Fréttablaðið - 25.05.2007, Qupperneq 6
Fréttablaðið heldur
yfirburðastöðu sinni á íslenskum
dagblaðamarkaði. Frá 1. mars til
30. apríl mældist meðallestur lands-
manna á hvert tölublað um 65,2
prósent. Þetta er svipaður árangur
og mældist í síðustu könnun, sem
framkvæmd var í janúar og febrú-
ar, en þá lásu 65,1 prósent Íslend-
inga Fréttablaðið.
Lestur Morgunblaðsins og Blaðs-
ins helst einnig svipaður milli kann-
ana. Morgunblaðslestur fer úr 43,6
prósentum niður í 43 prósent, en
lestur Blaðsins minnkar úr 38,3
prósentum niður í 38,2.
Langt á eftir hinum dagblöðun-
um kemur svo DV. Það mælist með
einungis 5,1 prósent meðallestur á
tímabilinu.
Sé litið til lesenda á aldrinum 18
til 49 ára er yfirburðastaða Frétta-
blaðsins enn greinilegri. Meðallest-
ur á tölublað í þeim hópi mældist
66,7 prósent hjá Fréttablaðinu, en
34,99 prósent hjá Morgunblaði.
Lestur Fréttablaðs umfram Morg-
unblað er því 91 prósent. Það þýðir
að í þessum hópi lesa nærri tvöfalt
fleiri Fréttablaðið en Mogga.
Í sama aldurshópi er Blaðið með
34,27 prósenta lestur og er umfram-
lestur Fréttablaðs því 95 prósent.
DV mælist svo með 4,78 prósenta
meðallestur í þessum hópi og telst
umframlestur Fréttablaðs á DV því
lítil 1.295 prósent.
Niðurstöður könnunarinnar eru
byggðar á svörum 2.471 manns á
aldrinum 12 til 80 ára.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
75
91
0
5/
07
INNRITUN
www.hi.is
Umsóknarfrestur
í grunnnám
er til 5. júní
Allt sem þú vilt vita og rafrænar umsóknir á www.hi.is
Hringdu í 530 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift!
www.oryggi.is
H
im
in
n
og
h
af
/
S
ÍA
Hver vak
tar
þitt heim
ili?
www.lyfja.is - Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
3
75
59
0
5/
07
Acidophilus Bifidus + FOS
Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna.
Champignon DETOX + FOS og Spirulina
Hreinsaðu líkamann að innan
- minnkar óæskilega lykt.
Milk Thistle DETOX
Hreinsaðu líkamann að innan.
Psyllium Husk Fibre
Rúmmálsaukandi, gott fyrir
meltinguna.
30% afsláttur
af Vega vítamínum
Stórbruni varð í olíutönkum móttökustöðv-
ar fyrir mengaðan úrgang við Sløvåg í Noregi í
gærmorgun þegar að geysiöflug sprenging varð í
einum tankanna. Tíu manns, flestir slökkvliðismenn,
voru fluttir á sjúkrahús með reykeitrun.
Eldtungurnar stóðu 50 til 60 metra upp í loftið og
þykkan svartan reyk lagði frá eldinum að því er
Norvald Hiuge, skipstjóri á olíuflutningaskipinu
Karen Knutsen sem var í 50 metra fjarlægð frá
olíutönkunum, sagði í samtali við Fréttablaðið.
Hiuge sagði að kraftur sprengingarinnar hefði verið
gífurlegur og að skipið, sem er 155.000 tonn, hafi
nötrað. „Stykki úr tönkunum þeyttust yfir stórt
svæði en ekkert þeirra lenti á skipinu. Við sáum fólk
hlaupa burt frá tönkunum og svæðið var síðan
rýmt.“
Skipið, sem var í móttökustöðinni vegna viðgerða,
var flutt með dráttarbát yfir til olíuhreinsunarstöðv-
ar Statoil sem staðsett er hinum megin við fjörðinn.
Eldurinn braust út klukkan tíu um morguninn og
slökkviliðsmönnum tókst að ráða niðurlögum hans
rúmum tveimur tímum síðar eftir umfangsmikið
slökkvistarf. Eldur braust út að nýju klukkan fjögur
en skömmu síðar tókst að slökkva hann. Tveir
tankar, sem innihéldu saltsýru og eldfimt botnfall,
urðu eldinum að bráð að sögn aðalslökkviliðsstjór-
ans í Björgvin, Jan Ove Brakstad og Bergens
Tindende greindi frá.
Gífurlegur kraftur
Stórbruni varð í olíutönkum skammt frá Björgvin í Noregi í kjölfar sprenging-
ar. Kraftur sprengingarinnar var slíkur að 155.000 tonna olíuflutningaskip í 50
metra fjarlægð nötraði. Tíu manns voru fluttir á sjúkrahús með reykeitrun.
Fréttablaðið er langvinsælast
Hvalveiðar í vísindaskyni og kostnað-
ur þeim tengdum kostuðu íslenska ríkið um 750
milljónir króna frá árinu 1990 til 2006, að mati
Þorsteins Siglaugssonar hagfræðings.
Þorsteinn skrifaði skýrslu þessa efnis fyrir
Náttúruverndarsamtök Íslands og International Fund
for Animal Welfare. Hann segir skýrsluna sýna að
sterk rök séu fyrir þeim áhyggjum sem hagsmunaað-
ilar hafa af áhrifum hvalveiða í atvinnuskyni. „Þótt
vísindaveiðarnar hafi haft einhver áhrif voru þau
ekki umtalsverð. Afbókanir ferðamanna urðu til
dæmis ekki miklar,“ segir Þorsteinn.
Hins vegar gætu hvalveiðar í atvinnuskyni ollið
meiri skaða. „Vísindaveiðar eru innan ramma
Alþjóðahvalveiðiráðsins og þær má réttlæta með
vísindalegum rökum en hinar eru álitnar ósjálfbærar
og það er ekki til markaður fyrir vöruna. Þær eru að
auki í andstöðu við alþjóðasamþykktir þannig að það
horfir allt öðruvísi við,“ segir hann. Mjög ólíklegt sé
að efnahagslegur ávinningur af hvalveiðunum geti
vegið á móti þeim skaða sem útflutningsgreinar geti
orðið fyrir.
Aðalmeðferð hófst í gær
í máli tíu manns sem ákærð eru
fyrir langa afbrotahrinu sem hófst
í júlí í fyrra og náði fram í janúar.
Ákæran er í sjötíu liðum.
Þrír þeirra, Sigurbjörn Adam
Baldvinsson, Davíð Þór Gunnars-
son og Jón Einar Randversson,
tengjast flestum afbrotunum, en
þeir voru hluti af svonefndu
Árnesgengi, sem hlaut í febrúar
dóm fyrir aðra langa afbrotahrinu.
Fjórði maðurinn, Ívar Aron Hill
Ævarsson, er einnig fyrirferðar-
mikill í ákærunum, og á talsverð-
an sakaferil að baki. Hann var til
dæmis ákærður nýlega fyrir rán
og líkamsárás.
Árnesdrengir fyr-
irferðarmiklir
Var auglýsingin með Lalla
Johns ósiðleg?
Ertu sátt(ur) við stjórnarsátt-
málann?