Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 10
Hátt gjald vegna
endursölu lóða í Úlfarsárdal ein-
kennir útboð á lóðum fyrir 388
íbúðir í hverfinu.
Til sölu eru 73 einbýlishúsalóð-
ir, 27 parhúsalóðir, 11 raðhúsalóð-
ir fyrir 45 íbúðir og fjórar lóðir
fyrir fjölbýlishús með samtals
216 íbúðum.
Lóðirnar eru boðnar á talsvert
lægra verði en verið hefur mark-
aðsverð sambærilegra lóða. Til
að freista þess að tryggja að
aðeins þeir sæki um lóðir sem
hyggja raunverulega á búsetu í
Úlfarsárdal, en ætli ekki aðeins
að græða á endursölu lóðanna, er
ákvæði um viðbótargjald ofan á
lóðarverðið sem kemur til
greiðslu sé lóðin seld innan sex
ára frá úthlutun.
Viðbótargjaldið er 6 milljónir
króna ofan á 11 milljóna króna
verð fyrir byggingarrétt á einbýl-
ishúsalóð. Fyrir raðhús og parhús
er gjaldið 4 milljónir króna á
hverja íbúð en byggingarréttur
undir þær kostar 7,5 milljónir.
Byggingarréttur fyrir hverja
íbúð í fjölbýlishúsi er á 4,5 millj-
ónir króna og er viðbótargjaldið
þar 2 milljónir selji kaupandi
þeirrar íbúðar eign sína innan sex
ára.
Í kynningarefni framkvæmda-
sviðs Reykjavíkurborgar segir að
byggðin í Úlfarsárdal verði sólrík
og skjólsæl.
Umsóknarfrestur um lóðir er
til miðvikudagsins 13. júní. Dreg-
ið verður úr umsóknum sem upp-
fylla skilyrði.
Milljónagjald fyrir endursölu
Lögreglan á
Eskifirði fann hátt í 200 karton af
L&M sígarettum og 28 vodkaflösk-
ur aðfaranótt sunnudags við leit í
bíl. Í ljós kom að varningurinn
hafði verið keyptur um borð í
skipi í Norðfjarðarhöfn. Þegar það
kom til Eskifjarðar gengu
lögreglumenn ásamt tollvörðum
um borð og fundu þann sem selt
hafði varninginn. Hann var
sektaður um 4.700 dollara, eða
tæpar 300 þúsund krónur. Sá sem
keypti góssið má einnig eiga von á
hárri sekt. Jónas Vilhelmsson,
yfirlögregluþjónn á Eskifirði,
segir svona stór smyglmál afar
sjaldgæf í umdæminu.
Býsn af vodka
og sígarettum
Morgunflug Ice-
landair til Bandaríkjanna hófst í
gærmorgun en boðið verður upp
á slíkt flug til New York og
Boston. Flugfélagið ætlar auk
þess að bjóða morgunflug í sumar
frá Kaupmannahöfn, Osló og
Stokkhólmi til Íslands.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir flugið
fara vel af stað. „Til að byrja með
verður þetta í sumar og síðan
sjáum við til hvernig gengur og
tökum þá ákvörðun um framhald-
ið,“ segir Guðjón.
Fór vel af stað
Bjóðum ykkur velkomin í sælkeraverslanir okkar.
Ný upplifun
Fjölbreytt úrval af gæða kjöti og fisk á grillið. Láttu fagmenn okkar
aðstoða þig við valið á helgarsteikinni.
Gómsætir sjávarréttagrillpinnar Vi ð l e g g j u m m i k i n n m e t n a ð í a ð b j ó ð a þ é r a ð e i n s u p p á f y r s t a f l o k k s h rá e f n i o g
t i l b ú n a ré t t i . E i n n i g b j ó ð u m v i ð u p p á ú r va l a f s ó s u m o g ö ð r u g æ ð a m e ð l æ t i .
verslanir Fiskisögu verslanir Gallerí Kjöts
Ljúffengir nautagrillpinnar
Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur
verið gerður að heiðursdoktor við Háskólann í
Minnesota í tilefni af 25 ára samstarfi Háskóla
Íslands og Háskólans í Minnesota. Geir lauk
meistaraprófi í hagfræði frá Háskólanum í Minne-
sota árið 1977 og vill skólinn með nafnbótinni veita
þessum fyrrverandi nemanda sínum viðurkenningu
fyrir framlag hans til íslensks samfélags, sem
eykur hróður Háskólans í Minnesota.
Stjórnendur háskólanna hafa skrifað undir
samstarfssamninga. Kristín Ingólfsdóttir háskóla-
rektor segir að gamall samstarfssamningur hafi
verið endurnýjaður og samstarfið gert víðtækara.
Einnig hafi verið undirritaður samningur um
samstarf í heilbrigðisvísindum þar sem verkefni og
þátttaka eru skilgreind nákvæmlega og vörður
settar fram í tímann um væntanlegan árangur.
Geir H. Haarde heiðursdoktor
Fertugur maður hefur í
Héraðsdómi Suðurlands verið
sýknaður af ákæru um að hafa
brotið rúðu í hurð á lögreglustöð-
inni á Selfossi þegar hann skellti
henni á eftir sér að lokinni
skýrslutöku. Var það vegna þess
að maðurinn var óvart ákærður
fyrir nytjastuld.
Honum var gert að sök að hafa
brotið gegn 1. málsgrein 259.
greinar hegningarlaga, sem
kveður á um nytjastuld. „Sú
refsiverða háttsemi sem þar er
lýst á ekkert skylt við þá háttsemi
sem lýst er í ákæru,“ segir í
dómnum.
Hann var þó sakfelldur fyrir
nokkur umferðarlagabrot, meðal
annars að hafa flúið lögreglu á
ofsahraða, og dæmdur til að
greiða 350 þúsund króna sekt og
sviptur ökuleyfi í hálft ár.
Hurðaskellir
slapp fyrir horn