Fréttablaðið - 29.03.2007, Side 56
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
bróðir og vinur,
Jón Sigurðsson
frá Núpskötlu, Krummahólum 4, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut að
kvöldi 23. mars sl. Útförin fer fram frá Snartarstaða-
kirkju laugardaginn 31. mars kl 14.00.
Ármann Freyr Jónsson Ragnheiður Jónsdóttir
Guðmundur Antonsson
Þorsteinn Már Guðmundsson Breki Guðmundsson
Haraldur Sigurðsson
Vigdís Valgerður Sigurðardóttir
Kristbjörg Sigurðardóttir
Hrafnhildur Einarsdóttir
Ástkær móðir okkar,
Sigrún Sigurðardóttir
Ásbjarnarstöðum,
lést mánudaginn 26. mars á Heilbrigðisstofnuninni á
Hvammstanga.
Börnin.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingibjörg J. Ingimundardóttir
frá Efri- Ey,
andaðist föstudaginn 23. mars á dvalarheimilinu á
Kirkjubæjarklaustri. Útförin fer fram frá Langholtskirkju
í Meðallandi föstudaginn 30. mars kl. 14.
Halla Jónsdóttir Magnús Emilsson
Sunnefa Jónsdóttir Ólafur Einarsson
Árni H. Jónsson Guðlaug B. Olsen
Svavar Jónsson Fjóla Þorvaldsdóttir
Eygló Jónsdóttir Jón Ingvar Pálsson
Ómar Jónsson Fanney Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
Guðmundur Össur
Gunnarsson
(Mummi),
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 30. mars klukkan 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Júlíana Sóley Gunnarsdóttir.
Elskulegi eiginmaður minn, faðir og afi,
Pétur J. Sigurðsson
Ósi, Arnarfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar 18. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Patreksfjarðar fyrir góða umönnun.
Þuríður Jónsdóttir,
börn og barnabörn.
Bróðir minn, mágur og frændi okkar,
Jóhannes Björnsson
frá Skagaströnd, Stóragerði 26,
lést aðfaranótt 24. mars síðastliðinn.
Útför fer fram föstudaginn 30. mars kl. 13 frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Úlfar Björnsson, Hanna Georgsdóttir og systkinabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórunn Ingunn
Þorsteinsdóttir
Gullsmára 5, Kópavogi,
sem lést fimmtudaginn 22. mars verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 2. apríl kl. 13.00.
Þorsteinn W. Guðmundsson
Freyja María Þorsteinsdóttir
Sveinn Þorsteinsson Bylgja Þorvarðardóttir
Þuríður Elísa Þorsteinsdóttir Kolbeinn I. Birgisson
Kristrún S. Þorsteinsdóttir Sigurjón Þ. Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Algleymi ástarinnar er
einsog gítartónn sem
ferðast milli heima.“
Stefán Baldursson leikstjóri var ráð-
inn óperustjóri hjá Íslensku óper-
unni á þriðjudag. Hann var valinn úr
hópi 24 umsækjenda um starfið en
það felur í sér bæði listræna stjórn-
un og fjármálalega ábyrgð á rekstri
Óperunnar. Stefán er enginn nýgræð-
ingur í rekstri á leiklistarstofnunum.
Hann var um langt skeið innanbúð-
ar á leiklistardeild Ríkisútvarpsins,
gegndi starfi leikhússtjóra Leikfélags
Reykjavíkur í Iðnó í hartnær áratug
og var þjóðleikhússtjóri í þrjú ráðn-
ingartímabil. Auk þess hefur hann
gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum í ís-
lensku menningarlífi, en jafnframt átt
farsælan feril sem leikstjóri. Íslenska
óperan er sjálfseignarstofnun og
hefur fyrirtækið verið rekið í nær ald-
arfjórðung í Gamla bíói, fimm hund-
ruð sæta kvikmyndahúsi sem reist var
í lok þriðja áratugar síðustu aldar við
Ingólfsstræti í Reykjavík. Íslenska óp-
eran nýtur styrkja frá íslenska ríkinu
á fjárlögum en fær að auki drjúgan
stuðning frá ýmsum einkafyrirtækj-
um til rekstursins.
Stefán tekur ekki til starfa fyrr en 1.
maí. Þá á Bjarni eftir mánuð af sínum
ferli. Mun verkefnaáætlun fyrir kom-
andi starfsvetur komin langt á leið.
Þegar hefur verið tilkynnt að ópera
Strauss, Ariadne auf Naxos, verði á
fjölunum í haust. Mun annað verkefn-
ið einnig ráðið en í samtali við Frétta-
blaðið í gær sagði Stefán að það væri
ekki hans að tilkynna hvað það væri.
Í samtölum við fjölmiðla hefur hann
lagt ríka áherslu á samband Óperunn-
ar við almenning: „Já, það er mikil-
vægt að Óperan hafi gott samband við
þjóðina. Það skiptir miklu máli. Óp-
eran stendur á tímamótum: Ég þekki
ekki tilboð bæjarstjórnar Kópavogs
sem kynnt hefur verið í fjölmiðlum
nægilega vel til að geta tjáð mig um
það. Það verður að skoða ofan í kjölinn
og kanna hvort þar er alvara að baki,
hvort það sé raunhæf lausn á húsnæð-
ismálum Óperunnar að það rísi óp-
eruhús í Kópavogi. Nú svo er að rísa
tónlistar- og ráðstefnuhús í næsta ná-
grenni við Óperuna. Það eru því marg-
ar og mikilsverðar ákvarðanir sem
bíða næstu misserin.“
Í samtali við Stefán kemur í ljós að
áhugi hans á óperum stendur á fornum
grunni. Hann segir að raunar hafi hann
heillast að óperum snemma. Fyrstu
óperuna hafi hann eignast þegar hann
var í landsprófi, og það hafi verið Car-
men. Fyrsta sviðsetning óperu sem
hann hafi séð hafi verið Don Pascale á
sviði Þjóðleikhússins. Hann segist hafa
séð 90 prósent af sviðsetningum á óp-
erum hér á landi um fjögurra áratuga
skeið og hafi líka verið iðinn að sækja
óperur á erlendri grund. Hann hefur
lagt áherslu á að óperan er sviðsrænt
form: „Hún er spennandi sökum þess
að þar ræður tónlistin ferðinni.“
Bandarískt herlið fer frá Víetnam