Fréttablaðið - 25.05.2007, Síða 34
BLS. 2 | sirkus | 25. MAÍ 2007
Heyrst hefur
M argir kallar á mínum aldri fá sér Harley Davidson. Ég vil
hins vegar ekki fara í þessar
aðstæður sem þessir gæjar fara í,”
segir listamaðurinn Tolli Morthens
sem fyrir skömmu keypti sér nýtt
fjallahjól og það af bestu gerð. Hjólið
er af gerðinni Trek Elite XC 9.9 og er
eldrautt að lit. Sjálfur lýsir Tolli
hjólinu sem vængjuðum fáki.
Hjólið kostaði líka sitt. Ásett verð í
Erninum er tæpar 600 þúsund
krónur. „Það er rosalega gaman að
fara út að hjóla þegar þú átt gott hjól.
Nú er ég á þeim aldri að geta leyft
mér þann munað að kaupa besta
hjólið í búðinni. En þú þarft að vera
tilbúinn að streða og leggja fyrir í
hálfa öld,” segir Tolli, sem veit hvað
hann syngur þegar fjallahjól eru
annars vegar.
Hlutskipti Tolla og Bubba bróður
hans eru ólík. Tolli fékk sér nýtt
fjallahjól en Bubbi nýjan jeppa –
farartæki sem kostar um sjö og hálfa
milljón króna. „Bubbi er
nú samt gamall
hjólamaður. Hann var
mjög öflugur hjóla-
maður á sínum tíma og
var fyrirmynd yngri
manna,” segir Tolli,
sem sjálfur notar
hjálm. „Svona gamlir
kallar eins og ég
verða að sýna unga
fólkinu að við
notum líka
hjálma.“
TOLLI FLÝGUR UM Á ELDRAUÐUM FÁKI
F imleikarnir komu að góðum notum í þessum atriðum en svo var ég á stíf-
um bardagaæfingum alla daga,”
segir Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir sem sýnir á sér nýja
hlið í myndinni Astrópíu eða
Dorks & Damsels sem frumsýnd
verður hinn 22. ágúst næstkom-
andi. Í myndinni bregður
Ragnhildur Steinunn sér í
hlutverk Hildar, ungrar stúlku
sem neyðist til að standa á eigin
fótum eftir að kærastinn
hennar, glaumgosi og bílasali,
er settur bak við lás og slá.
Hildur fær vinnu í leikjabúð þar
sem undarlegir hlutir eiga sér
stað og að lokum dregst hún
inn í ævintýraheim þar sem
hún þarf að bjarga sér frá
illum vættum og ófreskjum.
Og það gerir Ragnhildur
Steinunn með stæl. Í
sýnishorni úr myndinni,
sem hefur verið sett á
netið, sést hvar hún fer
flikk-flakk, aftur á bak
og áfram, tekur hring-
spörk að hætti
þrautþjálfaðra
karatemanna og
lumbrar á ófreskjunum
vopnuð tveimur sverðum.
Ragnhildur Steinunn býr að
góðum grunni þar sem hún
æfði fimleika um árabil og var
sem fyrr segir á stífum
bardagaæfingum fyrir
myndina. „Ég var
meira að segja með
sverð heima sem ég
notaði til æfinga. Ég er
frekar metnaðargjörn
og stóð fyrir framan
spegilinn og æfði mig
þegar tími gafst til,“
segir Ragnhildur Steinunn. Á
meðan á tökum á myndinni stóð
var leiðbeinandi úr bardagalist-
um henni innan handar. Hún lék
öll atriðin sjálf, sama hversu
erfið þau voru, og þurfti engan
staðgengil eða áhættuleikara í
sinn stað. Aðstandendur
myndarinnar voru yfir sig
hrifnir af Ragnhildi Steinunni,
sem þótti sýna ótrúlega hæfi-
leika við erfiðar aðstæður oft á
tíðum.
Hlutverk Ragnhildar Stein-
unnar í Astrópíu minnir
óneitanlega á bardagaprinsess-
una Xenu sem gerðinn garðinn
frægan á árum áður. Xena, sem
leikin var af Lucy Lawless, var
óvenju fjölhæf ævintýraprins-
essa sem lumbraði á illmennun-
um vopnuð sverði.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Ragnhildur Steinunn fer með
aðalhlutverk í bíómynd en hún
hefur þó reynt fyrir sér á sviði,
bæði í söngleiknum Fame og
Kalla á þakinu. Þá er hún alls
ekki óvön því að vera fyrir framan
sjónvarpsvélarnar enda einn af
stjórnendum Kastljóssins.
Tökur á Astrópíu fóru fram
síðasta sumar en með aðalhlut-
verkin, ásamt Ragnhildi
Steinunni, fara þeir Snorri
Engilbertsson og Ómar Örn
Hauksson, fyrrverandi meðlim-
ur Quarashi. Meðal annarra
leikara eru Davíð Þór Jónsson,
Steinn Ármann Magnússon,
Halldór Magnússon, Sveppi,
Pétur Jóhann og Sara Guð-
mundsdóttir.
Sýnishorn úr myndinni má
finna á slóðinni: http://www.
kisi.is/home/Films/DorksDam-
sels/Trailer.
KASTLJÓSSDROTTNINGIN RAGNHILDUR STEINUNN SÝNIR Á SÉR NÝJA HLIÐ
Elín María þrítug
Elín María Björnsdóttir, framkvæmda-
stjóri húsgagnaverslunarinnar Egg og
fyrrum þáttastjórnandi Brúðkaupsþáttar-
ins Já, fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu í
góðra vina hópi að heimili sínu við Aratún
í Garðabæ á laugardaginn var. Að
sjálfsögðu var Hrafnkell Pálmarsson,
eiginmaður Elínar
Maríu, staddur þar
en meðal gesta má
nefna Gunnar
Einarsson,
bæjarstjóra í
Garðabæ, Stein
Loga
Björnsson
forstjóra
Húsasmiðj-
unnar,
Ingu Lind
Karlsdóttur sjónvarpskonu og Árna
Hauksson eiginmann hennar, Þorbjörgu
Helgu Vigfúsdóttur borgarfulltrúa, Hlyn
Sigurðsson og frú úr Fasteignasjónvarp-
inu, Arnbjörgu Valsdóttur leikkonu,
sem og strákana úr Í svörtum fötum. Jón
Jósep Snæbjörnsson söngvari
sveitarinnar var
þó fjarri góðu
gamni en leiða
má líkur að því
að hann hafi
verið á flugi
enda
nýbyrjaður að
starfa sem
flugþjónn hjá
Icelandair.
Lumbrar á ófreskjum
vopnuð tveimur sverðum
Xena Bardagaprinsessan á ekki séns í Ragnhildi Steinunni.
Tolli og vængjaði fákurinn
Trek-hjólið hans Tolla er af
bestu gerð og kostar tæpar
600 þúsund krónur.