Fréttablaðið - 02.05.2007, Side 25
Sigrún Sif Jóelsdóttir fór í hugleiðsluferð til Ind-
lands og varð djúpt snortin af lífsgleði íbúanna.
Sigrún Sif Jóelsdóttir sálfræðinemi hefur verið með-
limur í Ananda Marga í sex ár, hreyfingu sem leggur
áherslu á hugleiðslu, jóga og hjálparstarf. Hún hefur
ferðast víða í tengslum við starfsemi hreyfingarinn-
ar og segist hvergi hafa hitt jafn andlega fullnægt
fólk og á ferðalögum sínum um Indland.
„Það var einstök lífsreynsla að fara til Indlands,“
segir Sigrún, sem fór ásamt syni sínum og vinum. „Ég
fékk fyrst algjört menningarsjokk eins og við mátti
búast og fannst erfiðast að sjá þær ömurlegu aðstæð-
ur sem fólk býr við í fátækrahverfunum. Ég var þó
jafn hissa að sjá hversu fáir voru beygðir. Meira að
segja þeir sem voru líkamlega illa á sig komnir. Fólk-
ið hafði mikið að gefa, ólíkt andlegu fátæktinni sem
ríkir á Vesturlöndum.“
Sigrún telur andlega fullnægju Indverja, jafn-
vel þeirra sem hafi það hvað verst, sprottna upp af
þeirri rækt sem lögð er við andlega vellíðan í land-
inu. „Þetta eru ákjósanlegustu aðstæður sem ég hef
komist í til að stunda hugleiðslu. Mér fannst rosalega
gott að upplifa það að vera í samfélagi þar sem íbúun-
um finnst andleg ástundun svona eðlilegur og nauð-
synlegur hluti af mannlegri tilveru.“
Tímanum á Indlandi vörðu Sigrún og félagar í
ferðalög og hugleiðslu. Þau hófu ferðina í höfuðborg-
inni Delí og fóru þaðan suður á bóginn og höfðu meðal
annars viðkomu í Varnassi, borg sem hindúar telja
heilaga, og enduðu í Puri. „Við dvöldum í athvörfum
á vegum Ananda Marga, stunduðum þar hugleiðslu,
oftast tvisvar á dag, og sungum kirtan, sem eru eins-
konar möntrur, til að komast í æðra lífsástand og
senda frá okkur jákvæða orku. Þetta var frábær tími
og það er ekki spurning að ég ætla að fara aftur til
Indlands um leið og tækifæri gefst.“
Andleg auðæfi í fátækra-
hverfum Indlands
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
20.500
Vika í Bretlandi
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
Ford Fiesta eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07