Fréttablaðið - 25.05.2007, Side 84
Kl. 20.00
Vorhátíð Magadanshússins verð-
ur í Salnum í Kópavogi. Nemend-
ur og kennarar sýna fjölbreyti-
lega magadansa, tribaldansa
og carribean-dansa. Um fimm-
tíu dansarar taka þátt í sýn-
ingunni og er reynsla þeirra frá
tveimur mánuðum upp í tuttugu
ár. Léttleiki, fegurð, litadýrð og
skemmtileg tónlist.
Önnur stútfull Stína
Heimilda- og stuttmyndahátíðin
í Reykjavík hefst í kvöld en fjöl-
breytt úrval íslenskra og erlendra
mynda verður sýnt í Tjarnar-
bíói um helgina. Opnunarmynd-
in, Fórnarlömb pólfaranna, er
áleitin mynd um valdníðslu ný-
lendustefnunnar, þráhyggju eins
manns og lítinn inúítastrák sem
hét Minik.
Heimildamynd Svíans Staff-
an Julén byggist á sögu hins
þekkta bandaríska landkönnuð-
ar Robert E. Peary sem talinn er
fyrstur manna hafa stigið fæti
á Norðurpólinn. Peary var um-
deildur maður og þekktur fyrir
þráhyggju sína en hann gerði átta
tilraunir á rúmlega tuttugu árum
til þess að ná takmarki sínu að
komast á pólinn.
Bakhjarlar Pearys hvöttu hann
til þess að koma með dýrgripi
frá norðurslóðum svo heima-
menn hans í Ameríku fengju
notið þeirra einnig og árið 1897
kom Peary til New York með
sex inúíta í farteski sínu. Þús-
undir manna heimsóttu Náttúru-
gripasafn Bandaríkjanna til að
berja „gripina“ augum. Sá yngsti,
Minik, var aðeins sex ára en sorg-
leg saga hans hefur verið skráð
og þykir til vitnis um valdníðsl-
una og skilningsleysið sem ný-
lendustefnan hafði í för með sér.
Svo fór að Minik var ættleiddur
og bjó um hríð í Bandaríkjunum
en hinir í föruneytinu dóu, þar á
meðal faðir Miniks.
Í myndinni segir frá ferðalagi
barnabarns Pearys sem fer aftur
til Grænlands til þess að kynnast
sögu forföður síns og Miniks en
báðir eignuðust þeir afkomendur
á Grænlandi. Peary segir að ferða-
lagið og myndin hafi breytt miklu
fyrir sig. „Þessi mynd fjallar um
sjálfsmyndina, það að þekkja
sjálfan sig og þora að tjá sig. Nú
get ég talað um vonir mínar og
þrár og þessa hluti sem hafa legið
í þagnargildi árum saman.“ Peary
hefur sterkar skoðanir á ástand-
inu á Grænlandi og meðferð Dana
á þeirri nýlendu sinni og sömu-
leiðis á þeirri heimsvaldastefnu
sem einkennir pólitík Vestur-
landa gagnvart restinni af heim-
inum. „Á sínum tíma lögðu sterk-
ari ríki undir sig lönd í nafni trú-
arinnar og Jesú Krists. Nú beita
menn áhrifum sínum og komast
yfir völd í krafti hugmynda um
lýðræði og tjáningarfrelsi. Vald-
hafar nota enn orðræðu á borð
við: „Ef þið eruð ekki með okkur
þá eruð þið á móti okkur.“
Peary segir að myndin hafi í
upphafi ekki verið pólitísk en
þróast í þá átt. Hann er eindreg-
inn stuðingsmaður þess að Græn-
lendingar taki mál sín í eigin
hendur. „Ég vil að þeir verði
frjálsir undan dönskum hugsun-
arhætti, þeir eiga að fá að byggja
landið sitt eins og þeir vilja. Þó
að það sé vanda- og kostnaðar-
samt er mikilvægast að þeir fái
að stjórna sér sjálfir.“
Myndin byggist á viðtölum,
gömlum myndbrotum og ljós-
myndum og þykir varpa ljósi
á óvenjulegar sögur þessara
tveggja manna.
Fórnarlömb pólfaranna hefur
hlotið margvíslegar viðurkenn-
ingar og verðlaun, þar á meðal
frá Amnesty International.
Myndin er sýnd í samstarfi við
félagsskapinn Reykjavík Docum-
entary Workshop og Nordisk Pa-
norama in Iceland og eru leik-
stjórinn og aðalleikarinn vænt-
anlegir hingað til lands í tilefni
sýningarinnar.
Nánari upplýsingar um dag-
skrá Reykjavík Shorts & Docs er
að finna á heimasíðunni á www.
shortdocs.info.
Sorgarsaga Miniks
Listamaðurinn Anna Sigmond
Guðmundsdóttir opnar sýninguna
„Breed and Animals“ í Nýlista-
safninu við Laugaveg á morgun en
hún hefur að undanförnu unnið að
innsetningu á veggi og gólf safns-
ins.
Anna er hálfíslenskur mynd-
listarmaður, búsett í Noregi, sem
hefur getið sér gott orð í alþjóð-
lega myndlistarheiminum fyrir
innsetningar sínar. Þetta er fyrsta
einkasýning hennar hér á landi.
Verk Önnu eru lagskipt, þar eru
teikningar teknar til dæmis úr al-
fræðiorðabókum eða dagblöðum,
yfir málaða fleti, slettur og krot
eða myndir úr barnabókum og
teiknimyndum, textabrot og hálf-
kláraðar setningar undir málning-
arleka eða veggjakroti, söguteng-
ingar blandast saman við nútím-
ann í myndbrotum sem úr verður
ein allsherjar myndbygging og
áhorfandinn stendur frammi fyrir
því að skilja eða öllu heldur mis-
skilja brotin í heildarmyndinni.
Sýningin stendur til 8. júlí. Sjá
nánari upplýsingar á vefsíðu
safnsins, www.nylo.is
Blandaðar sögutengingar