Fréttablaðið - 25.05.2007, Page 29
Hótel Höfn verður opnað í dag eftir gagngerar
endurbætur. Að sjálfsögðu er humar ofarlega
á matseðlinum hjá Gísla Má Vilhjálmssyni,
yfirkokki og einum af eigendum hótelsins.
„Við á Hótel Höfn höfum haft humar sem aðals-
merki í 40 ár. Til dæmis fá allir erlendir ferðamenn,
sem hingað koma í hópum, fiskitríó sem inniheld-
ur m.a. humar og hefur líkað mjög vel,“ segir Gísli
Már þegar slegið er á þráðinn austur. Hann segir
aðalatriðið við eldamennsku humars vera að passa
eldunartímann. Það taki nefnilega ekki nema 1-2
mínútur að elda hann ófrosinn. Svo er hann rukk-
aður um uppskrift.
„Einn af okkar aðalréttum á matseðli er svokall-
aður Sumarhumar sem er gufusteiktur humar með
miklu af grænmeti og ekki má gleyma smjöri, hvít-
víni og örlitlu salti.
Smjörið er hitað vel og humarinn steiktur í eina
mínútu, síðan er hvítvíni hellt yfir og loki skellt
yfir í eina mínútu. Safinn af pönnunni er svo bor-
inn fram með ásamt nýbökuðu brauði.“
Hótel Höfn er að opna formlega í dag veitingasali
sína eftir gagngerar endurbætur. Þeir eru aðalsal-
ur á annarri hæð sem tekur um 130 manns og Ósinn
á jarðhæð sem tekur um 50 manns. Reyndar er allt
hótelið endurgert og einnig var það að bæta við 32
herbergjum í 3 stjörnu standard.
„Við vorum nánast að verða tilbúin með hótelið
endurgert í vetur þegar eldur kom upp í því. Eftir
það urðum við auðvitað að laga það sem skemmdist
og tókum svo skrefið alla leið,“ segir Gísli Már.
Humarinn okkar hefur
verið aðalsmerki í 40 ár
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Viltu sei’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Bloggaðu með
símanum!
Hvar sem er og
hvenær sem er!