Tíminn - 04.05.1980, Síða 31

Tíminn - 04.05.1980, Síða 31
Sunnudagur 4. mai 1980 31 Kvikmyndahornið Hitch 1889-1980 1 siöustu viku lést hinn kunni leikstjóri Alfred Hitchcock. Eft- ir hann liggja margar frábærar kvikmyndir eftir óvenju langan feril. Fyrstu mynd sina geröi Hitchcock 1925 og fljótlega varö hann mjög kunnur leikstjóri og örugglega jafn kunnur húmoristi. Seint á fjóröa ára- tugnum flutti hann til Banda rikjanna og hélt stööugt áfram aö gera kvikmyndir. Hitchcock var einn af fáum mönnum sem nafniö eitt var trygging fyrir gæöum. Hitchcock er sennilega frægastur fyrir hryllingsmyndir sinar t.d. Psycho (1960) og einn ig fyrir grin-thrillera, t.d. North by Northwest (1959) og The Lady Vanishes (1938), en eftir hann liggja 52 myndir. Hitchcock var viökunnur fyrir kimnigáfur sinar og er ekki úr vegi aö vitna til þess þegar hann og kunningi hans voru i lyftu 'fullri af ókunnugu fólki. Hitch- cock lét þá detta út úr sér svo allir heyröu: „Ég hélt aö gamla manninum myndi ekki blæöa svona mikiö”. Þegar hann varð sjötugur sagöi hann,,,Eg er ekki Meistarinn Alfred Hitchcock sjötiu ára, ég er tvisvar sinnum 35 ára”.‘ Það er ljóst aö einstakur maö- ur er látinn, en myndirhans lifa áfram og halda áfram að hafa ómæld áhrif á kvikmyndagerð eins og John Frankenheimer sagði: ,,Sá leikstjóri, amerisk ur, sem afneitar áhrifum hans, er ekki meö öllum mjalla”. örn Þorisson. Klámið, sei, sei (★★) Stjörnubió Hardcore Leikstjórn og handrit: Paul Schrader Aöalhlutverk: George C. Scott, Peter Boyle, Season Hubley og Dick Sargent Paul Schrader hlýtur ein- hvern tima að hafa fengiö köll- un. Hann þreytist seint á aö sýna manni sorann i bandarisku þjóölifi. Schrader geröi handrit iö á slnum tima fyrir Taxi Driv- er og einnig fyrir aöra svipaöa mynd Rolling Thunder (sýnd I Hafnarbló siöastliöiö haust). Þaö væri nú allt I lagi ef hann sýndibara sorann, en honum er einnig ofarlega I huga lausn út úr honum. Sú lausn er aðallega nokkurs konar hreinsun borgar- ana meö skammbyssu. Þaö veröur aö tala þaö tungumál sem glæpamennimir skilja. All- ar þessar hugmyndir eru ofar- lega á baugi I nýjustu mynd Schraders, Hardcore. Hardcore fjallar um heiðar- legan ofsatrúarmann, Jake Van Dorn, sem misstir dóttur til stórborgarinnar I spillinguna sem þar er. Ekki er ljóst hvort henni hefur veriö rænt eöa hvort hún hefur fariö sjálfviljug og veldur sú hugmynd Van Dorn miklum kvölum. Van Dorn ákveöur aö elta dóttur slna til sjálfrar höfuöborgar sorans, Los Angeles. Van Dorn kemst að þvl aö dóttir hans er komin á kaf i klámbransann, en meö hjálp götumellu, Niki, reynir hann aö hafa upp á henni. Það tekst meö aöferöum sem lög- reglunni eru bannaöar og er óhætt aö segja aö allt endar vel. Klámbransinn eins og hann er I Bandarlkjunum er okkur Is- lendingum ókunnur, en samt er ekki loku fyrir það skotiö aö hann sé kominn I startblokkim- ar á vissum sviöum hér á landi. Vissulega er miður fögur mynd gefin af klámbransanum I Hardcore, en þaö réttlætir ekki hugmyndir Schraders um rétt borgarnna til aö skjóta og drepa til að ná rétti sinum. Þaö er alveg rétt aö lögreglan getur illa sinnt sinu starfi en aldrei má llta á vökumannahugmynd- ina sem einhverja lausn. Hardcore bregst illa I persónusköpun, t.d. er aldrei ljóst hvort Kristen (dóttirin) hefur fariö sjálfviljug út I klám- bransann. Reyndar er þaö gert upp spennumyndun.ensamt.Iafn rábær leikari og George C. Scott er á i erfiðleikum meö hlutverk sitt vegna þess hvaö þaö er illa uppdregiö. Scott er kannski full liberal legur til aö geta veriö sannfærandi. Season Hubley er hins vegar góö sem hóran sem hjálpar Van Dorn. Þó aö þaö sé aldrei sagt hefur maöur á til- finningunni aö hún sé nokkurs konar fullorðin Kristen, aö hún hafi hlaupist aö heiman og hafi fengiö svipaö uppeldi. Ekki er hægt aö skrifa um Hardcore án þess aö minnast á tónlist Jack Nietsche. í mynd- inni er mikil tónlist og á köflum frábær, stundum yfirþyrmandi. Nietsche þessi er ábyrgur fyrir frábærri tónlist I mörgum myndum t.d. Gaukshreiörinu, Blue Collar (leikstýrö af Schrader) o.m.fl. Ég spái aö I framtlöinni muni þessi fyrrum liösmaöur Crazy Horse Neil Youngs fá fleiri verölaun en hann dreymir um. Hardcore er kvikmynd sem uppfyllir ekki þær vonir sem ég haföi bundið Paul Schrader. Hugmyndir hans eru aö veröa þvældar og ég hef hann grunað- an stundum um aö skrifa um klámbransann af vanþekkingu. Ég hef trú á því aö bransinn sé jafnvel óvægnari. Það sakar ekki aö geta þess I gamni, aö Paul Schrader var kosinn „Ass- hole of the Month” I hinu kunna tlmariti Hustler. Llklega llkaöi ekki • ritstjóranum auglýsingin sem blaöiö fékk meö myndinni. örn Þórisson. Bak við múrinn (★ ★) Laugarásbió Scum/A Garöinum Leikstjóri: Alan Clarke Aöalhiutverk: Ray Winstone, Mick Ford o.fl. Þaö er ekki ýkja langt síöan sjónvarpiö sýndi meistara- stykki Tony Richardsons, The Loneiiness of the Long Distance Runner (1963). Asamt þvl aö vera mikil karakterskoöun deildi sú mynd óvægiö á breskt menntakerfi og refsikerfi, og eftir aö hafa séö myndina duid- istengum aöbreytinga var þörf. Þegar kvikmyndin Scum er skoöuö, þá er ljóst aö breytingar hafa ekki oröiö neinar I Bret- lanedi og viröist þeirra ekki aö bænta I bráö miðaö viö stefnu rlkisstjórnar Thatcher. Kvikmyndin Scum fjallar um betrunarstofnun. Markmiö myndarinnar viröist fyrst og fremst vera aö sjokkera áhorf- endur sem mest og er óhætt aö segja aö þaö takist ágætlega, þvl sum atriöi myndarinnar eru meö þeim ruddalegri og ógeö- felldari sem ég hef séö. Sam- kvæmt myndinni eru betrunar- stofnanir ferlegar og er þar eng- in tilraun gerö til betrunar fanga. Þar ræður „tönn fyrir tönn” sjónarmiöiö hjá yfir- mönnunum og betrun óharön- aöra unglinga felst I barsmlöum og einangrunum. Arangur yfir- valda veröur aöeins tortryggni, hatur, dauöi eöa þá meiri fang- elsisvist vistmanna. Niöurstaöa Scum er sú, aö yfirvöld veröi aö sjá til þess aö unglingarnir séu endurhæföir og aö hætt veröi aö umgangast þá semskepnur. Aö mlnu mati er meö mynd- inni Scum ráöist á rangan staö I kerfinu. Vissulega væri hægt aö vanda meira til betrunar- húsa meö meira fjármagni og betra starfsfólki, en þar meö er litill vandi leystur. Aöalvand- inn, sem ekki kemur fram I myndinni, er I þjóöfélaginu sjálfu. Litill hluti af þeim ung- lingum sem heimsækja betrun- arstofnanir mundu koma ef þjóöfélagiö byggi þeim betri veröld. Eins og nú er ástatt i Englandi, þá hefur menntakerf- ið þaö hlutverk aö flokka fólk og ef svo vill til aö maöur lendir I lægstu stétt, þar sem atvinnu- leysi er mikið og allt niöurdrep- andi. Er nema von aö flestir reyni auögunarglæpi? Þvl miöur sýnir Scum lltinn skilning á þessum hlutum eöa hefurlítinn áhuga, öfugt viö t.d. áöurnefnda mynd Tony Richardsons. Karakterskoöun skiptir engu máli, þaö er helst aö vandræöamaöurinn Archer fái pláss, aörir vlkja fyrir markmiöinu um aö sjokkera sem mest. Samtal Archers og fangavarðarins er um margt at- hyglisvert og kemur þar I ljós aö kerfiö gerir ekki aöeins fangana aö skepnum heldur einnig fangaveröina. Scum er athyglisverö mynd, sem þvl miöur geldur af einhæfu sjónarhorni. Upphaflega var myndin gerö fyrir sjónvarp, en var bönnuö. örnÞórisson. .... . 1 Orðsending frá Lifeyrissjóði vers/unarmanna Lifeyrissjóður verslunarmanna hefur sent yfirlit til allra sjóðfélaga um greiðslur þeirra vegna til sjóðsins á síðasta ári, 1979. Yfirlit þessi voru send á heimilis- fang, sem sjóðfélagar höfðu 1. desember 1979 samkvæmt þjóðskrá. Þeir sjóðfélagar, sem fengið hafa sent yfirlit, en hafa athugasemdir fram að færa, svo og þeir sjóðfélagar, sem telja sig hafa greitt til sjóðsins á siðasta ári en ekki hafa fengið sent yfirlit, eru beðnir um að hafa samband við viðkomandi vinnuveit- anda eða skrifstofu sjóðsins. Lifeyrissjóður verslunarmanna Húsbyggjendur Upphifun með rafmagnsþilofnunum er ódýr og þægileg Stórlækkaður stofnkostnaður. — Hverfandi viðhald. ADAX rafmagnsþilofnarnir eru norskir og marg- verðlaunaðir fyrir fallega og vandaða hönnun. Þriggja ára ábyrgð er á öllum ADAX rafmagnsþilofnunum 3 gerðir. — Yfir 30 mismunandi stærðir. Gegnumstraumsofnar: 15 og 30 sm háir. Panilofnar: 28, 38 og 48 sm háir. Geislaofnar í baðherbergi. Fullkomið termostat er á öllum ADAX ofnunum. islenzkur leiðarvisir, samþykktur af Raftækja- prófun Rafmagnsveitna rikisins, fylgir hverjum ofni. Sendið okkur urklippuna hér að neðan — og við sendum yður um hæl nákvæmar upplýsingar um ADAX rafhitun. Þér getið einnig sent okkur teikningu af húsinu og við getum aðstcðað yður um val á staðsetningu ofnanna. Einnig getum við séð um útreikninga á hitaþörfinni. ---------------------------------------- Til Einar Farestveit & Co hf Bergstaðastræti 10a Reykjavík Ég undirritaður öska eftir bæklingum yfir ADAX rafhitun Nafn___________________________________________ Heimilisfang

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.