Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 76

Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 76
ATVINNA TILKYNNINGAR BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090 Auglýsing um nýtt deiliskipulag og breytingar á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar tillögur að nýju deiliskipulagi og breytingum á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík. Iðnskólareitur Tillaga að deiliskipulagi fyrir Iðnskólareit, svæði sem afmarkast af Frakkastíg, Bergþórugötu , Vitastíg og Skólavörðuholti. Deiliskipulagið tengist og er framhald af skipulagi og umhverfismótun Skólavörðuholtsins og fjallar einnig um þéttingu íbúðabyggðar við Bergþórugötu. Megin efni í uppbyggingu að Holtinu er tillaga að fullnaðaruppbyggingu Iðnskóla þá aðallega fyrir þá starfsemi sem Vörðuskóli hefur hýst til skamms tíma. Tillagan gerir ráð fyrir tveggja hæða nýbygg- ingu vestan núverandi bygginga að Frakkastíg og heimila hækkun á núverandi verkstæðisbyggingu um eina hæð auk byggingar miðlægrar tveggja hæða þjónustubyggingar við núverandi aðalinn- gang skólans. Gert er ráð fyrir að byggja megi bílastæðageymslu neðanjarðar milli skóla og kirkju með aðkomu um Vitastíg. Við Bergþórugötu er lagt til að (heil)byggja randbyggð fyrir íbúðir eða til notkunar fyrir skólann. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Klébergsskóli Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Klébergsskóla á Kjalarnesi. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að á lóð skólans verði gerður gerfigrasvöllur fyrir knattspyrnu, svokallaður battavöllur. Núverandi byggingareitur skólalóðar er stækkaður til norðvesturs og innan hans afmarkað svæði fyrir battavöllinn. Völlurinn verður girtur af samkvæmt staðlaðri fyrirmynd frá KSÍ með timbur- girðingum og lýstur upp með fjórum ljósastaurum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Norðlingaskóli Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Norðlinga- holt vegna lóðar Norðlingaskóla við Árvað. Tillagan gerir ráð fyrir að lóðir og byggingareitir grunn- og leikskóla við Árvað 2 og Árvað 3 eru sam- einaðir. Innan byggingareits er heimilt að byggja grunn- og leikskóla á einni til tveimur hæðum og er þakform frjálst. Heimilt er að byggja íþróttahús og sundlaug innan byggingareits og heimilt verður að setja bráðabirgða kennslustofur tímabindið utan hans. Bundin byggingalína er felld niður en skilyrt að bygging tengist/snerti byggingareit til norður eða vesturs. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipu- lags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 25. maí 2007 til og með 6. júlí 2007. Einnig má sjá til- lögurnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 6. júlí 2007. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 25. maí 2007 Skipulagsstjóri Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.