Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 12
Þrjár eiginkonur
manns, sem nauðgaði fimm
ungum dætrum sínum, voru
fangelsaðar á dögunum í Singap-
úr fyrir að hafa aðstoðað eigin-
mann sinn við sifjaspell.
Maðurinn var dæmdur í 32 ára
fangelsi og til að þola 24 stafs-
högg í apríl á síðasta ári, fyrir að
hafa ítrekað misnotað dætur
sínar. Hann á tíu eiginkonur og
sextíu og fjögur börn.
Maðurinn, sem er múslimi,
sagði konum sínum og dætrum,
að samkvæmt Kóraninum ætti
hann börn sín og mætti stunda
kynlíf með þeim. Konurnar voru
síðan milliliðir í sifjaspellinu.
Þær gerðu dætrunum, sem voru á
aldrinum tólf til fimmtán ára
þegar misnotkunin átti sér stað,
vart þegar maðurinn vildi stunda
kynlíf með þeim.
Eiginkonur tóku
þátt í misnotkun
Talsmenn Sambands
ungra sjálfstæðismanna eru
ánægðir með yfirlýsingu nýju
ríkisstjórnarinnar. Í ályktun frá
sambandinu er áherslum ríkis-
stjórnarinnar í heilbrigðismálum
fagnað, þar sem meðal annars á að
skapa svigrúm fyrir einkarekstri.
„Við erum að horfa til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki
verið með heilbrigðisráðuneytið
síðan 1987, og nú er kominn tími
til að reyna nýjar lausnir,“ segir
Borgar Þór Einarsson, formaður
sambandsins. „Það er grundvall-
aratriði fyrir komandi kynslóðir
að við sólundum ekki fjármunum
í heilbrigðiskerfinu.“
Ánægðir með
sáttmálann
„Alþjóðasamfélagið
einkenndist á síðasta ári af van-
trausti og sundrungu,“ segir í
nýrri ársskýrslu mannréttinda-
samtakanna Amnesty Internation-
al.
Því hafi ekki tekist að bregðast
við neyðarástandi á „gleymdum“
átakasvæðum, til dæmis í Tjet-
sjeníu, Kólumbíu, Srí Lanka og í
Mið-Austurlöndum. Alþjóðasam-
félagið hafi ekki haft þor til að
bregðast við hörmulegum mann-
réttindabrotum í Palestínu, né
nýtt tækifæri til að byggja upp
öflugt ríki í Afganistan. Þess í stað
búi Afganar við óstöðugleika og
spillingu.
Samtökin segja voldugar ríkis-
stjórnir magna upp ótta meðal
fólks til að grafa undan mannrétt-
indum og geri þannig heiminn
hættulegri. Bilið milli ríkra og
fátækra, eða „okkar“ og „þeirra“
aukist stöðugt.
Á síðasta ári voru þannig dæmi
um að erlendum ríkisborgurum
væri mismunað um alla Evrópu. Í
skýrslunni er sérstaklega rætt um
illa framkomu við Róma-fólk, eða
sígauna.
Þá er og harmað að bandarísk
yfirvöld líti á heiminn sem risa-
stóran vígvöll í stríði sínu gegn
hryðjuverkum. Þau hafi „hnatt-
vætt mannréttindabrot“ með
mannránum, handahófskenndum
fangelsunum og pyndingum.
Grafið undan mannréttindum
RAUNVÍSINDADEILD
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
77
86
0
5/
07
MATVÆLA- OG NÆRINGAFRÆÐI
Umsóknarfrestur er til 5. júní
MATVÆLA- OG
NÆRINGARFRÆÐISKOR
Þrjár námslínur eru í boði:
Næringarfræði
Matvælavinnsla
Matvælaefnafræði
Matvæla- og næringafræðingar eru mjög eftirsóttir á vinnumarkaði þar sem
þeir sinna mikilvægum störfum sem tengjast matvælaframleiðslu, manneldi,
heilbrigðisþjónustu, rannsóknum, stjórnun, ráðgjöf og markaðsmálum.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skorarinnar:
www.raunvisindi.hi.is/page/matvskor
Þráinn Sigurðsson,
aðstoðarforstjóri Framkvæmda-
sýslu ríkisins, gagnrýnir Dofra
Eysteinsson, framkvæmdastjóra
Suðurverks, fyrir að lýsa efa-
semdum um gæði efnis sem notað
er í snjóflóðavarnargarða á Siglu-
firði.
„Það er ábyrgðarhluti hjá verk-
takanum þar sem hann er kominn
í tímaþröng með verkið að lýsa
því yfir í fjölmiðlum að hann sé
að byggja snjóflóðavarnargarða
úr drullu og gefa í skyn að þeir
muni ekki standa og þar með að
hræða bæjarbúa og íbúa annarra
sveitarfélaga þar sem áformað
er að byggja sams konar garða,“
segir Þráinn.
Garðarnir á Siglufirði er
byggðir úr skriðuefni sem tekið
er á staðnum. Þráinn segir nokkra
reynslu vera til um notkun
skriðuefnis við gerð snjóflóða-
varnargarða hérlendis. Dæmi um
það séu varnargarðar á Flateyri
og leiðigarðar á Siglufirði.
„Ekki er vitað til annars en að
það hafi gefist ágætlega og var
þó skriðuefnið á Flateyri lakara
að gæðum en það sem notað hefur
verið á Siglufirði og flái garð-
anna þar brattari,“ segir Þráinn.
Að sögn Þráins hafa rúmlega
tvö hundruð þúsund rúmmetrar
af ónothæfu efni verið fjarlægt
undan görðunum á Siglufirði úr
svokölluðum skeringarsvæðum.
„Því hefur verið valið besta efnið
á svæðinu og þar sem garðarnir
eru næst húsum er í þeim sérstök
styrking á um hundrað metra
kafla,“ segir hann.
Framkvæmdastjóri Suður-
verks boðaði í Fréttablaðinu í
gær að búast mætti við kröfu frá
fyrirtækinu um auknar greiðslur
þar sem verkið á Siglufirði hafi
reynst umfangsmeira en samið
var um. Umsamið verð var 534
milljónir króna.
Þráinn segir að í útboðinu hafi
verið gert ráð fyrir að verkið
hæfist 2003 og að því lyki haustið
2006. Suðurverk hafi hins vegar
talið sig geta lokið verkinu haust-
ið 2005.
„Eftir að skrifað var undir
samning við verktakann tók hann
að sér mun stærra verk annars
staðar og sinnti því verkinu mjög
lítið sumarið 2004 sem var besta
sumar framkvæmdatímans hvað
veðráttu varðar,“ segir Þráinn en
votviðri sumrin 2005 og 2006
segir framkvæmdastjóri Suður-
verks einmitt hafa tafið fram-
gang verksins.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær vilja Siglfirðingar að
verkinu við varnargarðana ljúki
sem fyrst vegna ýmis ónæðis á
framkvæmdatímanum. Suður-
verk áætlar að garðarnir verði
tilbúnir í haust.
Ábyrgðarhluti
að hræða
Siglfirðinga
Astoðarforstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins segir
snjóflóðavarnargarðana á Siglufirði byggða úr besta
efninu á staðnum. Verktakinn sé á eftir áætlun.
Hæstiréttur sýkn-
aði í gær íslenska ríkið af
kröfu Ljósmyndarafélags
Íslands þess efnis að ófag-
lærðir mættu ekki taka pas-
samyndir í íslensk vega-
bréf.
Ljósmyndarafélag
Íslands hafði farið þess á
leit að utan nemenda í ljós-
myndun og þeirra sem taka
myndir í eigin vegabréf,
væri ljósmyndurum með
iðnréttindi einum heimilt
að taka myndir í íslensk
vegabréf. Ófaglært starfsfólk á
afgreiðslustöðvum vegabréfa
mætti því ekki lengur taka myndir
í vegabréf. Það væri brot gegn
iðnréttindum ljósmyndara, sem
vernduð eru í iðnaðarlög-
um.
Hæstiréttur hafnaði
þessari kröfu á þeim for-
sendum að útgáfa vega-
bréfa sé verkefni ríkisins
samkvæmt lögum og þar
með hluti af stjórnsýslu
ríkisins. Myndatakan sé
hluti útgáfunnar og engar
faglegar kröfur séu gerðar
sem krefjist atvinnuljós-
myndara.
Héraðsdómur hafði áður
dæmt Ljósmyndarafélag-
inu í hag og komist að þeirri niður-
stöðu að einungis ljósmyndurum
með iðnréttindi og nemum í ljós-
myndum væri heimilt að taka pas-
samyndir í vegabréf.