Fréttablaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 31
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Sigurgeir Finnsson, bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur, er með svolítið sérstakan
vegg í stofunni heima hjá sér sem hann og
Þóra Þorsteinsdóttir, sambýliskona hans,
máluðu sjálf.
„Okkur var búið að langa til þess að brjóta stof-
una einhvern veginn upp og vorum að velta því
fyrir okkur að veggfóðra en svo var það eiginlega
Þóra sem fékk þá hugmynd að við myndum bara
mála eitthvert mynstur á vegginn í staðinn,“ segir
Sigurgeir.
Hugmyndina að mynstrinu á veggnum fundu þau
í mynsturbók sem var á heimilinu. „Þóra var með
svona uppskriftabók með alls konar mynstrum
í því hún var búin að vera að teikna á einhverjar
jólakúlur. Hún byrjaði svo eiginlega bara á miðj-
um veggnum og vissi ekkert hvað myndi verða.
Hún var aðallega í þessu en ég hjálpaði til við að
klára og þetta tók kannski svona tvær vikur í allt,“
segir Sigurgeir.
Veggurinn í stofunni er ekki fyrsti veggur-
inn sem Sigurgeir málar svona sjálfur. „Þegar
ég var unglingur málaði ég einu sinni herberg-
ið mitt í öllum mögulegum litum, bæði veggi og
loft og seinna málaði ég einn vegginn í því með
því að sletta nokkrum litum á hann með pensli. Ég
er hrifnastur af litríkum veggjum og finnst bara
hrikalegt að hafa allt hvítt, það er svo leiðinlegt og
stofnanalegt.“
Sigurgeir segir að þau séu mjög ánægð með út-
komuna á veggnum. „Við erum eiginlega ekki með
neitt við þennan vegg nema einn stóll svo hann fær
alveg að njóta sín. Hann sést meira að segja inn
um gluggann og fólk sem gengur framhjá hefur
verið að dást að honum. Ef fólk vantar eitthvað að
gera yfir sjónvarpinu þá er bara mjög góð afþrey-
ing að mála vegg og ég mæli alveg með því. Ef við
verðum leið á veggnum er líka ekkert mál að mála
bara yfir hann aftur.“
Ekkert mál að mála vegg