Fréttablaðið - 25.05.2007, Síða 16
Charlie Crist,
ríkisstjóri í Flórída, hefur
undirritað lög um að forkosning-
ar stjórnmálaflokka fyrir
forsetakosningarnar á næsta ári
verði haldnar hinn 29. janúar.
Þar með verður Flórída fyrst
allra ríkja í Bandríkjunum til að
halda forkosningar. Þetta rýfur
þá hefð að fyrstu forkosningar
flokkanna séu haldnar 5. febrúar
en þann dag verða engu að síður
haldnar forkosningar í tólf
ríkjum.
Flórída er hins vegar langfjöl-
mennasta ríkið af þeim sem efna
snemma til forkosninga og því
munu forkosningarnar þar veita
fjársterkustu frambjóðendunum
meira forskot og hugsanlega
draga athyglina frá forkosning-
um sem fram fara í minni
ríkjum.
Fyrstu forkosn-
ingar í Flórída
Urgur er meðal mús-
lima í Bretlandi vegna ríkisstyrkt-
rar námskrár sem ætlað er að
kenna börnum múslima að snið-
ganga öfgahyggju. Yfirlýst mark-
mið er að kenna börnum frá átta til
fjórtán ára að það að skaða borgara
Bretlands samræmist ekki íslam.
Ein kennsluæfingin snýst um að
hópur íslamskra öfgamanna vill
kaupa áburð sem nota má til
sprengjugerðar og börnin eiga að
svara hvort kaupmaðurinn ætti að
selja þeim áburðinn, jafnvel ef
hann grunar að hann verði notaður
í „heilögu stríði“. Í annarri æfingu
segir frá Ahmad og að vinir hans
vilji að hann geri árás á matvöru-
verslun í hefndarskyni fyrir Íraks-
stríðið. Börnin eiga svo að svara
því hvort það sé rétt hjá Ahmad að
skaða saklausa Breta vegna þess
að stjórnvöld hafi ráðist inn í mús-
limaríki.
Mörgum múslimskum kennur-
um finnst þetta námsefni óviðeig-
andi fyrir unga nemendur. Sumum
gremst einnig að svo virðist sem
námskráin geri ráð fyrir því að
trúarskólar múslima séu jarðveg-
ur fyrir hryðjuverkamenn. Tíu
múslimaklerkar kenna samkvæmt
námskránni og hafa 500 nemendur
klárað námskeiðið.
Bresk stjórnvöld, sem styrkja
námið, hafa viðurkennt að náms-
kráin taki á viðkvæmum málum en
sé nauðsynlegt til að gefa múslim-
um þá hæfni sem þarf til að hafna
öfgahyggju.
Kennt að forðast öfgahyggju
Þingkosningar voru
haldnar á Írlandi í gær. Líklegast
þykir að Bertie Ahern, leiðtogi
miðjuflokksins Fienna Fail, verði
áfram forsætisráðherra, en fái í
þetta sinn vinstri flokk með sér í
stjórnina í staðinn fyrir hægri
sinnaða Lýðræðisflokkinn sem
hefur stjórnað með Fienna Fail
undanfarin tíu ár.
Talning atkvæða hefst þó ekki
fyrr en í dag og úrslit verða varla
ljós fyrr en á morgun. Ástæðan er
sú að kosningakerfið á Írlandi er
býsna flókið, sem stafar af því að
það var sérstaklega hannað til að
koma í veg fyrir að einhver einn
flokkur gæti náð hreinum meiri-
hluta á þingi.
Í gær sögðust margir kjósendur
ætla að greiða Fienna Fail atkvæði
sitt vegna þess hve efnahags-
ástandið hefur verið gott. Kosn-
ingabaráttan einkenndist samt
sem áður af hörðum deilum um
neikvæða fylgifiska hagsældar-
innar; straumur innflytjenda
vekur sívaxandi spennu, verðlag
fer hækkandi og opinber þjónusta
er að sligast undan álagi.
Sá stjórnmálaleiðtogi sem helst
gerir sér vonir um að taka við af
Bertie Ahern er Enda Kenny, leið-
togi Fine Gael. Hann hefur lofað
því að efla heilbrigðisþjónustuna
og fjölga í lögreglunni.
Fine Gael hefur áratugum
saman verið næst stærsti flokkur
Írlands, næst á eftir Fienna Fail.
Báðir eru miðjuflokkar, en Fine
Gael hélt af stað í þessa kosninga-
baráttu í nánu samstarfi við Verka-
mannaflokkinn.
Til þess að ná meirihluta á þingi
þarf stjórnin að hafa að minnsta
kosti 83 þingmenn, en samkvæmt
spá dagblaðsins Irish Times
fengju núverandi stjórnarflokkar
aðeins 70 þingmenn en Fine Gael
og Verkamannaflokkurinn næðu
heldur ekki nema 69 þingmönn-
um. Jafnvel þótt Græningjaflokk-
urinn gengi til liðs við vinstri-
stjórn Fine Gael og
Verkamannaflokkinn myndi það
varla duga í meirihluta.
Það myndi þýða að hinn umdeildi
flokkur Sinn Fein, sem á uppruna
sinn á Norður-Írlandi og lýtur for-
ystu Gerry Adams, fyrrverandi
foringja í Írska lýðveldishernum,
gæti komist í oddastöðu við stjórn-
armyndunina.
Bertie Ahern hefur hins vegar
ítrekað lýst því yfir að ekki komi
til greina að mynda stjórn með
Sinn Fein, og þá yrði varla annar
möguleiki eftir en að Fienna Fail
fái Verkamannaflokkinn í stjórn
með sér.
Írska þjóðin
hefur kosið
sér nýtt þing
Flest bendir til að Bertie Ahern verði áfram forsætis-
ráðherra. Hann gæti samt þurft að skipta um sam-
starfsflokk. Úrslit koma ekki í ljós fyrr en á morgun.
„Íslensk blóm
eru harðgerð,
kröftug og fersk.“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
Í áratugi hafa íslenskir garðyrkjubændur unnið að því að byggja upp
og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu.
Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR.
Leikskólavist einhvers
hluta barna fæddra árið 2005 gæti
frestast ef illa gengur að manna
leikskólana fyrir haustið líkt og
verið hefur undanfarin ár. Þetta
var tekið fram í bréfi sem sent
hefur verið öllum foreldrum verð-
andi leikskólabarna.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
formaður leikskólaráðs borgar-
innar, segir að allir leikskólastjór-
ar og starfsmenn leikskólasviðs
séu uppteknir við það að reyna að
lágmarka vandann sem öllu jafna
skapast á haustin. „Ég er alls ekk-
ert hundrað prósent viss um að við
getum mannað leikskólana full-
komlega í haust. Það getur tekið
nokkra mánuði.“ Hún segir
umræðuna um mönnunarvandann
nú sprottna af því að í fyrsta sinn
hafi verið gerður fyrirvari um
hann í bréfi sem sent var foreldr-
um um inntöku barna í leikskóla.
„Við vorum bara að auka upplýs-
ingafæðið til foreldra.“
Fram kemur í fundargerð leik-
skólaráðs frá 16. maí að með
sveigjanlegum skólaskilum hafi
færst í vöxt að foreldrar óski eftir
því að barn þeirra fái að halda
plássi sínu í leikskóla eftir að það
hefur hafið nám í grunnskóla sem
býður upp á nám fyrir fimm ára
börn. Meirihlutinn leggur til að
þessi möguleiki verði afnuminn.
Þorbjörg segir að börn sem séu á
báðum skólastigum nú séu þó ein-
ungis örfá. „Við viljum bara hafa
það skýrt hvort skólastigið beri
ábyrgð á börnunum.“ Málið er nú í
skoðun.
Ekki víst að takist
að manna leikskóla
Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur vísað frá dómi máli
vegna deilu um málverk eftir
Magnús Kjartansson, sem komast
ekki út úr vinnustofu í Álafosshús-
inu í Mosfellsbæ, þar sem nýr
veggur var reistur eftir að
verkunum var komið fyrir. Ekkja
Magnúsar og eigandi verkanna
krafðist þess að eigandi þess hluta
hússins bryti gat á vegginn til að
hægt væri að sækja verkin.
Konan krafðist innsetningar í
málverkin, en dómurinn vísaði
málinu frá þar sem kröfugerð þarf
að vera ákveðin en þessi krafa
beinist að lausafjármunum sem
viðkomandi hafi full umráð yfir.
Verkin enn föst
í herberginu