Fréttablaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 36
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
„McCarthy-ismi er Ameríkuismi
með uppbrettar ermar.“
Bandaríkin festa kaup á Louisiana
Tvö af framsæknustu nöfnunum í sístækkandi hljóðlista-
senu landsins, Finnbogi Pétursson myndlistarmaður og
hljómsveitin Ghostigital, munu sameina krafta sína á kom-
andi Listahátíð og hyggjast baða höfuðborgina radiumhjúp
meðan á henni stendur. Verkið „Radium“ verður ósýnilegt
en aðgengilegt í útvarpinu.
Finnbogi starfaði á árum áður með tilraunakenndari
hljómsveitum landsins, þar á meðal með gjörningasveit-
inni BB Bruna en tók síðan „smá vinstri beygju“ af þeirri
braut. Tónlistin eða hljóðheimurinn hefur þó alltaf átt
sinn sess í list hans og hann hefur að undanförnu unnið
mikið með hljóð í verkum sínum. „Það hefur alltaf stað-
ið til að við Einar [Örn Benediktsson] myndum delera eitt-
hvað saman,“ útskýrir Finnbogi en þeir hafa þekkst lengi.
Einar starfar undir merkjum Ghostigital ásamt hljóðlista-
manninum Curver Thoroddsen og segir Finnbogi að músík
þeirra kallist á við framsækni hljómsveita á borð við BB
Bruna.
„Við vitum minnst sjálfir hvernig útkoman verður,“
segir Finnbogi sposkur en bjartsýnn á að allt muni smella
saman enda deila félagarnir þrír svipaðri sýn á sköpunina.
„Ég sé þetta fyrir mér sem eina allsherjar súpu. Framlag
mitt verður líklega dálítið mínimalískt. Þeir eru líka örg-
ustu mínimalistar þótt þeirra tónlist hljómi kaotísk.“
Verkið „Radium“ verður alltumvefjandi hljóðheimur sem
Finnbogi og félagar munu skapa úr umhverfishljóðum borg-
arinnar. Fjörið hefst á upphafsdegi Listahátíðar 10. maí en
þá senda Ghostigital og Finnbogi út frá Listasafni Íslands.
„Hugmyndin er að spila á borgina Reykjavík. Við verðum
með hljóðnema í umhverfinu og snertimíkrafóna sem við
setjum á byggingar og akbrautir. Það verður enginn óhult-
ur og fólk getur orðið óvæntir þátttakendur í verkinu. Við
blöndum síðan öllum hljóðunum saman í búnaðinum okkar
og sendum hann út. Eina aðkoman að verkinu verður í gegn-
um útvarpsrásina Rondo á FM 87,7.“
Þeir stefna að því að Rondo muni senda út verkið meðan
á hátíðinni stendur en það mun byggjast upp með hverju
hljóði. „Þetta verður eins og radium-hjúpur sem mun
þykkna með hverjum deginum,“ áréttar Finnbogi.
Unnið verður með þrjú svæði en þegar Finnbogi og
Ghostigial færa sig upp í Breiðholt og senda út frá Rjúpna-
felli verða tímamót í útvarpssögu Íslands því þá verð-
ur sköpuð svokölluð „quatrafónía“ í útsetningu RÚV. „Þá
tengjum við saman útsendingu Rondo og Hlaupanótunnar
á Rás 1,“ segir Finnbogi en afrakstur þess verður harla
spennandi „surround-hljómur“ á verkinu. „Ef fólk verður
sér út um tvö steríóútvarpstæki, flestir eiga jú eitt heima
og eitt í bílnum, og stillir þeim upp þannig að fremra tækið
er stillt á Rás 1 og hið aftara á Rondo þá verða hughrifin
vægast sagt mögnuð,“ segir Finnbogi sannfærandi.
Okkar ástkæra móðir, dóttir, tengdamóðir,
amma og systir,
Bryndís Svavarsdóttir
fv. bankastarfsmaður, Efstalandi 6,
Reykjavík,
andaðist í Portúgal aðfaranótt laugardagsins 28. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
María Björk Óskarsdóttir Þór Sigurgeirsson
Haukur Óskarsson Hulda Bjarnadóttir
María Steingrímsdóttir
Systkini, barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma
Oddný Sigríður
Jónsdóttir (Ossý)
lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 20. apríl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
3. maí kl. 13.00.
Jón Gunnar Sigurðsson
Guðrún Jónsdóttir Stefán Pálsson
Ólöf Jónsdóttir Viðar Sigurjónsson
Auður Jónsdóttir Kristinn H. Þorsteinsson
Ólafur Th. Jónsson Hildur Guðjónsdóttir
Geir Hafsteinn Jónsson
Ömmubörn og langömmubörn.
Elskaður sambýlismaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Halldórsson
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn
14. apríl sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 4. maí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Ragnheiður Kristjánsdóttir
Þórhallur Pálsson
Guðný Þuríður Pálsdóttir
Halldóra Pálsdóttir
og fjölskyldur.
Elsku faðir minn og afi okkar,
Pétur Pétursson
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 4. maí kl. 13.
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
Pétur Gunnarsson
Eyþór Gunnarsson
Birna Gunnarsdóttir
Sólveig Anna Jónsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Lilja Kristinsdóttir
Skólabraut 5, Seltjarnarnesi,
andaðist að heimili sínu aðfaranótt 19. apríl sl.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju á morgun,
fimmtudaginn 3. maí, kl. 15.00.
María Jóna Gunnarsdóttir Jóhann Bergmann
Soffía Kristín Sigurðardóttir Kjartan Tryggvason
Kristín Elínborg Sigurðardóttir Kristján Gissurarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Bróðir minn elskulegur,
Herbert Ólafsson
húsvörður,
sem lést 25. apríl sl. verður jarðsunginn frá Áskirkju
föstudaginn 4. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karitas Laufey Ólafsdóttir.