Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 12
Yfirvöld í Belgíu
hafa handtekið ítalskan kaup-
sýslumann og tvo lágt setta emb-
ættismenn framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins í tengslum
við rannsókn á víðtæku spilling-
armáli sem snýst um brask með
fasteignir sem nýttar eru af skrif-
stofum framkvæmdastjórnar-
innar víða um lönd. Frá þessu
greindi talsmaður belgískra
dómsmálayfirvalda í gær.
„Þetta snýst um að komast
hjá opinberum fasteignaútboð-
um, fyrir sendiskrifstofur fram-
kvæmdastjórnarinnar í löndum
utan Evrópusambandsríkjanna
sjálfra,“ sagði talsmaðurinn, Jos
Colpin.
Spillingarrannsókn hjá ESB
„Við tökum almennt
vel í að menn sýni áhuga á upp-
byggingu vega svo því fer fjarri
að okkur þyki vegið að Vegagerð-
inni með þessum hugmyndum.“
segir Hreinn Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Vega-
gerðarinnar, en Ístak og Sjóvá
hafa látið hanna nýjan 2+2 Suður-
landsveg.
Vegur Ístaks og Sjóvár myndi
kosta tæplega átta milljarða króna
en Vegagerðin áætlaði nýlega að
kostnaður við gerð 2+2 vegar næmi
13,5 milljörðum króna.
„Vegurinn þeirra er ekki sam-
bærilegur þeim 2+2 vegi sem
við höfum verið að kynna. Hér
er um ódýrari útgáfu að ræða
og umferðaröryggi yrði tals-
vert minna,“ segir Hreinn. Hann
á þar sérstaklega við gatnamót-
in. Á vegi Ístaks og Sjóvár verða
bæði hringtorg og mislæg gatn-
maót meðan öll gatnamót á 2+2
vegi Vegagerðarinnar yrðu mis-
læg.
Karl Ragnars, forstjóri Um-
ferðarstofu, tekur undir með
Hreini. „Ég tel skynsamlegra að
fara eftir stöðlum Vegagerðar-
innar. Í þeirra hugmyndum er
gert ráð fyrir lengra bili milli
akstursleiða og það er þetta bil
sem skiptir mestu varðandi um-
ferðaröryggi,“ segir Karl.
Vegur Vegagerðar-
innar öruggari
Línumannvirki við
Vallarhverfi í Hafnarfirði verða
fjarlægð ásamt stórum hluta
spennustöðvarinnar við Hamra-
nes samkvæmt nýju samkomu-
lagi milli Landsnets og Alcan.
Þá verða aðrar loftlínur sem nú
standa ofan við byggðina settar
í jörð nái samkomulagið fram að
ganga.
Sjónmengun af völdum raflína
er meðal þess sem Hafnfirðingar
óttast verði álverið stækkað. Í til-
kynningu frá Alcan í Straumsvík
segir að með þessu sé komið til
móts við óskir bæjaryfirvalda og
íbúa á svæðinu.
Hafnarfjarðarbær kemur ekki
til með að bera kostnað af þessum
breytingum en þær eru háðar því
að stækkun álversins verði að
veruleika.
Línur lagðar í jörð