Fréttablaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 78
Það er svolítið bros-legt að heyra gagn-
rýni ýmissa einstaklinga
úr röðum Samfylkingar-
innar á Steingrím J. Sig-
fússon og fleiri í Vinstri
grænum. Sú gagnrýni er
á að Vinstri græn hafi
komið í veg fyrir myndun vinstri
stjórnar á Íslandi. Gagnrýnin
er að Vinstri græn hafi reynt að
koma því svo fyrir að framsókn
væri ekki stjórntæk til þess að
hafa afsökun fyrir því að hlaupa
í eina sæng með íhaldinu.
Það sem mér finnst broslegt við
svona gagnrýni er einmitt að hún
er fyrst og fremst vel fall-
in til þess að afsaka meint-
an eigin glæp: Fyrst að VG
eyðilagði vinstristjórn-
ina þá verðum við bara
með Sjálfstæðisflokknum.
Þó enginn sé hafinn yfir
gagnrýni þá leysist þessi
rökleysa upp af sjálfu sér,
í sjálfri sér.
Það eina sem er ljóst og
öruggt er það að vilji var til
þess að mynda núverandi stjórn
hjá þessum tveimur flokkum,
Sjálfstæðisflokknum og Sam-
fylkingunni. Viljinn endurspegl-
aðist síðan í þeirri ákvörðun sem
var tekin af forystufólki þessara
flokka. Það liggur fyrir. Morg-
unljóst er að við í vinstri græn-
um höfum, að óreyndu, engar
forsendur til þess að gefa okkur
neitt með vilja annarra flokka til
samstarfs með okkur eða öðrum.
Fyrir kosningarnar lá ekki annað
fyrir en yfirlýsingar framsóknar
um að vera utan stjórnar vegna
lítils fylgis. Mér finnst heiðar-
legt af Steingrími J. Sigfússyni
og öðrum að taka þær yfirlýsing-
ar alvarlega. Mér finnst líka að
slík yfirlýsing þurfti ekki að úti-
loka vinstri stjórn heldur hefði
verið hægt að hafa minnihluta-
stjórn með stuðningi framsókn-
ar, sem þá hefði gefið framsókn
um leið tækifæri til þess að reisa
sig við – en einnig ad halda reisn
sinni og standa við fyrri yfirlýs-
ingar um að vera utan stjórnar.
Eins var líka heiðarlegt að gefa
út yfirlýsingar um að ekki væri
lokað á neins konar samstarf við
nokkurn flokk.
Þessum hugmyndum hefur
verið lýst sem dónaskap af vara-
formanni framsóknar, Guðna Ág-
ústssyni. Henni hefur verið lýst
sem klaufalegri af bloggurum
moggabloggs og vísis. Hugmynd-
unum hefur verið lýst sem ein-
kennilegri nálgun Steingríms
sem ekki gerði annað en að úti-
loka myndun vinstri stjórnar og
allt að því neyða Samfylkinguna í
stjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Öllum er frjálst að hafa skoðanir
um brag og hætti fólks við að setja
fram hugmyndir. Munum samt
að það var Guðni Ágústsson sem
upplifði dónaskapinn, bloggararn-
ir sem kusu að sjá klaufaskap og
margt samfylkingarfólk valdi að
líta þannig á málin að Steingrím-
ur J. Sigfússon væri að reka Sam-
fylkinguna í fang Sjálfstæðis-
flokksins.
Ég hef talsvert álit á Stein-
grími J. Sigfússyni. Ég veit að
hann stýrir Vinstrihreyfingunni
grænu framboði með glæsibrag.
Og hann nýtur eindregins stuðn-
ings okkar allra. En hann stýrir
ekki fleiri flokkum. Hann stýrir
ekki Sjálfstæðisflokknum og hans
vilja til stjórnarmyndunar. Ekki
fremur en Samfylkingunni. Þeim
tveimur flokkum stýrir annað
fólk og er því vonandi sjálfrátt
um vilja og athafnir. Þau bera því
alla ábyrgð á myndun hinnar nýju
ríkisstjórnar og ber að axla hana.
Höfundur er formaður
kjördæmisráðs í Kraganum.
Er Ingibjörgu Sólrúnu og Geir ekki sjálfrátt?
Vorið 2003 auglýsti Fræðslu-net Suðurlands grunnskóla-
kennaranám í fjarnámi við Há-
skólann á Akureyri. Við undirrit-
aðar höfðum þá um allnokkurt
skeið haft í huga að drífa okkur
í kennaranám og ákváðum því
að sækja kynningarfund hjá
Fræðslunetinu þess efnis.
Á fundinum var margt um
manninn enda var verið að kynna
bæði grunn- og leikskólakenn-
aranám en einstaka fög tilheyra
báðum brautum. Þar kom fram
að fyrirlestrar yrðu tvo daga í
viku hverri og tveir hópar, annar
frá Selfossi en hinn úr Reykja-
nesbæ, yrðu þeir fyrstu í grunn-
skólakennarafjarnámi við Há-
skólann á Akureyri. Við ákváð-
um að innrita okkur í þetta nám
sem hófst haustið 2003.
Við fjarnemar höfum sótt fyr-
irlestra að öllu jöfnu tvisvar í
viku og er skemmst frá því að
segja að fjarfundabúnaður hjá
bæði Fræðsluneti Suðurlands
og Háskólanum á Akureyri er til
fyrirmyndar. Okkur fannst ákaf-
lega mikilvægt að við fjarnemar
mynduðum fljótt hópa þar sem
ríkti góður andi og samvinna eins
og í samstæðum bekkjum. Það
er einmitt þetta sem skiptir svo
miklu máli í fjarnámi að maður
sé hluti af bekk þar sem nemend-
ur geta stutt hvern annan.
Námið við kennaradeild Há-
skólans á Akureyri er þannig upp
byggt að við líkt og staðarnem-
ar tökum sameiginlegan deild-
arkjarna sem er 24 einingar og
grunnskólakjarna sem er 38 ein-
ingar. Það er dýrt að halda úti fjar-
námi og því höfum við fjarnemar
ekki eins mikið val um kjörsvið
og staðarnemar en tökum þær
28 einingar sem á vantar á svo-
nefndu almennu sviði. Þeir sem
vilja geta tekið sitt val við Kenn-
araháskóla Íslands.
Námið er þannig upp byggt að
við tökum fimm kennslufræði-
tengd námskeið í grunnskóla-
fræðum og eru það mjög vel gerð
og gagnleg námskeið þar sem
áhersla er lögð á kennsluaðferðir,
námsskrá, skólaþróun, námsefni
o.fl. Við viljum ennfremur nefna
námskeið í þróunarsálfræði,
námssálarfræði og hugmynda-
sögu. Auk þess, sem að framan
er talið, lærum við aðgerðir í töl-
fræði, stærðfræði, eðlisfræði og
efnafræði og höfum við fjarnem-
ar farið nokkrum sinnum norð-
ur á Akureyri í gagnlegar verk-
legar tilraunir og dæmatíma.
Einnig lærum við Íslandssögu,
ensku, líffræði mannsins, lest-
ur og skrift, grenndarkennslu,
þ.e. staðarmenningu, dýrafræði
og jarðfræði og við tökum fjög-
ur námskeið í íslensku og bók-
menntum. Einnig höfum við
tekið tvö heimspekitengd nám-
skeið, þ.e. siðfræði og heimspeki
menntunar svo flest sé til tínt.
Öllu þessu, sem hér hefur verið
nefnt, finnst okkur að grunn-
skólakennari þurfi að kynnast
rækilega og tileinka sér eins og
kostur er, enda gott veganesti.
Æfingakennsla og vettvangs-
nám skipa stóran sess í náminu
og á næstsíðasta misseri förum
við á vettvang í skóla sem við
höfum valið okkur en þar fer æf-
ingakennslan og vettvangsnámið
fram allt misserið. Allan náms-
tímann erum við í nánum sam-
skiptum við kennara okkar á
Akureyri en það er einn af höf-
uðkostum kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri hversu greið-
ur aðgangur er að kennurum þar
og hversu vel er fylgst með námi
okkar og framgangi á öllum svið-
um námsins.
Okkur finnst námið í heild
hafa verið alveg frábært þótt það
krefjist mikillar fyrirhafnar sem
aftur skilar sér í góðri undir-
stöðumenntun en til þess er leik-
urinn einmitt gerður.
Hinn 9. júní nk. útskrif-
ast fyrsti fjarnemahópurinn af
grunnskólabraut við kennara-
deildina en það eru alls 22 nem-
endur, 15 frá Suðurnesjum og
7 af Suðurlandi, en alls braut-
skrást 136 manns frá kennara-
deild af leikskóla-, grunnskóla-
og framhaldsbraut.
Þess ber að geta að á grunn-
skóla- og leikskólabraut fjar-
námsins er nú kennt á tíu stöð-
um á landinu en þeir eru Selfoss,
Reykjanesbær, Hafnarfjörð-
ur, Grundarfjörður, Ísafjörður,
Sauðárkrókur, Þórshöfn, Nes-
kaupstaður, Höfn í Hornafirði og
Vestmannaeyjar. Á Egilstöðum,
Vopnafirði, Akranesi og í Borg-
arnesi er eingöngu kennt á leik-
skólabraut en fyrsti hópur fjar-
nema af leikskólabraut braut-
skráðist árið 2003.
Í ljósi reynslu okkar leyfum
við okkur að mæla með fjarnámi
á grunnskólabraut við kennara-
deild Háskólans á Akureyri og
hvetjum þá, sem eru að hugsa
um kennaranám, til að kynna
sér á vef Háskólans á Akureyri
(unak.is) það sem hann hefur upp
á að bjóða.
Höfundar eru í hópi fyrstu nem-
enda sem útskrifast sem grunn-
skólakennarar úr fjarnámi við
kennaradeild Háskólans á Ak-
ureyri.
Fjarnám fyrir kennara
Hinn 10. september 2005 bár-ust harmafregnir af sjóslysi
á Viðeyjarsundi. Ástvinir okkar,
Matthildur Harðardóttir og Frið-
rik Ásgeir Hermannsson, létust í
slysinu. Lögregla hóf þegar rann-
sókn á tildrögum slyssins og lauk
þeirri rannsókn með því að ríkis-
saksóknari gaf út ákæru á hend-
ur Jónasi Garðarssyni vegna
brota hans gegn almennum hegn-
ingarlögum og siglingalögum.
Með dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur uppkveðnum þann 6. júní
2006 var ákærði dæmdur til að
sæta fangelsi í þrjú ár vegna
stórfelldra brota sinna. Var
honum jafnframt gert að greiða
skaðabætur og allan málskostn-
að. Hæstiréttur Íslands staðfesti
þá niðurstöðu með dómi sínum
hinn 10. maí síðastliðinn.
Með dómi Hæstaréttar lauk
erfiðu ferli sem tekið hefur á
okkur öll. Einna verst þótti okkur
að sakborningur skyldi gera sig
sekan um það „óskaplega til-
tæki“, svo vitnað sé beint í rök-
semdir héraðsdóms, „að bera
af sér sakir og reyna að koma
ábyrgð yfir á þá, sem létust í sjó-
slysinu af völdum hans“. Við
erum því fegin að dómstólar
skuli hafa séð í gegnum tilburði
ákærða með því að hafna alger-
lega, með afdráttarlausum hætti,
röngum framburði hans. Það er
okkur jafnframt mikill léttir að
þeim sem ábyrgð ber á dauða
ástvina okkar skuli gert að sæta
ábyrgð vegna gerða sinna.
Rannsóknarnefnd sjóslysa skil-
aði skýrslu um orsakir slyssins
og eftirfarandi björgun. Niður-
staða nefndarinnar er skýr um
það hver beri ábyrgð á dauða ást-
vina okkar, sá er dóminn hlaut,
skipstjóri bátsins. Rannsóknar-
nefndin komst einnig að þeirri
niðurstöðu að alvarlegir ágall-
ar hefðu verið á björgunarað-
gerðum og skipulagi þeirra, sem
brýnt sé að bæta úr. Um það at-
riði erum við sammála. Við álít-
um það skyldu okkar allra að
koma í veg fyrir að mistök verði
endurtekin, ef þess er nokkur
kostur. Að því munum við vinna
og treystum á liðsinni annarra í
því efni.
Við viljum að lokum koma á
framfæri innilegu þakklæti til
allra þeirra sem hafa staðið þétt
við bakið á okkur, sent kveðj-
ur, hugsað hlýlega til okkar og
þannig sýnt okkur ómetanleg-
an stuðning á þeim erfiðu tímum
sem við höfum gengið í gegn-
um. Við erum einnig þakklát öllu
því fagfólki sem fjallað hefur um
málið af fagmennsku og á vand-
aðan hátt. Þá þökkum við fjöl-
miðlum fyrir þann skilning sem
þeir hafa sýnt aðstæðum okkar.
Allt þetta metum við mjög mikils.
Fyrir hönd fjölskyldna
þeirra sem létust,
Jóhannes Rúnar Jóhannsson.
Hjartans þakkkir
Dre
gi›
í
ásk
rift
arle
ikn
um
á la
uga
rda
ginn