Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 28

Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 28
Nútímatölvutækni er langt komin með að leysa af hólmi þá tækni sem eldri fjar- skiptainnviðir byggja á. Fjar- skiptanet, hvort heldur fastlínu- net eða radíónet, byggja í aukn- um mæli á pökkum í stað rása. Þannig eru gögn send stafrænt í formi margra smárra gagna- pakka, sem raðast svo saman hjá móttakanda, í stað þess að mynda rás milli sendanda og móttak- anda. Skýrasta dæmið er inter- netið sem er pakkanet byggt á IP tækni. Með þessu móti verða hefðbundin fjarskipti á borð við sjónvarpsútsendingar, talsíma og gagnaflutning einfaldlega staf- rænn IP gagnaflutningur. Við sjáum því hugtök eins og IPTV og VoIP verða jafn sjálfsögð og int- ernetið. Gagnaveita Reykjavíkur hefur, yfir ljósleiðaranet sitt, byggt upp eitt öflugasta IP net landsins. Þetta net tengir nú saman öll ljós- leiðaratengd heimili á þann hátt að þau geta sótt sér fjarskipta- þjónustu á borð við sjónvarp, heimasíma og internet til mis- munandi þjónustuaðila. Við ljósleiðaravæðingu heimila leggur Gagnaveita Reykjavíkur heimilum til ljósleiðaratengingu og nauðsynlegan endabúnað án nokkurs stofnkostnaðar. Stækkunarmöguleikar ljósleið- aranets eru nánast óendanlegir. Í upphafi er flutningsgeta ljós- leiðaranetsins 100 Mb/s á hvert heimili sem eykst síðan í takt við þróun og þarfir. Þegar þörf verð- ur á enn meiri bandbreidd þarf einungis að skipta um endabún- að; ljósleiðarinn sjálfur verð- ur aldrei flöskuháls. Það sama verður ekki sagt um símavíra úr koparþráðum, sem lagðir voru snemma á síðustu öld, ætlaðir fyrir einföld talsamskipti. Algeng flutningsgeta slíkra lagna er um og innan við 10 Mb/s. Slík lagna- kerfi renna sitt skeið á sama hátt og gamli margendurbætti vegur- inn var lagður af þegar nýja hrað- brautin var lögð við hliðina. Einhver kann að spyrja til hvers við þurfum svo sem alla þessa bandbreidd og hvort þess- ir símavírar dugi ekki bara. Eða þráðlaus net? Að svara því er eins og að segja til um hversu margir munu aka yfir brúna á morgun byggt á því hversu marg- ir syntu yfir ána í gær. Með ljós- leiðara alla leið, milli heimilis og þjónustuveitu, eru möguleikarnir ótakmarkaðir og framtíðarinnar að leiða þá í ljós. Um ljósleiðaranetið er hægt að senda allar sjónvarps- og útvarps- rásir sem við þekkjum í dag. Út- sendingar eru stafrænar og í há- marksgæðum. Mynd- og hljóm- gæði fullkominna tækja nýtast nú til fulls og áhrif veðurfars á útsendingar eru úr sögunni. Þá hafa sjónvarpsútsendingar engin áhrif á getu ljósleiðarans til að sinna internet-notkun heimila á sama tíma. Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi sýndu þá framsýni fyrir nokkrum árum að leita eftir framtíðarlausn á háhraða gagnaflutningi fyrir öll heimili bæjarfélagsins. Nú er svo komið að Seltjarnarnesbær er fyrsta bæjarfélagið í heimi, svo vitað sé, þar sem hverju einasta húsi – heimilum, fyrirtækjum og stofnunum – stendur ljósleiðara- tenging til boða. Í samstarfi við Gagnaveitu Reykjavíkur hefur Seltjarnarnes- bær rutt brautina á alþjóðlegum vettvangi. Ljósleiðaravætt sveit- arfélag og opið og jafnt aðgengi þjónustuveitna að neti, þar sem fjölbreytt þjónusta samkeppn- isaðila býðst heimilum og fyr- irtækjum, var áður hugmynda- fræði en er nú raunveruleiki. Gagnaveita Reykjavíkur tekst á við ljósleiðaravæðingu heim- ila á sama hátt og Orkuveitan og fyrirrennarar hennar – Vatns- veita Reykjavíkur, Rafmagns- veita Reykjavíkur og Hitaveita Reykjavíkur – sem lögðu dreifi- kerfi fyrir vatn, rafmagn og hita á árum áður. Um er að ræða langvarandi lausn til hagsbóta fyrir samfélagið. Þrátt fyrir háan stofnkostnað og það rask sem felst í lagningu ljósleiðarans er gert ráð fyrir endingu hans næstu áratugina. Og áfram er haldið. Unnið er hörðum höndum að ljósleiðara- væðingu heimila í fjölda ann- arra sveitarfélaga, þar á meðal í Reykjavík. Utan Seltjarnar- ness hafa þúsundir heimila, víðs- vegar um Reykjavík og á Akra- nesi, þegar verið tengd við hið opna ljósleiðaranet Gagnaveitu Reykjavíkur. Ég hvet íbúa þess- ara heimila til að kynna sér vel þá möguleika sem felast í ljósleið- artengingu sinni. Nú verður allt hægt – hratt. Höfundur er framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur. Tenging til framtíðar Milljarður manna á flótta árið 2050 Ádögunum kom út skýrsla frá hjálparstofnuninni Christi- an Aid í Bretlandi, þar sem farið er yfir hvernig loftslagsbreyting- ar muni hafa áhrif á flóttamanna- strauminn í heiminum. Talið er að allt að 1 milljarður manna gæti hrakist á flótta af þessum orsök- um fram að árinu 2050 ef ekkert verður að gert til þess að stöðva hlýnun jarðar. Í dag eru um 160 milljónir manna flóttamenn. Við heyrum slíkar tölur og getum ómögulega gert okkur grein fyrir þeirri þján- ingu sem í þeim felast. Til þess að reyna að skilja hvað það þýðir að vera flóttamaður bið ég þig að ímynda þér hvernig þér myndi líða ef þú þyrftir að flýja heim- ili þitt. Ástæðan gæti verið jarð- skjálfti, flóð, pólitísk eða trúarleg afstaða þín, húðlitur þinn eða jafn- vel stríð. Þú getur sama og ekkert tekið með þér, kannski myndaalb- úmið, en allar eignir sem þú ert búinn að vinna hörðum höndum fyrir, verður þú að skilja eftir. Allt sem fyllir okkar daglega líf, nýja eldhúsinnréttingin, leikföng barn- anna og flottu nýju spari- skórnir verður að engu þegar þú þarft að bjarga lífi þínu. Í þeirri ringul- reið sem fylgir gætir þú orðið viðskila við fjöl- skyldu þína, misst sjón- ar af börnunum þínum og jafnvel öllum þeim sem standa þér nær. Þú veist ekki hvað morgun- dagurinn ber með sér, í raun hefur allt þitt líf splundrast. Hvernig myndi þér líða? Ef ekkert verður að gert verð- ur það sem hér er lýst raun- veruleiki fyrir allt að einn millj- arð manna á næstu 40 árum. Enn og aftur er þetta svo gríðarleg- ur mannfjöldi að við getum ekki gert okkur grein fyrir því. Þetta mun hafa áhrif á okkur líka, beint og óbeint. Og hver veit nema við gætum orðið meðal þessa fjölda? Ennþá eru það þó íbúar í fátæk- um löndum sem upplifa afleið- ingar hlýnunar jarðar. Í Malí er draumurinn að komast til Evr- ópu, hefja nýtt líf þar sem allir virðast ríkir. Í landinu er varla hægt að stunda landbúnað leng- ur, linnulausir þurrkar gera ræktun ómögulega. Á einungis 80 árum hefur rigning í Malí minnk- að um helming og þegar rignir, þá rignir eldi og brennisteini. Því er spáð að jafnvel 1/3 hluti jarð- ar muni skrælna í gríð- armiklum þurrkum um næstu aldamót. Hvaða áhrif það mun hafa á íbúa á þessum svæðum er eitt- hvað sem við getum velt fyrir okkur. Kannski finnst okkur hér á Íslandi að þetta sé þróun sem ekki snertir okkur. En bara eitt til að hugsa um – hvaða áhrif hefði skrælnuð jörð á þriðjungi jarðar á matvælaverð hér hjá okkur? Verði ekkert að gert, er þetta framtíðin sem blasir við okkur. En við ætlum varla að gera ekki neitt. Hlýnun jarðar er ekki eitt- hvað sem við getum ýtt frá okkur og vonað að þessi eða hinn muni leysa vandamálið einhvern tíma síðar. Það er ábyrgð hvers og eins okkar að haga okkur þannig að jörðin okkar eigi sér bjarta fram- tíð. Það er margt sem við getum gert til þess að draga úr koldí- oxíðsmengun sem einstakling- ar og þjóð. Við getum tildæm- is hjólað, gengið og ekið saman í auknu mæli. Framtak Kolviðar www.kolvidur.is, er gott dæmi, sem gerir okkur kleift að koltví- sýringsjafna útblástur okkar. Þar er tækifæri sem við ættum öll að nýta okkur. Það sem er mikilvægt að hafa í huga er það að Vestur- landabúi sleppir allt að 24 sinnum meiri koltvísýringi út í andrúms- loftið en Afríkubúi. Það þýðir að það erum við sem erum að skapa vandann og það á kostnað annarra þar sem fátæku löndin eru þau fyrstu til að súpa seyðið af hlýn- uninni. Dr. Peter Glick rannsakar loftslagsbreytingar meðal annars í Malí. Orð hans eru mjög lýsandi fyrir stöðuna: „Ef þú keyrir bíl inn í stofuna hjá nágranna þínum, þá væntanlega skuldar þú honum eitthvað fyrir skemmdirnar, sér- staklega ef hann er ótryggður.“ Hjálparstarf kirkjunnar hvet- ur þig til að huga að þínum þætti í hlýnun jarðar. Við Íslendingar ættum ekki að eiga þátt í því að splundra lífi manna, hvorki ann- arra né okkar eigin. Höfundur er verkefnastjóri hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.