Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 26
greinar@frettabladid.is Kísildalurinn á San Francisco- svæðinu í Bandaríkjunum er þekktur sem háborg hátækninn- ar í heiminum, enda varð upplýs- ingatækni nútímans til þar. Tölvu- heilinn, einkatölvan, nettæknin, leitarvélar veraldarvefjarins, líf- tækni og margt fleira hefur borist þaðan út um heiminn. Kísildalur- inn er í reynd höfuðborg hins nýja skapandi þekkingarhagkerfis. Hér er ímyndunaraflið, sköpunargáfan og þekkingin hið daglega viðfangs- efni, ásamt drjúgum skammti af vinnusemi. Fyrirtækjamenn og há- skólamenn reyna í sífellu að virkja þessar uppsprettur nýmæla til að betrumbæta tækni og aðferðir, hver á sínu sviði. Það var því vel við hæfi að Björk, drottning frumleika og sköpunar, kæmi hér við á nýrri tónleikaferð sinni um heiminn. Þar eð ég hef haft búsetu í Kísildaln- um um sinn notaði ég tækifærið og mætti á tónleikana, sem fram fóru í útileikhúsi í bænum Mounta- in View í miðjum Kísildalnum. Auk mín voru þarna vel yfir 20 þúsund manns er nutu tónleikanna undir stjörnubjörtum Kaliforníuhimni. Og hvílík sýning. Björk opnaði tónleikana með kraftmiklu lagi af nýjum diski sínum og tók mannfjöldann sam- stundis með sér á flug sem lauk tveimur tímum síðar, án þess að nokkurs staðar hefði verið slegið af. Þetta var samfelld veisla fyrir augu og eyru, borin áfram af krafti og sköpunargleði, með fagmennsku sem enginn slær við. Með Björk var glæsilegur hornaflokkur ís- lenskra stúlkna sem einnig sungu undir. Jónas Sen lék á hljómborð með fyrirmannlegu yfirbragði og erlendir tónlistarmenn léku á slag- verk og stafræn rafeindatæki. Og svo leit Einar Örn við í einu laginu og kryddaði vel með vinkonu sinni, við mikinn fögnuð gesta. Það var frábært að sjá hversu vel allir kunnu að meta list Bjark- ar. Enda á hún mikið erindi við þetta fólk. Í næsta nágrenni við tónleikavettvanginn eru höfuð- stöðvar Google fyrirtækisins, í svokölluðum Googleplex, sem er byggingaklasi sérstaklega hannað- ur til að örva sköpunarkraft starfs- manna. Þeim er að auki uppá- lagt af yfirmönnum sínum að nota hluta starfstíma síns til að gera skapandi hluti svo ímyndunaraflið haldi vöku sinni. Þetta fólk tók enda kröftuglega undir með Björk og félögum. Í lok tónleikanna geisl- aði ánægja og áhugi af hverju and- liti og umsagnir gesta á netsíðum eru allar hástemmdar. Björk er ekki aðeins framúr- skarandi listamaður á heimsvísu. Tónlist hennar, sem er greinilega að ná nýjum hæðum, er einnig í takti við það nýjasta sem er að ger- ast í heiminum. Hún rímar vel við nýsköpunaráherslur í tækni, efna- hagslífi og mannlífi þar sem hin mannlega auðlind er uppspretta þess sem gera skal. Þetta kunna menn að meta í Kísildalnum. Við Íslendingar áttum okkur kannski ekki til fulls á því hversu stór í sniðum Björk er. Við erum þar að auki of mikið að eltast við gamla hagkerfið, sem bræðir fjöll í hrámálma til úrvinnslu í öðrum löndum. Við eigum að leggja meiri áherslu á þekkingu og nýsköpun. Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra tók reynd- ar stórt skref í þá átt er hún gerði nýjan metnaðarfullan rannsókn- arsamning við Háskóla Íslands í vetur. Það er líka uppörvandi að í málefnasamningi nýrrar ríkis- stjórnar skuli hraustlega tekið undir markmið um framþróun þekkingarhagkerfisins og hátækni um leið og af er slegið í framþróun gamla hagkerfisins. Ríkisstjórnin þyrfti að fá Reykjavíkurborg í lið með sér til að byggja upp þekkingarklasa á Vatnsmýrarsvæðinu, þar sem saman hnýtast háskólar og þekk- ingarfyrirtæki. Slíkt starf var hafið með undirbúningi að bygg- ingu þekkingarþorps Háskóla Ís- lands og síðan bætti Reykjavík- urborg við og veitti Háskólan- um í Reykjavík framtíðarland á svæðinu. Þar með hefur almennur grundvöllur verið lagður að mið- stöð þekkingarhagkerfisins á Ís- landi á þessu svæði. Það var ein- mitt með slíkum klasa sem þróunin í Kísildalnum byrjaði á sjötta ára- tugnum. Nú er bara að vinna kröft- uglega að áframhaldi þessarar þró- unar á Íslandi. Þarna liggur sú stefna sem við Íslendingar eigum nú að leggja meiri rækt við. Full ástæða er til að ætla að ný ríkisstjórn muni róa í sömu átt og Björk og aðrir útrás- arriddarar hafa gert með góðum árangri á undanförnum árum. Það er fagnaðarefni. Málmbræðslu- hagkerfið er gamla hagkerfið. Hið nýskapandi þekkingar- og þjón- ustuhagkerfi er framtíðin. Höfundur er gistiprófessor við Stanford-háskóla í Kísildalnum. Björk í Kísildalnum Full ástæða er til að ætla að ný ríkisstjórn muni róa í sömu átt og Björk og aðrir útrásar- riddarar hafa gert með góðum árangri á undanförnum árum. Rétturinn til að ganga í hjónaband telst til mannréttinda samkvæmt alþjóð- legum sáttmálum en stjórnvöld í hverju ríki um sig velja hvernig þessum rétti er framfylgt. Einstaklingum af sama kyni er nú heimilt að giftast í Hollandi, Belgíu, Suður-Afríku, Kanada, Spáni og Massa- chusetts-ríki í Bandaríkjunum. Suður-Afr- íka hefur nýlega samþykkt lög sem leyfa samkynheigðum að giftast eða staðfesta sambúð og í Hollandi er öllum pörum, óháð kyni, gert kleift að velja að staðfesta sambúð í stað þess að giftast. Á næsta ári mun Svíþjóð breyta löggjöf sinni þannig að samkynhneigð pör eiga nákvæmlega sama rétt varðandi hjónaband og gagnkynhneigð pör, þ.e. hjónabandslöggjöfin verður kynhlutlaus. Samkvæmt hinum nýju sænsku lögum er trúfélög- um heimilt að ákveða sjálf hvort þau vilja gefa pör saman. Dómstólar munu ekki lengur sjá um borg- aralega vígslu því í hinu nýja kerfi munu nokkurs konar stjórnsýslunefndir skipa einstaklinga sem hafa það hlutverk að gefa fólk saman – gagnkyn- hneigð og samkynhneigð pör. Jafnvel þótt munur réttaráhrifa stað- festrar sambúðar og hjúskapar séu ekki mikill á Íslandi, þá hefur staðfest sambúð ekki sömu samfélagslegu þýðingu og hjú- skapur. Hjónaband er félagsleg stofnun sem hefur um aldir verið sáttmáli konu og karls. Og þó þessi skilgreining á hjúskap hafi um langt skeið verið eitt af grunngild- um samfélagsins þá verður að taka tillit til breyttra tíma, nýrra gilda og skoðana. Hefðbundin skilgreiningin á hjúskap ætti ekki að standa í vegi fyrir því að samkyn- hneigð pör gifti sig – staðfesta ást sína og trúfesti fyrir guði og mönnum. Jafnvel þó að trúuð samfélög reyni að halda hjónabandinu að- eins fyrir einstaklinga af gagnstæðu kyni, verður löggjafinn að skilgreina hjúskap á þann hátt að það samræmist ríkjandi gildum í þjóðfélaginu og gera þeim trúfélögum, sem það vilja, kleift að fram- kvæma hjónavígslu fyrir samkynhneigð pör. Auð- veld lausn væri að gera hjónabandslöggjöfina kyn- hlutlausa. Hjónaband á að vera opið fyrir tvo ein- staklinga án tillits til kyns þeirra. Höfundur er lögfræðingur og vinnur hjá Mannrétt- indaskrifstofu Íslands. Sá sem berst gegn ástinni tapar Á miðöldum var guðstrú boðuð með sverði og kærleikur Krists með öxi. Á okkar tímum boða vestræn ríki lýð- ræði með byssum og mannréttindi með hátæknihern- aði. Útbreiðsla lýðræðis er trúarbragðastríð 21. aldar. Í nafni lýðræðis hafa helstu leiðtogar hins vestræna heims þver- brotið alþjóðalög, drepið saklausa borgara í fjarlægum löndum og komið á lögum sem skerða frelsi þegna sinna eigin landa. Í vikunni kom út ársskýrsla mannréttindasamtakanna Amnesty International. Þar er bent á þá augljósu staðreynd að stríðið gegn hryðjuverkum, sem lýst var yfir eftir tilræði Al-kaída í Bandaríkj- unum í september 2001, hefur gert heiminn að óöruggari stað. „Aðgerðir stjórnvalda víða um heim hafa síst dregið úr hryðju- verkaógninni og alls ekki tryggt fórnarlömbum hryðjuverka nokk- urt réttlæti. Þessar aðgerðir hafa á hinn bóginn grafið undan mann- réttindum með margvíslegum og alvarlegum hætti og dregið úr þeirri vernd sem lög og réttur eiga að veita fólki um heim allan,“ segir meðal annars í úrdrætti úr skýrslunni á íslenskri heimasíðu Amnesty International. Forystumenn vestrænna ríkja hafa óspart réttlætt stríðsrekst- urinn í Afganistan og Írak á þann hátt að með því að berjast gegn hryðjuverkum að heiman minnki líkurnar á því að vestrænar þjóð- ir þurfi að berjast gegn þeim í eigin löndum. Þessa kenningu hafa þeir kallað fyrirbyggjandi stríð. Líklegra er þó að þetta nýja stríð, þar sem mestu herveldi heims áskilja sér rétt til fyrirbyggjandi hernaðaraðgerða hvar sem er á jörðinni, sé hluti af þrátafli þeirra við að viðhalda hnattrænum áhrifum sínum og völdum. Í því samhengi er ástæða til að rifja upp orð Mikahíl Gorbatsjov, fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, sem hann lét falla í Háskólabíói í haust, þegar hann sagði fyrirbyggjandi viðræður stjórnarerind- reka mun vænlegri til friðar í heiminum. Í ársskýrslu Amnesty er bent á að stríðið gegn hryðjuverkum hafi undanfarin ár verið notað til að réttlæta alls kyns kúgun, sem stjórnvöld hafa lengi beitt almenning, til dæmis í Egyptalandi og Pakistan. Í Bretlandi voru leidd í lög óskýr ákvæði, sem eiga að auðvelda baráttuna gegn hryðjuverkum, en bera jafnframt með sér alvar- lega skerðingu á tjáningarfrelsi í landinu. Svipað hefur gerst í Bandaríkjunum. Stjórnvöld þar hafa nú mun víðtækari heimild- ir til að njósna um og kortleggja hegðun almennings en þau höfðu fyrir 11. september 2001. Fyrir réttum tuttugu árum skrifaði bandaríski hæstaréttardóm- arinn William J. Brennan: „Að loknu hverju því tímabili, sem hefur verið skynjað sem hættuástand, hafa Bandaríkin full iðrunar áttað sig á því að afnám borgaralegra réttinda var óþarft. Að sama skapi hafa Bandaríkin sýnt að þau eru ófær um að koma fyrir að mistök- in verði endurtekin næst þegar hættuástand skapast.“ Þessa niðurstöðu má hæglega yfirfæra á gjörvallt mannkyn. Sagan er svo gjörn á að endurtaka sig. Fyrir fimm hundruð árum þurfti að útbreiða orð guðs með öllum meðölum, nú er það lýð- ræðið. Trúarbragðastríð 21. aldar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.