Fréttablaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 1
Sannleikurinn sést betur í þrívídd segir Krist-
leifur Daðason tölvunarfræðingur, sem fékk
gleraugun sín að gjöf f á
Reyndar er styrkurinn að iþrí ídd
Tjaldaðu með fjölskyldunni á 27 tjaldsvæðum
í allt sumar fyrir aðeins 9.900kr
AF
O
TS
A
G
NIS
Ý
utilegukortid.is
www.campingcard.is
Útilegukortið er komið!
Á happagleraugu
sannleikans
Grillað fyrir
grænmetisætur
gott á grilliðFIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 Grillað fyrir grænmetisæturHelga Mogensen gefur ljúf-fengar uppskriftir BLS. 2
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Opið til 21 í kvöld
Finndu
réttu gjöfina
Einar Oddur Kristjánsson
og tengdasonur hans, Illugi
Gunnarsson, eru fyrstu tengda-
feðgarnir til að setjast saman á
þing í meira en hálfa öld. Að sögn
Helga Bernódussonar, skrifstofu-
stjóra Alþingis, gerðist það síðast
þegar þeir Ásgeir Ásgeirsson og
Gunnar Thoroddsen sátu saman á
Alþingi nánast óslitið frá 1934 til
1952. Illugi er í sambúð með dóttur
Einars Odds og kveðst hlakka til að
fara á þing með tengdaföður
sínum. Þeir viðurkenna þó að þrátt
fyrir að vera í sama flokki séu þeir
ekki alltaf sammála.
Þeir fyrstu í 55 ár
„Ég hef lengi stefnt að
því að leikstýra bíómynd. Jú, þetta
er mín fyrsta,“ segir kvikmynda-
gerðarmaðurinn Guðjón Hafþór
Ólafsson. Hann býr sig nú undir að
leikstýra ævintýramynd en í henni
leika stórstjörnur á borð við Roger
Moore og David Bowie.
Myndin heitir Cornelius Fly og
fjallar um breskan dreng sem
missir foreldra sína. Bowie leikur
gráðugan náunga sem vill fá
forræði yfir drengnum en Moore
leikur dómara í myndinni.
Leikstýrir Bowie
og Roger Moore
Stefnuyfirlýsing nýrr-
ar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar var kynnt í gær.
Málefni yngstu og elstu kynslóð-
anna eru sett í forgang og stöðug-
leiki í efnahagslífinu sagður eitt
brýnasta verkefnið. Formenn
stjórnarandstöðuflokkanna; Fram-
sóknarflokks, Frjálslynda flokks-
ins og Vinstri grænna, eru ekki á
eitt sáttir með yfirlýsinguna.
„Það er margt fallega sagt
þarna, og örugglega vel meint, en
það vekur athygli hvað þetta er
almennt orðað,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna. Hann kallar stjórnina
nýfrjálshyggju-hægrikratíska.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, segir
að sumu leyti ágætis stefnumótun
í sáttmálanum en orðalagið sé
loðið. Hann kveðst mjög ósáttur
við kaflann um sjávarútvegsmál
en fagnar því ef taka eigi á skatta-
málum með tilliti til lágtekjufólks.
„Það er ljóst að hér hafa báðir
stjórnarflokkarnir lagst á sína
hægri hlið,“ segir Guðni Ágústs-
son, nýr formaður Framsóknar-
flokksins. „Ég geri mér ljóst að
hér eru miklar breytingar í aðsigi
á mörgum sviðum og margt óunn-
ið í bakherbergjum sem gæti orðið
átakamál milli flokkanna.“
Forsvarsmenn hagsmunasam-
taka, sem rætt var við, segjast
flestir tiltölulega ánægðir með
stefnuyfirlýsinguna.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, væntir góðs samstarfs við
ríkisstjórnina og bindur vonir við
að hún nái vel saman. Grétar Þor-
steinsson, forseti ASÍ, fagnar því
að kallað sé eftir samráði varð-
andi atvinnulíf.
„Mér líst vel á það sem almennt
er skrifað um efnahagsstjórn og
atvinnulífið, skattaumhverfið og
ríkisreksturinn,“ segir Friðrik
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
Telja sáttmálann
loðinn og óljósan
Stjórnarandstaðan segir stefnuyfirlýsingu nýju ríkisstjórnarinnar óljósa. Ný-
frjálshyggju-hægrikratísk stjórn, segir formaður Vinstri grænna. Vænti góðs
samstarfs við ríkisstjórnina, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin segir í nýrri skýrslu að
Íranar hundsi tilmæli Sameinuðu
þjóðanna um að láta af auðgun
úrans. Þvert á móti vindi kjarn-
orkuáætlun þeirra óðum fram og
Íranar komi í veg fyrir alþjóðlegt
eftirlit með tilraununum.
Talsmaður Hvíta hússins
tilkynnti fljótlega eftir að
skýrslan var kunngerð að nú yrði
unnið að „næstu skrefum“ í
deilunni. Íranar væru með þessu
að einangra sig á alþjóðavísu.
Skýrslan eykur líkur á frekari
refsiaðgerðum SÞ gegn Íran.
Íranar hundsa
enn kröfur SÞ