Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.05.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 25.05.2007, Qupperneq 2
Krafa ríkisins á hendur olíufélögunum, vegna samráðs félaganna á árunum 1993 til og með meirihluta ársins 2001, er ekki enn tilbúin. Ríkið óskaði eftir viðurkenningu félaganna á bótskyldu í ágúst í fyrra en olíufélögin féllust ekki á að viðurkenna bótaskylduna. Í kjölfarið var tekin ákvörðun um að fara með málið fyrir dómstóla, en Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður fer með málið fyrir hönd ríkisins. Óljóst er hversu há krafa ríkisins verður en búast má við því að hún nemi hundruðum milljóna króna. Stærstu viðskiptavinir olíufélaganna á vegum ríkisins á fyrrnefndu tímabili voru Land- helgisgæslan, Vegagerðin og lögreglan. Krafa ríkisins ekki tilbúin enn Guðni, þyrfti þá Mörður ekki að vera með í sögunni? „Ég get bara sagt að hverri einustu móður hlýtur að líða illa þegar hún fær svona fréttir af barninu sínu,“ segir Erla Laxdal Gísladóttir, móðir Ársæls Kristófers Ársælssonar, 41 árs verkefnis- stjóra hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands, sem varð fyrir árás fjögurra ribbalda, vopnuðum hnífum og byssum, í Malaví aðfaranótt miðvikudags. Ræningjarnir réðust inn á heimili Ársæls í bænum Monkey Bay við Malavívatn, rændu af honum öllum hans verðmætum og skildu hann eftir bundinn og keflaðan í húsinu. Að sögn móður hans sakaði Ársæl ekki en hann varð fyrir miklu áfalli. Hún sagðist ekkert geta tjáð sig um málið að öðru leyti. „Það er hans ósk og Þróunarsamvinnustofnunarinnar að þessi mál verði eingöngu rædd við stofnunina,“ segir Erla. Áður höfðu ræningjarnir læst verði hans inni í útihúsi. Vörðunum tókst að komast út og komu Ársæli til hjálpar. Hann var síðan fluttur til höfuðborgarinn- ar Lílongve þar sem honum var veitt áfallahjálp. Fjórir til fimm íslenskir starfsmenn hafa að jafnaði búið við Malavívatn og hafa þeir allir verið fluttir tímabundið burt af svæðinu á meðan málið verður upplýst. Þá hefur skrifstofu Þróunarsamvinnustofn- unarinnar þar verið lokað tímabundið. Kynferðisbrotahluta Byrgismálsins svokallaða hefur verið vísað frá ríkissaksóknara- embættinu aftur til Sýslumann- sembættisins á Selfossi til frekari rannsóknar. Átta konur, allar fyrr- verandi vistmenn Byrgisins, kærðu forstöðumanninn Guðmund Jónsson fyrir kynferðislega mis- notkun. Saksóknari telur að ýmislegt þurfi að rannsaka betur áður en hægt er að ákveða hvort kærur á hendur Guðmundi leiða til ákæru, eða hvort þær verða felldar niður. Sigríður J. Friðjónsdóttir saksókn- ari vill ekki gefa upp hvaða atriði um ræðir, en sagði að þau væru þó nokkur. „Þetta eru náttúrlega átta mál, þannig að það geta verið nokk- ur atriði í hverju máli.“ Sigríður segir ekkert óeðlilegt við þetta. „Við endursendum málin mjög oft til frekari rannsókna,“ segir hún. „Okkur ber að sjá til þess að það komi allt fram.“ Sigríður segist búast við að rannsóknin taki ein- hverjar vikur að minnsta kosti. „Það eru mörg atriði sem þarf að skoða og taka skýrslur af mörgum. Þetta er heilmikil vinna.“ Kærendur eru eins og áður segir átta, og er hver kæra rannsökuð sem einstakt mál, en málið verður rekið sem heild í dómskerfinu, komi til þess. Þá er saksóknari efnahagsbrota með til meðferðar svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar sem gefur til kynna stórfellda óráðsíu á fjár- málum Byrgisins á árunum 2005 til 2006, þar á meðal meint fjársvik Guðmundar gegn skjólstæðingum Byrgisins. Byrgismálið svokallaða hófst í desember síðastliðnum þegar fréttaskýringaþátturinn Kompás á Stöð 2 sagði frá ásökunum nokk- urra fyrrverandi skjólstæðinga Guðmundar um að hann hefði not- fært sér bágt ástand þeirra til að misnota konurnar kynferðislega og féfletta þær. Fyrsta kæran á hendur honum var lögð fram dag- inn eftir að þátturinn var sýndur. Í kjölfarið komu í ljós miklar brota- lamir á fjárhagslegum rekstri Byrgisins, auk þess sem talið er að konur hafi orðið þungaðar eftir starfsmenn á meðan þær dvöldu þar. Byrginu var lokað vegna máls- ins og hröktust nokkrir af fyrrver- andi vistmönnum milli stofnana á eftir. Sumir munu enn vera á göt- unni. Auk þess var lögbýlisumsókn Guðmundar vegna sumarbústaða- lands í Grímsnesi hafnað vegna málsins. Byrgismáli vísað til frekari rannsóknar Ríkissaksóknari hefur vísað þeim hluta Byrgismálsins sem snýr að meintum kyn- ferðisbrotum Guðmundar Jónssonar gegn skjólstæðingum sínum aftur til sýslu- manns til frekari rannsókna. „Mörg atriði sem þarf að skoða,“ segir saksóknari. Ísraelski herinn handtók meira en 30 háttsetta Hamasliða í gær, þar á meðal einn ráðherra í þjóðstjórn Palestínu. Einnig gerði ísraelski herinn nokkrar loftárásir á Gazasvæð- inu, og beindust þær gegn þjálfunarbúðum og bækistöðvum Hamas-samtakanna. Mahmoud Abbas, forseti stjórnarinnar, fordæmdi handtök- urnar og Hamas-liðar hótuðu hefndarárásum. Amir Peretz, varnarmálaráð- herra Ísraels, sagði handtökurnar hafa þann tilgang að einangra Hamas. „Handtökur eru betri en skotárásir,“ sagði hann. Handtóku tugi Hamas-manna Elías Mar látinn Elías Mar rithöfundur lést að heimili sínu sl. miðvikudag. Elías Mar fæddist 22. júlí árið 1924 í Reykjavík. Hann stundaði nám í Kennaraskól- anum og sótti bókmennta- fyrirlestra í Danmörku og Bretlandi um tveggja vetra skeið. Að námi loknu starfaði hann sem blaðamaður, þýðandi og prófarkalesari samhliða ritstörfum. Meðal skáldsagna hans eru Vögguvísa (1950) og Sóleyjar- saga (1954) auk fjölda smásagna, ljóða og greina. Elías Mar var einn stofn- enda Rithöfundasambands Íslands 1974 og Finnlands- vinafélagsins Suomi 1949. Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti segir ekki koma til greina að gera hlé á kjarnorku- áætlun landsins. Það væri ekkert annað en uppgjöf gagnvart óvinum landsins sem vilja hindra Íran í að verða áhrifamikið ríki í heiminum. Þetta sagði Ahmadinejad í gær, daginn eftir að Alþjóðakjarnorku- stofnunin birti skýrslu sína um Íran, þar sem fram kemur að Íranar hafi stóreflt kjarnorku- vinnslu þvert ofan í kröfur Sameinuðu þjóðanna um að hætta henni. Eftir helgi er fyrirhugaður fundur Írana og Bandaríkjamanna í Írak. Neitar að láta undan óvinum Læsing á þráðlausum net- tengingum Símans og Vodafone er úrelt og verður auðveldlega brotin upp. Hver sem skilur einfaldar leið- beiningar og kann að hala niður forritum getur fundið lykilorðið á nokkrum mínútum og komist inn á þráðlaust net í nágrenninu. Öryggisstaðallinn sem um ræðir kallast WEP, og þarf eigandi teng- ingarinnar að slá inn lykilorð til að geta notað þráðlausa netið. Brjótist einhver inn á þráðlausa nettengingu getur hann halað niður að vild í gegnum tenginguna. Nái hann í ólöglegt efni, svo sem barna- klám, lítur út fyrir að eigandi teng- ingarinnar hafi gert það. Hann þarf þá að sýna fram á sakleysi sitt. „Það er á ábyrgð hvers og eins að ekki sé verið að nota tengingar í leyfisleysi,“ segir Hrannar Péturs- son, forstöðumaður almannatengsla hjá Vodafone. „Við bendum fólki á að fylgjast með því að enginn sé að nota kerfið þeirra.“ Spurður hvort viðeigandi sé að nota svo óöruggt kerfi til að læsa þráðlausum teng- ingum segir Hrannar WEP-læsingu algengasta staðalinn á Íslandi. „Not- endur geta síðan sett netið upp á öruggari hátt ef þeir vilja.“ Lykilorð fundið á nokkrum mínútum Hæstiréttur staðfesti í gær að maður nokkur skuli sæta gæsluvarðhaldi til mánaðarloka. Maðurinn hefur viðurkennt að hafa farið vopnaður öxi ásamt tveimur mönnum inn á heimili manns, sem hann telur að skuldi sér peninga. Meintur skuldari var ekki heima, en sambýliskona hans segir að mennirnir hafi brotið allt og bramlað og verið ógnandi. Skemmdu þeir meðal annars tölvu, sjónvarp og borðstofuborð. Maðurinn, sem gæsluvarðhaldi sætir, hafi þá rekið öxi sína á kaf í forstofuhurðina og skilið hana þar eftir. Áður hafði maðurinn veist að meintum skuldara í Kringlunni og barið hann í andlitið. Skildi eftir öxi sína í hurðinni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.