Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 57

Fréttablaðið - 29.03.2007, Page 57
AME REYKJAVÍK ATLANTIC MUSIC EVENT MARS 2007 FÆREYSK TÓNLISTARUPPLIFUN Á NASA · 31. MARS · KL. 22.00 A M E ATLANTIC MUSIC EVENT Forsala aðgöngumiða í verslunum Skífunnar og á midi.is. Miðaverð 2.200 kr. www.eivo r.com Eivør Pálsd óttir www.teitu r.com Teitur www.mys pace.com/ gestir Gestir www.bran dur.com Brandur En ni Høvuðsstuðlar: Aðrir stuðlar: Sjómannaheimilið Ørkin · RUV - Rás 2 Jákup Jakobsen S te p h a n sso n s H ú s Tilboð á færeyskri tónlist í öllum verslunum Skífunnar www.hogn i.com Høgni Lisbe rg Það er trukk í óperum á Íslandi þessar vikurnar: Óperusmiðjan frumsýndi tvo óperuþætti eftir Puccini á föstudag; annan í pásk- um verður Cavalleria Rusticana frumsýnd í Gamla bíói; í þessari viku hefur karlakórinn Fóstbræð- ur frumflutt nýja gamanóperu eftir Jón Ásgeirsson. La Traviata verður sett upp á sæluviku Skag- firðinga 29. apríl. Íslenska óperan hefur verið gagnrýnd fyrir að koma ekki ís- lenskum verkum á svið. „Það er mikilvægt að Óperan rækti og sinni nýsmíð á óperuverkum, hún komi íslenskum óperum á svið eins og efni leyfa og tækifæri eru til,“ segir Stefán. Stefán var í þriggja manna mats- nefnd sem kom að lokavinnslu á tillögum að tónlistarhúsinu nýja: „Þetta var ferli sem stóð í nær ár og reyndist mjög spennandi þró- unarverkefni. Verkinu var skilað í áföngum og jafnan leitað álits hjá fagaðilum við hvern áfanga og því breyttist ýmislegt á þessu skeiði. Tónlistarhúsið er heimili sinfóníunnar en hún mun aðeins leika þar 50 til 60 kvöld á ári. Þar verður margs konar önnur tónlist flutt. Það hefur því verið talað um að þar komi upp í aðalsalnum óp- erur og söngleikir meðal annars. Það er ekki hannað sem leikhús, hefur ekki turn fyrir flugkerfi, en þar verður hljómsveitargryfja og má koma hringsviði, auk þess sem ljósabúnaður verður fullkominn og mjög hefur verið rýmkað um aðkomuleiðir á sviðið.“ Er nema von að Stefán svari að bragði þegar hann er spurður hvað sé títt: „Allt gott.“ Styrktartónleikar fyrir munaðar- laus börn í Rúmeníu verða haldn- ir í Aðventkirkjunni í Reykjavík í kvöld. Flytjendur verða Davíð Ól- afsson, Hlín Pétursdóttir, Kristina og Sonja Guðnadætur. Allur ágóði rennur til heimilis fyrir munað- arlaus og yfirgefin börn í barna- þorpi Alþjóðlegu barnahjálparinn- ar í Odobest í Rúmeníu. „Það hefur verið draumur lengi að vera með styrktartónleika til að kynna betur starfsemina heima og úti, þannig að fyrir þessa tónleika fengum við þetta frábæra fólk til liðs við okkur,“ segir Þóra Lilja Sigurðardóttir. Rúmenía glímir við afar hátt hlutfall yfirgefinna barna. Barna- hjálp Sameinuðu þjóðanna áætlar að tíu þúsund börn séu skilin eftir ár hvert á spítölum í Rúmeníu í að minnsta kosti sjö daga. Opinberar tölur herma að nú séu 32.000 börn í umsjón ríkisins og götubörn séu fimm þúsund. Götubörnin eru allt niður í þriggja ára gömul. Mann- réttindasamtök telja að tölur yfir munaðarlaus og yfirgefin börn séu enn hærri og sífellt berast fréttir af brotalömum í rúmenska kerfinu. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og er miðaverð 1.500 krónur. Tónleikar fyrir munaðarlaus börn AFMÆLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.