling á þess-
um stað: „Þá fer það í endanlegt
skipulagsferli og lögformlegt um-
hverfismat.“
Landfylling utan skipulags
Skrifað var undir
nýjan landamærasamning milli
Rússlands
og Lettlands
í Moskvu á
þriðjudag. Vonir
eru bundnar
við að samning-
urinn verði til
að lægja öld-
urnar í storma-
sömu sambandi
grannríkjanna.
Rússneski
forsætisráðherrann, Mikhaíl Frad-
kov, sem skrifaði undir samning-
inn ásamt lettneskum starfsbróð-
ur sínum, Aigars Kalvitis, sagðist
vonast til að samningurinn myndi
„gera kleift að láta heilan bálk af
óleystum ágreiningsefnum að baki
og koma tengslum landanna á nýtt
stig“.
Loks samið um
landamæri
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráð-
herra opnaði í gær páskasöfnun Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Að þessu sinni verður safnað fyrir tvenn sam-
tök á Indlandi sem hjálpa stéttlausum indverskum
börnum til mennta.
Stéttlaus börn á Indlandi eiga sér litla framtíðarvon
án menntunar og búa mörg hver við barnaþrælkun.
Hjálparstarfið kostar menntun 400 fátækra barna í
grunn- og framhaldsskólum þar sem þau fá fæði, föt
og læknisþjónustu. Þá kostar Hjálparstarfið rekstur
sérstakra forskóla fyrir stéttlaus börn.
Í tilefni söfnunarinnar var opnuð ljósmyndasýning
í Smáralind eftir Kristján Inga Einarsson. Hann ferð-
aðist til Indlands í janúar og tók myndir sem sýna að-
stæður barnanna.
Börnum hjálpað til mennta