Fréttablaðið - 29.03.2007, Síða 80
Fyrir 11. september létu flug-vallastarfsmenn það gjarnan
nægja að spyrja: Fékkstu hjálp
við að pakka? Við þessu var
flest annað en „Já, síðskeggjað-
ur maður með lambhúshettu lét
mig hafa pakka sem ég held að sé
vekjaraklukka,“ rétt svar.
er öldin önnur. Ég keypti
mér miða til New York. Sama
dag hringdi kona frá Flugleið-
um alveg miður sín því hún hafði
gleymt að segja mér að ég þyrfti
að fylla út mjög mikilvægt skjal,
en ég gæti gert það á netinu.
Ég mætti alls ekki klikka á að
prenta skjalið út og taka það með
í flugið. Alls ekki! Ég lagði mikla
vinnu og hágæðapappír í að upp-
fylla ósk Flugleiða, en þegar til
kom bað auðvitað enginn um að
sjá hið mikilvæga skjal.
á flugvöllum virð-
ast breytilegar frá degi til dags.
Það er losarabragur á öllu. Það
er eins og maður eigi alltaf að
vera á nálum. Ég þorði ekki að
kaupa vatn til að hafa með í vél-
ina. Það er víst bannað, en samt
ekki, hvað veit maður? Svo er
kannski bannað að hafa með sér
penna því maður getur rænt þot-
unni með honum. Flugfreyjan
kom með tollmiða sem ég átti að
fylla út. Ég reyndi að segja henni
að ég væri pennalaus en kom
ekki upp orði því ég var upp-
skrælnaður.
en maður kemst gegn-
um hliðið til Bandaríkjanna þarf
að gefa fingraför í sérstöku tæki
og tekin er andlitsmynd. Sá sem
býr til allt þetta nýja öryggisdót
er aldeilis að græða. Gæti verið
að hann sé hliðhollur stjórnvöld-
um?
fyrir gerviöryggisrugl-
ið blöskraði mér ekki fyrr en ég
kom heim, ósofinn og pirraður.
Eldgamla Ísafold hefur hingað
til tekið á móti manni með góð-
legum tollverði sem nægt hefur
að nikka til og segja góðan dag-
inn. En nú var aldeilis hlaupið of-
kapp í liðið. Mér var skipað úr
skónum, látinn taka af mér beltið
og rekinn í gegnum enn eitt rönt-
genhlið.
helvítis ruglið! Það er
í lagi að þola svona meðferð á
leið í hriktandi háloftadós en til
hvers að standa í þessu á leiðinni
heim til sín? Nema þetta sé tákn-
ræn aðgerð til að undirstrika að
eina leiðin til að lifa á Íslandi sé
með buxurnar á hælunum?
Gervi-
öryggisrugl
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
Ókeypis lögfræðiaðstoð alla fi mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012
Ævintýraleg
símatilboð
Allir símar frá Vodafone afhendast forhlaðnir,
forstilltir og með 2 ára ábyrgð.
Með Vodafone live! kemst þú á Netið í símanum
þínum og getur til dæmis skoðað hvað er í bíó,
náð í brandara, skoðað stjörnuspána þína og
halað niður hringitónum og skjámyndum.
Komdu í næstu Vodafone verslun, hringdu í
1414 eða smelltu þér inná www.vodafone.is til
að fá nánari upplýsingar.
Gríptu augnablikið og lifðu núna.
Vodafone live!
Nokia 6234
Miklu meira en bara sími.
Með Bluetooth, myndavél,
útvarpi, steríó heyrnartólum
og styður minniskort.
Vodafone live!
Nokia 6131
Þú getur horft á Sky News
allan sólarhringinn, sótt
og horft á fréttir Stöðvar 2
ásamt fleira spennandi efni.
Vodafone live!
Sharp GX-17
Mjög fjölhæfur á ótrúlegu
verði.Með Bluetooth,
myndavél og USB
tengjanlegur.
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Ævintýraverð
26.900 kr.
Ævintýraverð
9.900 kr.
Ævintýraverð
19.900 kr.