Fréttablaðið - 29.03.2007, Side 66
Brátt ganga páskarnir, og með-
fylgjandi súkkulaðiæði, í garð.
Þeir sem vilja prófa eitthvað
annað en gömlu, góðu páskaeggin,
ættu að leggja leið sína í Vínberið
við Laugaveg.
„Ég er til dæmis með handgerð
páskaegg frá Belgíu. Eggin frá
Bruyerre eru handmáluð, og svo
er ég með páskaegg frá Gudrun
sem eru konfektfyllt,“ útskýrði
Bryndís Gísladóttir hjá Vínber-
inu. Fólk getur jafnframt feng-
ið sér persónulegt páskaegg.
„Við erum með páskaeggjaskelj-
ar frá Neuhaus. Það eru sem sagt
tómar skeljar í dökku, ljósu og
hvítu súkkulaði. Fólk getur valið
úr konfektborðinu eða hvað það
vill í búðinni til þess að setja inn
í eggin. Við setjum þau svo saman
fyrir fólk,“ sagði Bryndís. Þó að
súkkulaðið sé belgískt er íslenska
hefðin enn í hávegum höfð, því
Bryndís stingur málshætti inn í
eggin. „Sumir hafa meira að segja
keypt þetta til að pakka ferming-
argjöfum inn í,“ benti hún á.
Þar fyrir utan býður Vínberið
upp á konfektfyllt egg frá Hafliða
Ragnarssyni, fagurlega skreytt
súkkulaðiegg, og ýmiss konar
páskafígúrur úr súkkulaði. „Fólk
sækir í þetta. Þetta er náttúrulega
hágæða súkkulaði,“ sagði Bryndís.
Páskaegg fyrir sælkerana
Þemadögum vínbúðanna tileinkuðum Bandaríkjunum og Argent-
ínu lýkur á morgun. Minna hefur farið fyrir þessum dögum en stund-
um áður og er það skaði því úrvalið er alveg prýðilegt og sérstaklega
er gott úrval dýrari vína. Hvort um er að kenna skorti á framsetn-
ingu og kynningu eða sinnuleysi vínáhugamanna veit ég ei. En hvet
þá sem vilja gera góð kaup í frábærum vínum að tosa upp sokkana.
Hafliði Loftsson víninnflytjandi á mörg frábær vín sem eru á sérlista
á þemadögunum. Hann segir þó dagana einhverra hluta vegna ekki
hafa tekist sem skyldi.
„Framleiðendur sem við sóttumst eftir sérstaklega vegna þemadag-
anna eru annars vegar Truchard Vineyards í Carneros, sem er mjög
góður og Pinot Noir-inn þeirra talinn einn sá besti í Ameríku. Hinn er
Stag’s Leap sem er heimsfrægur einkum fyrir sigur í Parísarsmökk-
un 1976 og endurtekningu núna, annað sæti upphaflegu vínanna og
fyrsta sæti Lundúnamegin í þeim ungu,“ segir Hafliði og bætir við
að því miður hafi þessi vín ekki selst mikið né heldur Finca Altam-
ira sem hann segir hugsanlega magnaðasta vín Suður-Ameríku. Það
er frá vínhúsinu Achaval Ferrer sem vínspekingurinn Hugh Johnson
telur til bestu víngerðarhúsa Argentínu. Tvö vín hússins eru í boði,
annað á innan við 3.000 kr. sem er einstakt verð fyrir svo gott vín.
Einhver besti framleiðandi Argentínu í góðum borðvínum er Triv-
ento. Fá má hvorki fleiri né færri en tíu vín frá þessu prýðilega vín-
húsi á kynningarverði á þemadögunum. Þau kosta frá 790 og upp í
1.090 kr. í flöskum en einnig má fá kassavín. Trivento þýðir „þrír
vindar“ og er kennt við þá vinda sem hafa gert vínrækt mögulega:
Polar-vindinn, sem eins og nafnið bendir til, blæs kaldur um vínekr-
urnar á veturna, Zonda sem kemur að vestan frá Andes-fjöllunum
með hlýjuna á vorinu og Sudestada að austan kælir svæðið í sumar-
hitanum og ber raka með sér. Þessir vindar gera vínrækt eins arð-
bæra og raun ber vitni, og Triv-ento þykir hafa komið með ferska
vinda í vínheiminn.
Vínekrurnar eru orðnar 565 hektarar og þrúgurnar eru
þær sem hafa reynst best í Argentínu, fyrir utan alþjóð-
legu þrúgurnar (cabernet sauvignon, merlot, shiraz, chard-
onnay) sem þrífast mjög vel á Mendoza-svæðinu. Þar eru í
sviðsljósinu malbec, bonarda, torrontes, chenin, viognier,
sangiovese og fleiri.
Vindasamir þemadagar
Besta máltíðin hlaðborð á Balí
Athugaðu …
… að enn eru þrjár vikur í sum-
ardaginn fyrsta. Skelltu lit-
ríkum blómum í eldhúsglugg-
ann til að brúa bilið þangað til
lóan lendir í þínum garði.
Börkur Hrafn Birgisson er
liðtækur í fleiru en tónlist.
Hann heldur heiðri móður
sinnar á lofti í eldhúsinu, og
fæðir fjöldann með fiski-
súpu og fönki.
„Uppskriftin er einn af heilögum
kaleikum móður minnar. Mömm-
umaturinn er bestur, það er nú
bara þannig,“ sagði Börkur léttur
í skapi. „Við erum þrír bræðurn-
ir, og mér sýnist að ég sé sá eini
sem mun halda merkjum hennar á
lofti,“ bætti hann við.
Klausturbleikja er aðalatriðið í
uppskriftinni, enda ber hún nafn-
ið Klausturbleikjusúpan hennar
mömmu. „Þetta verður að vera
Klausturbleikja, annars er þetta
bara plat. Það má nota þorsk eða
ýsu, en þá er þetta bara þorsks-
úpan hans Dúdda frænda,“ segir
Börkur grafalvarlegur.
Börkur er flestum hnútum
kunnugur í eldhúsinu, enda var
hann kokkanemi á árum áður.
„Ég var að vinna sem kokkanemi
í Perlunni í eitt ár, á lúsarlaunum
og með kvíðahnút í maga,“ segir
hann og hlær við. „Mér leist ekki
á að leggja þetta fyrir mig, og
ákvað einn góðan veðurdag að ég
vildi verða tónlistarmaður. Það
var mjög lærdómsríkt ár samt.
Maður fékk að gera ansi mikið,“
sagði Börkur.
Umrædda súpu matreiddi hann
eitt sinn á menningarnótt og fæddi
um fjörutíu manns með henni.
„Þetta er ekta svoleiðis matur,
maður getur verið með standandi
partí. Ég var bara með risapott,
fullt af brauði og hvítvín og bjór.
Svo var opið hús frá níu um kvöld-
ið og til tvö, þrjú um nóttina. Fólk
labbaði í gegn og fékk eina skál,“
útskýrði hann. „En svo er líka al-
gjört möst að vera með góða tón-
list. Þessi súpa kallar á fönktón-
list,“ sagði Börkur, sem er því ekki
heldur alveg ókunnugur, þar sem
hann spilar fönk af fullum krafti
á Kaffi París á föstudögum. Með
súpunni mælir Börkur svo með
því að bera fram ferskt brauð.
„Það er alveg ómissandi. Brauð og
fönk,“ sagði hann.
Saxið lauk smátt og steikið í
smjöri eða olíu. Bætið kryddi í og
látið krauma.
Bætið hvítvíni saman við og
sjóðið það niður um helming.
Bætið vatni, rjóma, rjómaosti,
súputeningum og fisksoði (vatn
og 3-4 fiskiteningar) saman við og
látið suðu koma upp.
Skerið bleikjuna í lítil stykki,
gott er að plokka beinin úr með
augnabrúnaplokkara.
Setjið bleikjubitana út í rétt
áður en súpan er borin fram.