Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 53

Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 53
Það líður að kosningadegi hjá Hafnfirðingum. Í Blaðinu þann 3. mars sl. er vitnað í Guðna Ág- ústsson landbúnaðarráðherra þar sem hann telur að framtíð áliðn- aðar á Íslandi velti mikið á því hvernig kosningarnar um stækk- un álversins í Hafnarfirði fara. Hann tekur fram að nú liggi „nán- ast ekkert stórt fyrir í stóriðju- framkvæmdum nema stækkun ál- versins í Straumsvík“. Ábyrgð Hafnfirðinga er mikil. Kosningarnar 31. mars snúast um hvernig land við viljum byggja í framtíðinni. Viljum við búa í hreinu og sem minnst meng- uðu landi? Vilj- um við geta um frjálst höfuð strokið og lifað í þeirri vissu að það séu ekki er- lend stórfyrir- tæki sem hafi hér tögl og hagldir í atvinnumál- um? Sú staða gæti komið upp í framtíðinni að sömu aðilar ættu öll álver á Íslandi, sem gætu verið orðin þó nokkur. Þeir aðilar hefðu þá meiri völd en við sjálfsagt kærum okkur að hugsa til. Vísir að slíku er einmitt sú valdbeit- ing sem forsvarsmenn álversins í Straumsvík eru nú að beita Hafn- firðinga, þ.e. að hóta lokun ef þeir fá ekki sitt fram.Viljum við lifa í ótta um að lífsafkoman verði tekin af okkur vegna þess að öll eggin okkar voru sett í sömu körfuna í stað þess að stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi? Árum saman var þjóðinni talin trú um að líf án varnarliðs- ins á Suðurnesjum væri óhugs- andi. Sá dagur rann þó upp að her- inn fór og hvað gerðist? Íbúum á Suðurnesjum fer fjölgandi en ekki fækkandi og fasteignaverð hefur sjaldan verið eins hátt. Spenn- andi hugmyndir eru uppi um nýt- ingu svæðisins fyrir alþjóðlegan háskólabæ. Margir draga andann léttar og eru lausir við ýmis óþæg- indi sem fylgdu veru hersins s.s. hávaðamengun frá æfingaflugi. Hafnfirðingar, rétt eins og það reyndist líf eftir varnarlið þá er einnig líf eftir álver. Kjósið sam- kvæmt ykkar eigin samvisku og hafið hag komandi kynslóða í landinu í huga. Ekki láta börn- in ykkar vaxa upp í nágrenni við stærsta álver í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Ekki láta kom- andi kynslóðir búa við ofurvald erlendra stórfyrirtækja sem hafa heljartak á atvinnulífinu. Íslend- ingar þurfa ekki misskilda „hjálp“ erlendra aðila til að hafa í sig og á. Þjóðin hafði dug og þor til að standa ein þegar hún barðist fyrir frelsi frá Danmörku á sínum tíma, þrátt fyrir að hún væri í raun háð Dönum að flestu leyti. Gerum ekki forfeðrum okkar þá skömm að selja sál okkar fyrir peninga, sérstaklega ekki þegar hægt er að afla þeirra á annan hátt. Kæru Hafnfirðingar, ábyrgð ykkar er mikil. Látum ekki slag- orð ferðabæklinga framtíðarinnar vera: „heimsækið landið þar sem flest og stærst álver eru miðað við höfðatölu í heiminum“ eða „heim- sækið landið sem fórnaði flest- um náttúruauðæfum til að skaffa orku fyrir álver“. Höfundur er sjúkraþjálfari. Kæru Hafnfirðingar – ábyrgð ykkar er mikil Hjörleif-ur Gutt- ormsson setur með hrokafull- um hætti ofan í við mig og fé- laga mína í Samfylking- unni í Hafnarfirði í Fréttablaðinu á föstudag vegna íbúakosningar- innar í Hafnarfirði sem fram fer um næstu helgi. Þar er komið enn eitt dæmið um það að liðsmaður VG gagnrýni af hörku aðra stjórn- málaflokka fyrir tvíátta afstöðu. Á sama tíma virðist VG sem stjórnmálaafl ófært að gæta lág- marks samkvæmni í sínum eigin málflutningi í þessu máli. Full- trúi flokksins í bæjarstjórn stóð að ákvörðun um íbúakosningu - Hjörleifur gagnrýnir hana nú. VG í Hafnarfirði er á móti stækkun en ýmsir lykilfulltrúar VG í verka- lýðshreyfingunni í Hafnarfirði styðja stækkun. VG talar gegn stækkun á landsvísu en fulltrúi VG í stjórn Orkuveitunnar studdi orkusölu til stækkunar heilshugar með ítarlegri bókun. Stjórnmál taka breytingum. Deilumál á borð við stækkun í Straumsvík eiga sér fylgjendur og andmælendur í öllum flokkum. Al- menningur vill fá að taka ákvarð- anir um slík mál og hefur til þess allar forsendur. Blessunarlega fækkar þeim stjórnmálamönnum sem aðhyllast stjórnlyndi, valds- ins vegna. Það vekur furðu að Hjörleifur skuli vilja skipa sér í þann hóp, með því að tala gegn beinu lýðræði af slíku þjósti. Hjörleifi þótti tilhlýðilegt að vitna í Landsýn Steins Steinars, en ég vil svara honum með ljóðlínum lýðskáldsins Friðriks Sturlusonar Sálarmanns, „Hver er orginal?“. Ég er stoltur af því að vera öðru- vísi stjórnmálamaður en þeir sem aðhyllast ráðstjórn og stjórnlyndi. Þess má jafnframt geta, að í um- ræddu ljóði Steins Steinars fangar skáldið einmitt ágætlega þá hug- sjón okkar Samfylkingarfólks, að vilja setja stór mál í kosningu á meðal íbúa: „Sjá hér er mitt land, mitt líf og mitt lán, ég lýt þér mín ætt og mín þjóð“. Ég er stoltur af að lúta minni þjóð. Það væri óskandi að Hjörleifur treysti sér til þess líka. Höfundur er forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði. Ég lýt þér mín þjóð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.