Fréttablaðið - 29.03.2007, Side 69
Áfrýjunardómstóll í London hefur
úrskurðað að rithöfundurinn Dan
Brown hafi ekki notað hugmyndir
úr bókinni The Holy Blood and the
Holy Grail í metsölubók sinni The
Da Vinci Code.
Michael Baigent og Richard
Leigh, höfundar The Holy Blood
and the Holy Grail, höfðuðu mál
gegn Brown og sökuðu hann um
ritstuld. Þurfa þeir nú að greiða
hundruð milljóna króna í lög-
fræðikostnað.
Hæstiréttur í London úrskurð-
aði í apríl í fyrra að Brown hefði
ekki notast við hugmyndir úr sömu
bók. Ákváðu Baigent og Leigh þá
að áfrýja málinu.
The Da Vinci Code, sem var
gefin út árið 2003, hefur selst í
rúmlega fjörutíu milljónum ein-
taka. Bók Baigent og Leigh, sem
var gefin út árið 1982, hefur selst í
tveimur milljónum eintaka. Báðar
bækurnar byggja á þeirri hug-
mynd að Jesús Kristur og María
Magdalena hafi átt barn saman
og að afkomendur þeirra séu enn
á lífi.
Dan Brown
sýknaður
Breski leikarinn Ray Winstone
hefur tekið að sér hlutverk í fjórðu
myndinni um fornleifafræðinginn
ævintýragjarna Indiana Jones.
Winstone sást síðast á hvíta tjald-
inu í hinni vinsælu The Depart-
ed í leikstjórn Martin Scorsese,
auk þess sem hann lék nýverið í
Breaking and Entering í leikstjórn
Anthony Minghella.
Winstone mun leika aðstoðar-
mann Harrisons Ford í Indy 4.
Áður hafði Cate Blanchett tekið
að sér hlutverk í myndinni, sem
verður leikstýrt af Steven Spiel-
berg. Áætlað er að tökur hefjist í
júní og er myndin væntanleg í bíó
22. maí á næsta ári.
Winstone
leikur í Indy
ALLT ANNAÐ LÍF! - með vinstri grænum
Vinstri græn opna nýja kosningamiðstöð í ASÍ - húsinu Grensásvegi 16, í kvöld.
Léttar veitingar, ljúfir tónar og leikandi gleði
Allir velkomnir