Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 36
BLS. 4 | sirkus | 25. MAÍ 2007
Heyrst hefur
S veinbjörn Kristjánsson, sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs fangelsi árið 2004 fyrir rétt
rúmlega 260 milljóna króna þjófnað
úr sjóðum Landssímans á árunum
1999 til 2002, hefur lokið afplánun
sinni á Litla-Hrauni og er frjáls
maður. Sveinbjörn er fluttur til Prag í
Tékklandi þar sem hann starfar sem
fjármálaráðgjafi fyrir hótelkeðjuna
Key Hotels sem er í eigu Valdimars
Jónssonar, sem oft er kenndur við
Valhöll.
Sveinbjörn lauk afplánun nú í
byrjun árs og var ekki lengi að fá
vinnu. Hann fór til Prag og hefur
gengið allt í haginn þar. Starfsfólk
Key Hotels sem Sirkus ræddi við ber
Sveinbirni afar vel söguna en ekki
náðist í Sveinbjörn þar sem hann er í
fríi.
Key Hotels rekur nú tvö hótel í
Prag, þriggja stjörnu hótelið Express
by Holiday Inn City Centre Prague og
fjögurra stjörnu hótelið Hotel
Crowne Plaza Prague Castle sem var
opnað nú í vor. Jafnframt er á
teikniborðinu hótel sem rísa á í
Bratislava á næsta ári.
Mikill hugur er í forsvarsmönnum
Key Hotels og segir Valdimar
Jónsson, forstjóri og aðaleigandi, á
heimasíðu hótelkeðjunnar að
stefnan sé að bjóða upp á fimm
þúsund herbergi árið 2015. Ljóst má
vera að aðkoma Sveinbjörns að
hótelkeðjunni er liður í því að efla
innri starfsemina.
Eins og áður sagði var Sveinbjörn
dæmdur í fjögurra og hálfs árs
fangelsi. Hann hóf afplánun á Litla-
Hrauni en fékk sig fluttan á Sólheima
í Grímsnesi vegna góðrar hegðunar.
Þar varð hann fyrir því óláni að vera
tekinn ölvaður undir stýri síðasta
sumar og var í kjölfarið sendur aftur
á Litla-Hraun. Þetta atvik hafði þó
ekki áhrif á afplánun Sveinbjörns,
sem hann lauk nú í byrjun árs.
oskar@frettabladid.is
LANDSÍMAGJALDKERINN SVEINBJÖRN KRISTJÁNSSON HEFUR HAFIÐ NÝTT LÍF:
FJÁRMÁLARÁÐGJAFI
VIÐ HÓTEL Í PRAG
NÝTT LÍF Í PRAG Sveinbjörn Kristjánsson
hefur lokið afplánun og er nú að
hefja nýtt líf í Prag, höfuðborg
Tékklands. Þar mun hann
starfa fyrir fjögurra stjörnu
hótelið Hotel Crowne Plaza
Prague Castle, flaggskip
Key Hotels-
keðjunnar.
E yþór Arnalds hefur verið í stífu heilsuátaki sem tekið hefur verið
eftir. Hann hefur sjaldan eða aldrei
verið í jafn góðu formi. Var 86 kíló
þegar hann var þyngstur en er
kominn niður í 73. Og það á aðeins
tólf mánuðum.
„Það er kannski ekki aðalatriðið að
vera sem léttastur heldur vera í góðu
formi,“ segir Eyþór, sem hefur æft af
krafti í World Class Laugum.
„Markmiðið er að losna við fituna og
komast í gott form. Ég verð að hrósa
honum Bjössa í World Class því það
er svo gaman í ræktinni hjá honum.
Hann mætti gjarnan opna World
Class víðar, til dæmis á Selfossi,” segir
Eyþór hlæjandi enda búsettur í
Hreiðurborg í dreifbýli Selfoss.
Eyþór segist ekki hafa verið í lélegu
formi áður fyrr en það hafi ekki verið
nógu gott. „Ég æfi bara því meira því
eldri sem ég verð. Ég heyrði eitt sinn
þá sögu að gamall maður hefði sagt
við Arnold Schwarzenegger að hann
væri orðinn of gamall til að lyfta.
Schwarzenegger svaraði því til: „Nei,
þú ert of gamall til að lyfta ekki.“ Ég
held að þessi saga sé ágæt áminning.“
Eyþór segir líkamsþyngdina ekki
skipta mestu máli. „Vigtin er eitt en
hvað er í þessum kílóum skiptir líka
máli. Mér finnst lyftingar vera
mikilvæg hreyfing,“ segir Eyþór.
„Okkar vandamál er velmegunar-
vandamál. Við söfnum bumbu undir
skrifborðinu.“
Eyþór reynir að lyfta sex sinnum í
viku og hleypur fimm kílómetra á dag,
bæði í höfuðborginni og í sveitinni.
„Fimm kílómetrar eru ósköp hæfileg
vegalengd. Það er langskemmtilegast
að hlaupa úti en það er ekki alltaf
veður til þess,“ segir Eyþór Arnalds,
stæltari en nokkru sinni fyrr.
Eyþór Arnalds léttist um
þrettán kíló á einu ári
Í KOSNINGABARÁTTUNNI Hér sést Eyþór
ásamt Þórunni Jónu Hauksdóttur á
kosningavöku fyrir sveitastjórnarkosn-
ingarnar í Árborg.
Í FANTAFORMI Eyþór Arnalds telur að lykilatriðið í því að halda orku sé að vera í góðu
formi og reyna á sig. „Fólk hleður í raun batteríin þegar það reynir á sig,“ segir Eyþór
Arnalds. SIRKUSMYND/VILHELM
Lalli logsuða
Lárus Welding, nýráðinn bankastjóri hjá
Glitni, hafði ekki verið lengi í hinu nýja
starfi þegar kollegar hans hjá bankanum
fóru að uppnefna hann. Welding, hið
volduga eftirnafn Lárusar, getur jú merkt
logsuða á erlendri tungu og því hefur
bankastjórinn ungi verið kallaður Lalli
logsuða af samstarfsfólki sínu.
Dáni kveður klakann
Sjónvarpsmaðurinn geðþekki Hálfdán
Steinþórsson mun brátt kveðja land og
þjóð en hann hyggur á nám í fjölmiðla-
og markaðsfræði við Háskólann í
Árósum næsta vetur. Hálfdán, sem er
fyrrverandi umsjónarmaður Veggfóðurs,
Landsins snjallasta og Djúpu laugarinnar,
flytur á næstu vikum til Danaveldis ásamt
unnustu sinni, Erlu Björnsdóttur, og
strákunum þeirra tveimur.