Fréttablaðið - 29.03.2007, Síða 36
Þokkagyðjan Dita Von Teese
vekur hvarvetna athygli fyrir
útlit í anda leikkvenna frá gull-
aldarárum Hollywood.
Dita, eða Heather Renée Sweet
eins og hún heitir réttu nafni,
fæddist 28. september 1972 í Ro-
chester, Michigan, þar sem hún
ólst upp hjá foreldrum sínum.
Hún fékk snemma áhuga á göml-
um kvikmyndum og sígildum
fatastíl fyrir tilstuðlan móðurinn-
ar sem var kvikmyndaaðdándi og
hafði gaman af því að klæða dótt-
urina upp eins og gömlu kvik-
myndagyðjurnar.
Aðeins fimmtán ára var Heather
farin að vinna í undirfataverslun
til að geta verið innan um blúnd-
unærföt og sokkabönd og keypti
sér þar fyrsta lífstykkið sitt. Allar
götur síðan hefur hún notið þess
að klæðast dýrindis undirfatnaði
og skartklæðum.
Heather lærði ballet frá fimm
ára aldri en hætti fimmtán ára þar
sem hún taldi sig ekki geta orðið
betri. Hún nýtti sér hins vegar
danstæknina þegar hún ákvað að
gerast nektardansmær um tvítugt
og gat sér fljótlega góðs orðs fyrir
erótískar sýningar, þar sem aldrei
var farið yfir strikið og fjaðra-
skúfar, skart, hælaskór, uppháir
hanskar, lífstykki og ögrandi und-
irfatnaður komu því meir við
sögu.
Um það leyti tók Heather upp
sviðsnafnið Dita og bætti eftir-
nafninu Von Treese við þegar
hún sat fyrir hjá Playboy 2002.
Vegna mistaka datt r-ið úr
eftir nafninu í prentun svo
eftir stóð Teese, sem minnir
á orðið „tease“ eða stríðni.
Ditu fannst það svo snið-
ugt að hún hefur komið fram
undir því nafni síðan.
Dita hefur fært út kvíarn-
ar síðustu ár, meðal ann-
ars leikið í kvikmyndum og
tónlistarmyndböndum, setið
fyrir og sýnt fatnað. Hún er þó
þekktust fyrir nektarsýningarn-
ar og hvað svo sem mönnum
kann að þykja um lífsviður-
værið, ber flestum saman
um að þar fari kona með
fágaðan fatasmekk sem á
sér fáa líka.
Stríðnispúki með
dýran smekk
Smáralind
Bannað!
Er orð sem við
þekkjum ekki.
Upptökur úr þættinum
er að finna á FM957.is
Zúúber – morgunþáttur
alla virka morgna frá
kl. 7.00–10.00.