Fréttablaðið - 25.05.2007, Page 42

Fréttablaðið - 25.05.2007, Page 42
BLS. 10 | sirkus | 25. MAÍ 2007 Kristín Jóhannesdóttir (44) 20 milljarðar K ristín er framkvæmdastjóri Gaums, sem er eignarhaldsfélag Baugsfjölskyldunnar. Hún hefur verið í lykilhlutverki í örum vexti félaga sem tengjast Gaumi. Hún er á lausu. Magnús Þorsteinsson (45) 20 milljarðar M agnús lagði grunninn að auðæfum sínum í Rússlandi með Björgólfsfeðgum. Hann býr á Akureyri og er meiri sveitamaður en heimsborgari þrátt fyrir alla milljarðana. Kristján Vilhelmsson (52) 25 milljarðar Stærsta eign: Samherji 35 milljarðar Í gegnum rúmlega 40% hlut sinn Guðbjörg Matthíasdóttir (55) 25 milljarðar Tryggingamiðstöðin 18,5 milljarðar Í gegnum 44,5% hlut eignarhaldsfélaganna Kristins og Fram Ísfélag Vestmannaeyja 8 milljarðar Jóhannes Kristinsson (58) 30 milljarðar Jóhannes er viðskiptafélagi Pálma Haralds-sonar í Fons. Hann býr í Lúxemborg og hefur verið umsvifamikil í uppkaupum á jörðum með laxveiðiréttindi á Austurlandi. Guðmundur Kristjánsson (46) 25 milljarðar G uðmundur er aðaleigandi útgerðarfélags-ins Brims, sem vaxið hefur gífurlega á undanförnum árum. Guðmundur er umdeildur mjög enda maður sem lætur verkin tala. Þorsteinn M. Baldvinsson (54) 25 milljarðar Stærsta eign: Samherji 35 milljarðar Í gegnum rúmlega 40% hlut sinn Gísli Þór Reynisson (41) 35 milljarðar Ingibjörg Pálmadóttir (46) 30 milljarðar Baugur Group 26 milljarðar Í gegnum 8% hlut Eignarhaldsfélagsins ISP Fasteignaf. Stoðir 12 milljarðar Í gegnum 17,6% hlut Eignarhaldsdélagsins ISP V egur Þorsteins hefur vaxið gífurlega á undanförnum árum. Helstu eignir hans liggja í hlut fjárfestingarfélagsins Materia, sem hann á ásamt Magnúsi Ármann og Kevin Stanford, í FL Group. Hann er einnig meirihlutaeigandi í Vífilfelli og á auk þess töluvert af hlutabréfum í fyrirtækjum á borð við Exista, Kaupþing, Byr og hollenska drykkjavörufyrirtækinu Refresco. Þorsteinn nýtur mikillar virðingar viðskiptafélaga sinna og er stjórnarformaður í Glitni fyrir hönd FL Groups. Þorsteinn M. Jónsson (44) 20 milljarðar Gunnþórunn Jónsdóttir (61) 20 milljarðar G unnþórunn er ekkja Óla Sigurðssonar í Olís. Það fer lítið fyrir henni en hún er enn öflugur fjárfestir ásamt börnum sínum, Jóni og Gabríelu, í fjárfestingarfélaginu Sund. F rændurnir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson hafa byggt upp útgerðarfélagið Samherja á Akureyri af mikilli kostgæfni frá stofnun þess. Þeir hafa unnið þétt saman allt frá því að Þorsteinn fann ryðdallinn Guðstein GK í Hafnarfjarðarhöfn árið 1983. Á rúmum tuttugu árum hefur það breyst í stórt alþjóðlegt sjávar- útvegsfyrirtæki og hækkað í verði samkvæmt því. Þeir eru kannski þekktastir fyrir að vera nær ósýnilegir og berast lítið á. * G uðbjörg er ekkja Sigurðar Einarssonar útgerðarmanns í Vestmannaeyjum sem lést langt fyrir aldur fram árið 2000, þá rétt liðlega fimmtugur. Það er óhætt að segja að Guðbjörg, sem er kennari að mennt og starfaði lengi sem slíkur, hafi tekið við góðu búi af manni sínum því Sigurður var afskap- lega framsýnn og farsæll viðskiptamaður auk þess að hann skildi eftir sig Ísfélag Vestmanna- eyja, sem hefur verið rekið með góðum árangri undanfarin ár. Sigurður keypti hlutabréf í Tryggingamiðstöðinni árið 1996 og þau bréf eru nú stærsta eign Guðbjargar. Margir hafa reynt að kaupa hlut hennar í tryggingafélaginu en hún hefur hingað til neitað að selja. Það er óhætt að segja að þrátt fyrir að Guðbjörg hafi lengi verið ein ríkasta kona landsins hafi lítið borið á henni. Hún býr til að mynda í blokkaríbúð við Boðagranda í Vesturbæ Reykjavíkur. Og ekki hefur hún verið áberandi í fjölmiðlum því hún er feimin og veitir aldrei viðtöl þótt oft hafi verið sóst eftir því. I ngibjörg er menntaður innanhússhönnuður sem erfði, líkt og systkini hennar, Sigurður Pálmi, Jón og Lilja, fúlgur fjár eftir föður sinn Pálma í Hagkaup. Munurinn á Ingibjörgu og hinum er hins vegar sá að hún hefur margfaldað auð sinn á skömmum tíma og er það ekki síst að þakka því að hún hefur fjárfest í fyrirtækjum sem eru tengd sambýlismanni hennar Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Ingibjörg hannaði og á Hótel 101 og rekur einnig listagallerí á Hverfisgötunni. Hún á tvö hús á Sóleyjargötu sem eru samtals um 900 fermetrar. Gísli Þór Reynisson sá aldrei fyrir sér þegar hann var við nám í fjármálahagfræði og tölfræði í Finnlandi fyrir um fimmtán árum að leiðir hans ættu eftir að liggja inn á veg viðskipta. Hans hugur stefndi til kennslu og rannsókna en eftir að hann fékk smjörþefinn af fjármálaumhverfinu í Austur- Evrópu varð ekki aftur snúið. Hann stofnaði Nordic Industries árið 1996 og síðan þá hefur vöxturinn verið ævintýralegur, sérstaklega í Lettlandi og öðrum Eystrasaltslöndum. Í dag á hann meirihluta í fyrirtækinu Nordic Partners sem á meðal annars gífurlega stóra iðn- og skrifstofugarða í Riga, höfuðborg Lettlands, hinum Eystrasaltslöndunum og Póllandi sem telja 500-600 þúsund fermetra. Auk þess á Nordic Partners mjög stór drykkjarfram- leiðslu- og matvælafyrirtæki sem og einkaþotuflugfé- lagið Ice Jet og gríðarstóra timburvinnslu. * *Viðtal í Morgunblaðinu 2001 *Ú r b ók in ni Ís le ns ki r m illj ar ða m æ rin ga r. R Í K U S T U Í S L E N D I N G A R N I R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.