Fréttablaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 6
VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD www.hi.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 3 74 76 0 5/ 07 METNAÐARFULLT, FRAMSÆKIÐ OG HAGNÝTT NÁM 6 námsleiðir BA í hagfræði BS í hagfræði BS í fjármálum Umsóknarfestur er til 5. júní. Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr. Styrktu stöðu þína og sæktu um. Rafræn skráning og upplýsingar um námið eru á vef viðskipta- og hagfræðideildar, www.vidskipti.hi.is. BS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum BS í reikningshaldi BS í stjórnun og forystu Hringdu í 530 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift! www.oryggi.is H im in n o g h a f / S ÍA Hver vak tar þitt heim ili? „Við erum mjög óhress með hægaganginn í þessu. Ásýnd bæjarins er alveg hroða- leg,“ segir Guðmundur Skarp- héðinsson, formaður skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar, um framkvæmdir við snjóflóðavarnargarða ofan við Siglufjörð. Suðurverk hf. hóf framkvæmd- ir við garðana vorið 2004 og áttu þær að taka þrjú sumur og ljúka í fyrrahaust. Eins og sést af með- fylgjandi mynd, sem tekin var í ágúst í fyrra, er langt í land. Skipu- lagsnefndin átelur vinnubrögðin harðlega. „Þetta hefur verið mjög blautt og vont til vinnslu og okkur hefur ekki tekist að vinna verkið eftir þeim áætlunum sem bæði við og útboðsgögnin gerðu ráð fyrir,“ segir Dofri Eysteinsson, fram- kvæmdastjóri Suðurverks, og útskýrir að tvö síðustu sumur hafi verið votviðrasöm. Fram- kvæmdir muni hefjast að nýju eftir hvítasunnuhelgina og verk- inu ljúka í haust. Dofri segir verkið hafa reynst umfangsmeira en útboðsgögnin hafi kveðið á um og reiknar með eftirmálum gagnvart Fram- kvæmdasýslu ríkisins. „Verkið er gjörsamlega óuppgert. Við eigum eftir að skylmast út af þessum málum,“ segir Dofri sem einnig gagnrýnir efnisval í varn- argarðana: „Þetta er bara ógeðsleg drulla. Út af fyrir sig er undravert að sumt af því skuli vera notað til mannvirkjagerðar ofan við mannabyggð. Þetta er bara blaut- ur jarðvegur sem liggur utan í hlíðinni,“ segir Dofri sem er ekki viss um hvort garðarnir séu tryggir: „Við tökum ekki ábyrgð á því,“ svarar hann. Guðmundur Skarphéðinsson segir aðeins einn varnargarð af sex fullgerðan. Tveir aðrir hafi verið byggðir upp án þess að ljúka þannig við þá að undirverk- takinn Bás ehf. á Siglufirði kom- ist í að gróðurbinda þá. Hinir þrír garðarnir séu komnir mislangt á veg. „Fólk er orðið þreytt á þessu moldroki sem er úr görðunum og yfir byggðina. Þetta er farið að valda fólki ómældu tjóni. Það flæðir vatn inn á lóðir hjá fólki vegna slæms frágangs. Það er ekki einu sinni að þeir klári hvern garð fyrir sig til þess að hægt sé að gróðursetja og ganga frá, held- ur eru þeir með allt fjallið, eins og það leggur sig, undir. Þessi umgengni og hvernig menn standa að þessu verki er einfald- lega óþolandi. Það er ekki flókn- ara en það,“ segir Guðmundur. Snjóflóðavarnargarðar sagðir byggðir úr leðju Framkvæmdastjóri Suðurverks, sem er gagnrýnt fyrir seinagang við gerð snjó- flóðavarnargarða á Siglufirði, segir ástæðu tafanna bleytu í jarðveginum. Verið sé að gera varnargarða úr drullu. Fyrirtækið ábyrgist ekki öryggi garðanna. Þessi umgengni og hvernig menn standa að þessu verki er einfaldlega óþol- andi.“ Helmingur af 31.000 íbúum palestínsku flóttamanna- búðanna Nahr el-Bared hefur notað tækifærið eftir að lát varð á bardögum stjórnarhersins og her- skáu samtakanna Fatah íslam á þriðjudagskvöld og flúið. Varnarmálaráðherra Líbanon, Elias Murr, gaf í gær liðsmönnum Fatah íslam úrslitakosti, annað- hvort að gefast upp eða horfa fram á hernaðaraðgerðir, sem ýta undir ótta um að stjórnarherinn muni hefja sprengjuárásir á ný bráðlega, eða jafnvel gera skyndi- árás inn í búðirnar. Varaforseti Sýrlands, Farouk al-Sharaa, segir ástæðu þess að Fatah íslam hafi náð fótfestu í Líbanon þá að landið sé „veikt og tvístrað“. Í ræðu sem hann hélt í gær sagði hann að slíkir hópar hefðu til dæmis ekki verið til staðar í Írak fyrir innrásina árið 2003 né hafi þeir verið í Líbanon fyrir fáum árum síðan. Líbanon var áratugum saman undir stjórn nágrannaríkisins Sýrlands þar til vorið 2005 þegar fjöldamótmæli og alþjóðaþrýst- ingur leiddi til þess að Sýrland dró sig út úr landinu eftir morðið á fyrrverandi forseta Líbanons, Rafik Hariri. Síðan hefur Líbanon verið klof- ið á milli valdamikillar stjórnar- andstöðu, sem er höll undir Sýr- land, og stjórnvalda sem njóta stuðnings Vesturlanda. Óttast að átök hefjist að nýju Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir manni á þrítugs- aldri sem grunaður er um að hafa brotist inn á heimili á uppstigning- ardag, gengið hrottalega í skrokk á húsráðanda og skilið hann eftir meðvitundarlausan. Fórnarlambið hlaut meðal annars nefbrot og kinnbeinsbrot. Talið er að árásarmaðurinn hafi notað hnúajárn eða barefli við árásina. Maðurinn sem í haldi er neitar sök. Mennirnir eru mál- kunnugir og mun meintur árásarmaður hafa sakað fórnar- lambið um að hafa reynt við kærustuna sína. Grunaður um hrottalega árás Var auglýsingin með Lalla Johns ósiðleg? Sigfús Sigmundsson, íbúi við Njálsgötu, segist ekki hafa sannfærst um að heimilis- lausum karlmönnum eigi að finna heimili í fjölbýlishúsi við Njálsgötu 74, en um það var haldinn opinn fundur íbúa og borgaryfirvalda. Fundurinn, sem var í fyrradag, hafi þó verið þarfur og jákvætt að fá öll sjónarmið fram. Borgarstjóri boðaði þá að nefnd skyldi sett á laggirnar og að íbúar hefðu þar tvo fulltrúa. Sigfús segir að borgaryfirvöld hafi í fyrstu ætlað að velja fulltrúa íbúa í þessa nefnd, en því hafi verið hafnað. „Við ætlum að kalla saman fund og kjósa okkur fulltrúa,“ segir Sigfús. Ekki sannfærðir eftir fund með borgarstjóra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.