Fréttablaðið - 29.03.2007, Síða 37
ÁLFTAMÝRI • MJÓDD
HÆÐASMÁRA 4
opið 10–23 alla daga
Þegar hætt er að reykja getur
verið gott að finna sér eitthvað
sem hægt er að gera í staðinn
til þess að minnka reyklöng-
unina þegar hún kemur upp.
Ingibjörg Katrín Stefánsdóttir
hjúkrunarfræðingur hefur
stjórnað námskeiðum á vegum
Krabbameinsfélagsins og getur
gefið þeim sem vilja hætta að
reykja góð ráð.
„Tóbaksfíkn er svolítið flókin
þar sem hún er líkamleg, félags-
leg, sálræn og vanabundin. Mik-
ilvægt er að átta sig á sínu eigin
reykingamynstri og tengslum við
sígarettuna til þess að geta búið
sig undir að vera reyklaus,“ segir
Ingibjörg.
Þeir sem hætta að reykja finna
flestir reglulega fyrir sterkri
reykingalöngun til að byrja með
en hún stendur sem betur fer ekki
lengi yfir í hvert skipti að sögn
Ingibjargar. „Reykingalöngun-
in stendur bara yfir í svona tvær
til þrjár mínútur í einu en það
þarf einhvern veginn að reyna að
komast í gegnum þær án þess að
fá sér sígarettu. Til dæmis getur
verið gott að fá sér kalt vatn með
sítrónu eða fara út að labba, hver
verður eiginlega að finna sitt ráð.
Öll hreyfing er hins vegar mjög
góð þegar hætt er að reykja þar
sem því fylgir ákveðin streita.
Stundum er líka einhver ákveð-
inn tími dagsins erfiðari en annar
og þá er gott að breyta eitthvað
til og hafa nóg að gera á þeim
tíma. Ef að reykingalöngunin er
til dæmis alltaf sterkust seinni
partinn þegar komið er heim úr
vinnu getur verið ágætt að fara
að stunda líkamsrækt á þeim tíma
eða gera eitthvað annað.“
Ingibjörg bendir á að þeir sem
hafi áhuga á að hætta reyking-
um sínum geti orðið sér úti um
alls konar efni hjá Lýðheilsu-
stöð, Krabbameinsfélaginu, Ráð-
gjöf í reykbindindi og í apótek-
um og bókabúðum. „Ég ráðlegg
öllum sem vilja hætta að reykja
að undirbúa sig sem best. Þeim
mun betri sem undirbúningurinn
er, þeim mun meiri árangurs má
vænta. Það er líka nauðsynlegt
að vera búinn að byggja upp já-
kvæða ímynd af sjálfum sér sem
reyklausum einstaklingi áður en
hætt er og horfa jákvætt á reyk-
leysið, ekki líta á það sem fórn
heldur frelsi.“
Undirbúningur og
viðhorf skiptir öllu máli